Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Bronson La Cassie (20/25)
Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá, sem varð í 6. sæti, en það er Bronson La Cassie. La Cassie tók þátt í Web.com Tour Finas eins og öllum efstu 25, af peningalista Web.com Tour, stendur til boða á Web.com Tour Finals, um bætta stöðu en varð í 36. sæti og bætti því stöðu sína ekkert. Bronson La Cassie fæddist í Brisbane, Ástralíu 15. apríl 1983 og er því 31 árs. Hann er best þekktur fyrir sigur í Western Amateur árið 2006 . Á unglingsárum sínum spilaði Bronson fyrir Queensland State Team, sem varð í 2. sæti árið 2000, sem og Lesa meira
NÝTT!!! Nýju stúlkurnar á LPGA 2014
Golf 1 hefir ár hvert kynnt nýliða á helstu mótaröðum heims Evrópumótaröðinni, LET, PGA og LPGA. Búið er að kynna nýju strákana á Evrópumótaröðinni 2014; nýju stúlkurnar á LET 2014; verið er að kynna nýju strákana á PGA keppnistímabilið 2013-2014 og nú verður hafist handa við að kynna nýju stúlkurnar á LPGA 2014. Þann 8. desember 2013 lauk Q-school LPGA á Jones golfvellinum, hjá LPGA International á Daytona Beach í Flórída. Það voru 48 sem hlutu keppnisrétt á LPGA – 20 efstu fullan keppnirétt en næstu 28 takmarkaðan. Hér á Golf 1 verða allar 48 kynntar og eins og alltaf verða þær neðstu kynntar fyrsta og endað á þeirri, sem sigraði Lesa meira
13 atriði sem eru auðveldari en að vinna úrtökumót til að spila í Opna bandaríska
Golf Digest hefir tekið saman skemmtiegan lista yfir hluti eða atriði sem auðveldari eru en að komast í gegnum úrtökumót til þess að spila í Opna bandaríska á Pinehurst nr. 2 í ár. Meðal þess sem Golf Digest nefnir yfir atriði sem eru auðveldara eru en að komast í gegnum úrtökumótið er að hljóta inngöngu í Harvard háskólann, vinna ein eftirsóttustu hafnarboltaverðlaun í Bandaríkjunum og ….. ja þið verðið bara að skoða listann. Til þess að sjá lista þessara atriða SMELLIÐ HÉR:
GO: Sigrún Edda Jóns, Camilla Twingmark og Stella Steingríms sigruðu á móti Soroptimista!
Það var ekki skemmtileg veðurspáin alla vikuna fyrir mótsdag þeirra Soroptimista, 31. maí 2014 og þó veðrið hafi verið ágætt á köflum var mikið um forföll alla vikuna fyrir mótið og fór fjöldinn úr um 180 konum niður í 98, sem létu sjá sig á leikdegi. Úrslit urðu eftirfarandi: Höggleikur 1 Sigrún Edda Jónsdóttir NK 13 F 44 46 90 19 90 90 19 2 Hulda Hallgrímsdóttir GO 16 F 42 49 91 20 91 91 20 3 Kristín Pétursdóttir GK 8 F 41 54 95 24 95 95 24 4 Marólína G Erlendsdóttir GR 19 F 46 50 96 25 96 96 25 5 Camilla Margareta Tvingmark GKJ Lesa meira
22 ára áhugamaður skrifaði undir rangt skorkort og verður ekki með í US Open!!! – Myndskeið
Landon Michelson, 22 ára áhugamaður tók þátt í úrtökumóti fyrir Opna bandaríska risamótið í Flórída s.l. mánudag …. og var heppinn. Hann átti fyrst ekki að fá að taka þátt í úrtökumótinu en Freddie Jacobson dró sig úr mótinu og viti menn Michelson komst inn. Hann átti síðan tvo hringi upp á 1 undir pari, 71 högg sem var frábært þar sem golfvöllur Quail Valley Golf Club á Vero Beach (sjá með því að SMELLA HÉR:) spilaðist erfiðar en venjulega vegna verulegs hvassviðris og því erfitt að keppa við þetta glæsiskor vegna aðstæðna. Michelson játaði í viðtali við Will Gray á Golf Channel að einbeitingin hefði ekki verið upp á það Lesa meira
Herb Page ánægður með gæði kylfinga hér á landi
Margreyndur þjálfari frá Kent State háskólanum, Herb Page, kom hingað til lands og fylgdist með Eimskipsmótaröðinni um seinustu helgi. Kent State hefur náð mjög góðum árangri í háskólagolfinu undanfarin ár, m.a. komist í NCAA lokakeppnina 5 af seinustu 6 keppnum, og endaði í 5. sæti 2012. Frægasti kylfingur Kent State er Ben Curtis, en hann sigraði á Opna breska 2003, og hefur Page verið púttþjálfari hans í gegnum hans atvinnumannaferil. Page var hér í þeim erindagjörðum að fylgjast með ungum íslenskum kylfingum, sem hann hefur verið í sambandi við á undanförnum mánuðum. Það eru meðmæli með barna-, unglinga- og afreksstarfi klúbbana hér heima, og kylfinganna sjálfra, að reyndur þjálfari frá Lesa meira
Spieth endurtekur leikinn frá John Deere 2013 – Vippar beint ofan í – Myndskeið!
Jordan Spieth fór aftur á vettvang fyrsta sigur síns á PGA Tour í fyrra, þ.e. TPC Deere Run golfvöllinn í Illinois og gerði svolítið ótrúlegt þar! Þetta var blaðamannafundur sem tekinn var út á völl en John Deere mótið hefst einmitt á morgun og er mót vikunnar á PGA Tour…. og Jordan Spieth á titil að verja. Spieth var meira í gríni en alvöru beðinn um að endurtaka höggið upp úr sandglompu sem hann sló beint ofan í holu í fyrra og varð til þess að hann komst í 3 manna bráðabana, sem hann vann síðan. Spieth varð við beiðninni og viti menn endurtók höggið sem fór beint ofan í Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Axel Bóasson —— 3. júní 2014
Afmæliskylfingur dagsins er Axel Bóasson. Axel er fæddur 3. júní 1990 og því 24 ára í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Axel var við nám og spilaði golf með golfliði Mississippi háskóla, í Bandaríkjunum. Hann er jafnframt Íslandsmeistari í höggleik 2011. Axel sigraði á 1. stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar upp á Skaga 2013 og endurtók þar með leikinn frá árinu 2011 þegar hann vann einnig á 1. stigamóti ársins þá. Sjá má viðtal við Axel af því tilefni með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér: Axel Bóasson (24 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Hale Lesa meira
Harrington vill verða varafyrirliði
Pádraig Harrington snæddi nýlega með Paul McGinley á heimili þess síðarnefnda í Sunningdale og var ýmislegt til umræðu en hvorugur minntist að sögn nokkuð á stöðu varafyrirliða Ryder Cup liðs Evrópu. „Hann myndi aldrei minnast á það að fyrra bragði og ég myndi aldrei gera það heldur,“ sagði Harrington. „Hvað sem öðru líður, kýs ég fremur að hann sé algerlega hlutlaus þegar kemur að því að velja í varafyrirliðastöðu Ryder bikars liðs Evrópu.“ Aðspurður hvort Harrington myndi þiggja stöðuna ef hún stæði honum til boða svaraði hann já og það án nokkurs hiks. „Það er ekki nokkur vafi að ég myndi ekki neita henni og ég vonast til þess að Lesa meira
Heimslistinn: Scott verður í 1. sæti á Pinehurst – Matsuyama nú í 13. sæti!
Adam Scott mun enn sitja í toppsætinu á heimslistanum þegar Opna bandaríska risamótið fer fram skv. heimslistaspám. Þetta er í fyrsta sinn sem Ástrali er í 1. sæti heimslistans á einu risamótanna. Með sigri geta hins vegar 3 kylfingar: Henrik Stenson, Bubba Watson og Matt Kuchar hrundið Scott úr toppsæti heimslistans. Scott varð T-4 á The Memorial en Stenson einn í 5. sæti á Nordea Masters. Fyrrum nr. 1 á heimslistanum, Tiger sem ekkert keppir er runninn niður í 4. sætið! Kuchar er sá eini á topp-5 heimslistans, sem ætlar að keppa fyrir Opna bandaríska þ.e. taka þátt í móti vikunnar á PGA Tour, FedEx St. Jude Classic. Hástökkvari vikunnar á Lesa meira









