
Hver er kylfingurinn: Lee Westwood (3/4)
Atvinnumannsferill Lee Westwood frh.
Westwood lék aftur á PGA Tour 2012 keppnistímabilið og lét m.a. frá sér fara „að honum liði vel á Ryder Cup ári“ og svolítið hræddur því hann var að spila í FedEx Cup í fyrsta sinn. Í febrúar 2012 náði Westy besta árangri sínum á WGC-Accenture Match Play Championship þ.e. heimsmótinu í holukeppni, þegar hann komst í undanúrslit í fyrsta sinn. Í öllum 11 fyrri tilraunum hafði hann aldrei komist lengra en í 2. umferð. Westy vann Nicolas Colsaerts, Robert Karlsson, Nick Watney og Martin Laird áður en hann beið lægri hlut 3&1, gegn Rory McIlroy í fjórðungsúrslitunum. Westy varð í 4. sæti eftir að tapa leiknum upp á 3. sætið fyrir Bandaríkjamanninum Mark Wilson, með minnsta mun 1&0. Hefði Westwood unnið á mótinu hefði hann aftur náð 1. sætinu á heimslistanum.
Westwood héld áfram að ná góðum árangri í risamótum þegar hann varð T-3 (þ.e. deildi 3. sætinu með öðrum) í Masters risamótinu í apríl 2012. Hann lauk keppni 2 höggum á eftir Bubba Watson og Louis Oosthuizen og grét slæman árangur sinn í púttunum og kenndi þeim um slæman árangur sinn. Þetta var í 7. sinn sem hann náði topp-3 árangri á risamóti án þess að sigra í mótinu. Í apríl 2012 varði hann titil sinn á Indonesian Masters á Asíutúrnum, vann með 2 höggum.
Í júní 2012 sigraði Westwood Nordea Masters í 3. sinn, viku fyrir Opna bandaríska með 5 högga mun á Ross Fisher. Þetta var 22. sigur Westwood á Evrópumótaröðinni og það færði hann í 9. sætið yfir þá sem unnið hafa flesta sigra á Evrópumótaröðinni frá upphafi.
Á Opna bandaríska 2012 var Westwood að keppa til úrslita aftur eftir að hafa náð hring upp á 3 undir pari, 67 höggum á 3 hring og var aðeins 3 höggum á eftir forystumönnum fyrir lokahringinn. Á lokahringnum missti Westwood bolta sinn í tré á par-4 5. holunni eftir að drævið hans leitaði í fururnar. Boltinn var úrskurðaður týndur og hann varð að spila 3 högg af teig, sem varð til þess að hann fékk tvöfaldan skolla sexu sem batt enda á baráttu hans. Hann varð T-10 í mótinu.
Á Opna bandaríska 2013 var Westwood í forystu eftir 54 holur; átti 2 högg á Hunter Mahan og Tiger Woods. Þeir voru einu 3 kylfingarnir sem voru undir pari í mótinu. Westy var á 4 yfir, 75 höggum á lokahring sínum og lauk keppni T-3, 4 höggum á eftir sigurvegaranum á 1 yfir pari samtals.
Phil Mickelson vann mótið á samtals 3 undir pari og var eini keppandinn sem lauk mótinu á undir pari. Þetta var í 2. sinn sem Westy hafði verið í forystu fyrir lokahring í risamótinu, hitt var 2010 Masters risamótið, sem Mickelson vann líka. Westy hefir nú lokið keppni meðal efstu 3 í risamótum átta sinnum án þess að sigra nokkru sinni. Skyldi það breytast í ár?
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024