Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2014 | 20:00

Eimskipsmótaröðin 2014 (4): Úrslit e. 1. dag á Íslandsmótinu í holukeppni í karlaflokki

Fyrsta keppnisdegi af þremur á Securitasmótinu-Íslandsmótinu í holukeppni er lokið en mótið er fjórða mót Eimskipsmótaraðarinnar. Í dag voru leiknar tvær umferðir af þremur í riðlakeppninni en leikið er í 8 riðlum í karla og 8 riðlum í kvennaflokki.  Á morgun fer síðasta umferðin í riðlum fram og að henni lokinni þá kemur í ljós hvaða kylfingar komast áfram í 8 manna úrslit, en einn kylfingur fer upp úr hverjum riðli. Hér að neðan má sjá hvernig leikirnir fóru í riðlunum og hér er úrslitaskjalið. Karlaflokkur. Riðill 1: Kristján Þór Einarsson  (GKj.), Arnar Snær Hákonarson(GR), Ari Magnússon (GKG), Helgi Anton Eiríksson (GR). 1.      Umferð: Kristján Þór sigraði Helga Anton 4/3, Arnar Snær Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2014 | 18:00

Ragnar Már úr leik í Brabazon Trophy

Ragnar Már Garðarsson, GKG, tók þátt í Brabazon Trophy á Seaton Carew golfvellinum rétt frá Middlesbrough í Englandi. Þátttaka hans í Brabazon varð til þess að hann missir af Íslandsmótinu í holukeppni, sem hófst í dag á Hvaleyrarvelli. Ragnar lék á samtals 2 yfir pari 148 höggum (72 76) og var aðeins 1 höggi frá því að komast í gegnum niðurskurð. Efstu menn, Ryan Evans og Ben Storm voru á samtals 9 undir pari eftir 2 spilaða hringi. Sjá má stöðuna í Brabazon Trophy með því að  SMELLA HÉR:   

Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2014 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Catherine Lacoste – 27. júní 2014

Afmæliskylfingur dagsins er franski kylfingurinn Catherine Lacoste. Catherine fæddist í París 27. júní 1945 og er því 69 ára í dag. Cat, eins og hún er kölluð er dóttir frönsku tennisgoðsagnarinnar Rene Lacoste, sem stofnaði Lacoste tískuvörufyrirtækið. Móðir hennar er Simone Thione de la Chaume, sem vann breska áhugamannamót kvenna árið 1927, sama mót og Cat vann 42 árum síðar. Cat byrjaði að spila golf í Cantaco Golf Club – sem stofnaður var af foreldrum hennar -í Saint-Jean-de-Luz í Frakklandi og var fljótlega yfirburðakylfingur í unglingastarfinu þar. Cat varð aldrei atvinnumaður í golfi en sigraði 2 stærstu áhugamannamót í heiminum og þar að auki 1 risamót atvinnukylfinga, US Women´s Open og er enn Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2014 | 15:00

Rory mun keppa fyrir Írland á Ólympíuleikunum

Rory tilkynnti um að hann muni keppa í golfi fyrir hönd Írlands á næstu Ólympíuleikum. Þessi ákvörðun hans hefir valdið fjölda greinaskrifa á Brelandseyjum – Írar að vonum ánægðir, Englendingar ekki svo. Bent hefir verið á að aðrir íþróttamenn t.a.m. í róðri, hjólakeppnum og boxi hafi ekki þetta val sem Rory. Sjá má eina slíka grein í Belfast Telegraph með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2014 | 14:15

LPGA: Walmart NW Arkansas Championship hefst í dag

Mót vikunnar á LPGA er Walmart NW Arkansas Championship Presented by P&G. Sú sem á titil að verja er Inbee Park.  Leikið er í Pinnacle CC í Rogers, Arkansas. Fylgjast má með gengi keppenda með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2014 | 12:00

PGA: Tiger líður vel með 1. hring sinn á Quiken Loans

Tiger Woods lék í fyrsta sinn í gær á Quicken Loans mótinu og sagðist að hring loknum vera ánægður og að sér liði vel með hring sinn. Tiger var í ráshóp með nr. 6 og 9 á heimslistanum þ.e. Jason Day og Jordan Spieth. Tiger jafnvel grínaðist með að þeir þrír hefðu allir verið að ströggla og voru m.a. á 4 yfir pari, eftir fyrstu 9 holurnar.  Jordan Spieth tók undir það og sagði að sér hefði virtst sem lok væri á öllum holunum. Leikur Tiger skánaði síðan eftir því sem leið á hringinn og hann líktist jafnvel „gamla góða Tigernum“ þegar hann fékk 3 fugla á síðustu 6 holunum. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2014 | 11:00

Evróputúrinn: Cabrera-Bello og Willet leiða í Köln – Hápunktar 1. dags

Mót vikunnar á Evrópumótaröðinni að þessu sinni er BMW International Open, sem fram fer í Golf Club Gut Lärchenhof. Eftir fyrsta dag eru það Rafa Cabrera-Bello frá Kanarí eyjum og enski kylfingurinn Danny Willet sem leiða. Báðir eru búnir að spila á samtals 8 undir pari, 64 höggum, hvor. Til þess að sjá stöðuna á BMW International Open SMELLIÐ HÉR Til þess að sjá hápunkta 1. dags á BMW International Open SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2014 | 07:30

Eimskipsmótaröðin (4): Íslandsmótið í holukeppni hefst í dag!

Íslandsmótið í holukeppni hefst í dag á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði og er þetta 4. mótið af 7 á Eimskipsmótaröðinni. Meðal þátttakenda í þessu 4.móti Eimskipsmótaraðarinnar eru  32 kvenkylfingar, sem er frábært hlutfall kvenkylfinga í golfmóti!!! Konurnar eru ræstar út frá kl. 7:30 í dag í Sandvíkinni,  meðan karlarnir fara út af 1. teig. Nú er um að gera að koma á Íslandsmótið í holukeppni og fylgjast með okkar bestu kylfingum, en meðal keppanda er m.a. sigurvegari á 3. Eimskipsmótinu í ár: atvinnumaðurinn Birgir Leifur Hafþórsson, GKG. Fylgjast má með skori keppanda með því að SMELLA HÉR:   

Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2014 | 07:00

EuroPro: Ólafur Björn úr leik

Ólafur Björn Loftsson, NK, tók þátt í móti á EuroPro mótaröðinni sem fram fer á Frilford Heath golfvellinum. Hann komast ekki í gegnum niðurskurð í gær eftir að hafa leikið 2. hring á 5 yfir pari, 77 höggum. Ólafur Björn lék samtals á 6 yfir pari, 150 höggum (73 77) og er úr leik í mótinu þ.e. komst ekki í gegnum niðurskuðr Sjá má stöðuna eftir 2. dag á Frilford Heath með því að  SMELLA HÉR:   Á facebook síðu sína skrifaði Ólafur Björn eftirfarandi um 2. dag mótsins: „Ég spilaði fremur varfærnislega þar sem ég var að sjá völlinn í fyrsta skipti. Ég var að keppa á æfingadeginum (mánudag) Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 27. 2014 | 01:00

PGA: Högg 1. dags á Quicken Loans

Högg 1. dags á Quicken Loans mótinu, sem hófst í gær á átti Suður-Afríkumaðurinn Rory Sabbatini. Sabbatini chippaði af 11 metra færi fyrir utan flöt, á par-5 9. holunni og höggið fór beint í holu fyrir fugli! Höggið var valið högg 1. dags á Quicken Loans af PGA Tour. Sjá má glæsi-chipp Sabbatini með því að SMELLA HÉR: