Eimskipsmótaröðin 2014 (4): Systur og frænkur komnar í 4 manna úrslit á Íslandsmótinu í holukeppni
Tvær Keiliskonurnar eru nú komnar í undanúrslitin á Íslandsmótinu í holukeppni, en það eru frænkurnar Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Tinna Jóhannsdóttir. Eins eru systurnar Heiða Guðnadóttir, GKJ og Karen Guðnadóttir, GS, komnar í undanúrslitin. Leikir í fjórðungsúrslitunum á Íslandsmótinu í holukeppni fóru annars þannig: 1. leikur Heiða Guðnadóttir, GKJ vann Sunnu Víðisdóttur, GR á 19. holu 2. leikur Karen Guðnadóttir, GK vann Signýju Arnórsdóttur, GK 1&0 3. leikur Tinna Jóhannsdóttir, GK vann Berglindi Björnsdóttur, GR 3&1 4. leikur Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK vann Ragnhildi Kristinsdóttur, GR 3&2 Spennandi leikir framundan í kvennaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni og um að gera að fjölmenna á Hvaleyrina á morgun og fylgjast með lokaviðureignunum, en einhver af ofangreindum Lesa meira
17 mánaða kylfingur – Myndskeið
Kylfingar eru alltaf að verða yngri og yngri. Alltaf verið að setja ný aldursmet í golfinu hvað varðar þann yngsta sem afrekað hefir hitt og þetta. Þannig er Guan Tianlang t.a.m. sá yngsti sem komist hefir í gegnum niðurskurð á Masters (14 ára) og Lucy Li ,11 ára, sú yngsta til að spila í Opna bandaríska kvenrisamótinu. Svo eru líka alltaf að sjást yngri kylfingar á youtube.com sem eru að slá sín fyrstu högg í golfinu. Hér má sjá myndskeið af einum 17 mánaða (ekki einu sinni orðinn 2 ára – þ.e. ef þessi fær spurninguna: „Hvenær byrjaðirðu í golfi? þá verður svarið: „1 árs!“) SMELLIÐ HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Freyja Benediktsdóttir – 28. júní 2014
Afmæliskylfingur dagsins er Freyja Benediktsdóttir. Freyja er fædd 28. júní 1953 og er því 61 árs. Sambýlismaður Freyju er Einar Jóhann Herbertsson. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Freyja Benediktsdóttir Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Peter H. Oakley, 28. júní 1949 (65 ára); Jim Nelford, 28. júní 1955 (59 ára); Warren Abery 28. júní 1973 (41 árs) ….. og ….. Kollu Keramik (61 árs) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga Lesa meira
Nýju stúlkurnar á LPGA 2014: Anya Alvarez, Lee Anne Pace og Joanna Klatten (18-20/48)
Það voru 48 stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA 8. desember 2013; 20 hlutu fullan keppnisrétt og aðrar 28 takmarkaðan, í gegnum Q-school Stage III, þ.e. lokaúrtökumótið á LPGA International, á Daytona Beach í Flórída. Hér verða allar stúlkurnar 48 kynntar en sá háttur hafður á að 2-3 stúlkur, sem urðu í 21.-48. sæti verða kynntar saman en síðan verður sérkynning á hverri þeirra 20 stúlkna, sem hlaut fullan spilarétt. Niðurskurður var að þessu sinni miðaður við slétt par, þ.e. allar sem voru á pari eða betur hlutu einhvern keppnisrétt á LPGA. Í dag verða kynntar þær sem voru T-29, en það eru þær Anya Alvarerz, Lee Anne Pace Lesa meira
Eimskipsmótaröðin 2014 (4): Lokastaðan í 16 manna úrslitum – Leikir hafnir í 8 manna úrslitum
Í gær hófst 4. mótið á Eimskipmótaröðinni – Securitas Íslandsmótið í holukeppni. Fyrir hádegin lauk keppni í 16 manna úrslitum – eftir hádegið hefjast leikir bæði í kvenna og karlaflokki í 8 manna úrslitum. Fylgjast má með hverjir komast í undanúrslit með því að SMELLA HÉR: Í kvennaflokki fara eftirfarandi leikir fram í 8 manna úrslitum: 1. leikur Sunna Víðisdóttir, GR – Heiða Guðnadóttir, GKJ 2. leikur Signý Arnórsdóttir, GK – Karen Guðnadóttir, GS 3. leikur Berlind Björnsdóttir, GR – Tinna Jóhannsdóttir, GK 4. leikur Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK – Ragnhildur Kristinsdóttir, GR Í karlaflokki fara eftirfarandi leikir fram í 8 manna úrslitum : 1. leikur Kristján Þór Einarsson, Lesa meira
Champions Tour: Langer leiðir á Senior Players
Bernhard Langer var á flottum 6 undir pari, 64 höggum á Senior Players Championship risamótið í gær, en mótið hófst á fimmtudaginn í Fox Chapel Golf Club í Pittsburgh, Pennsylvaníu í Bandarískjunum. Langer, sem sigrað hefir tvívegis á Masters fékk m.a. glæsiörn á par-4 7. holuna og bætti síðan við 5 fuglum og fékk aðeins 1 skolla og er nú samtals kominn í 11 undir par í hálfleik mótsins. Hringur hins 56 ára Langer var nógu góður til þess að hann er nú kominn með 2 högga forystu, nú þegar hann eltist við 3 risamótstitil sinn á Champions Tour. Þeir sem deila 2. sætinu á samtals 9 undir pari hvor eru Lesa meira
PGA: Tiger úr leik á Quicken Loans
Stóra frétt vikunnar í golfheiminum var að Tiger Woods væri að snúa aftur í keppnisgolfið eftir 3 mánaða fjarveru. Hann kom aftur … bara ekki í langan tíma, því hann er nú úr leik, náði ekki niðurskurði í Quicken Loans National mótinu, en þetta er aðeins í 10. skipti á ferli Tiger, sem hann nær ekki niðurskurði. Hann lék á 4 yfir pari, 75 höggum í gær, föstudaginn 27. júní. Samtals lék Tiger á 7 yfir pari (74 75). Niðurskurður var miðaður við 3 yfir pari. Þetta er samt líklega eina skiptið sem Tiger virðist bara nokkuð sáttur, þrátt fyrir að ná ekki niðurskurði. Hann sagði m.a. eftir hringinn Lesa meira
Evróputúrinn: Kaymer úr leik í Köln
Heimamaðurinn, meistari Opna bandaríska 2014, Martin Kaymer komst ekki í gegnum niðurskurð á BMW International Open, sem fram fer í Golf Club Gut Lärchenhof, í Köln, Þýskalandi. Hann lék á samtals sléttu pari, 144 höggum (71 73). Skor voru ótrúlega lág og niðurskurður miðaður við 4 undir pari eftir 2 daga. Fjórir leiða í hálfleik mótsins en það eru forystumenn 1. dags Rafa Cabrera-Bello frá Kanarí eyjum, enski kylfingurinn Danny Willet, argentínski kylfingurinn Emilano Grillo og spænski kylfingurinn Pablo Larrazabal. Allir eru þeir búnir að spila á 12 undir pari, 132 höggum. Til þess að sjá stöðuna á BMW International Open eftir 2. dag SMELLIÐ HÉR Til þess að sjá hápunkta Lesa meira
Íslensku þátttakendurnir 17 í Finnlandi stóðu sig vel!
Í dag lauk keppni á Finnish International Junior Championship. Besta árangri íslensku keppendanna 17 náði Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, sem varð í 2. sæti í sínum aldursflokki 14 ára og yngri stráka. Glæsilegur árangur það!!! Sjá má lokastöðuna í Finnish International Junior Championship með því að SMELLA HÉR: Strákaflokkur 14 ára og yngri (þátttakendur eru 48): 2. sæti Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, 7 yfir pari, (74 73 76) 4. sæti Kristófer Karl Karlsson, GKj, 15 yfir pari, (82 74 75 ) 5. sæti Ingvar Andri Magnússon, GR, 16 yfir pari, (75 81 76) 14. sæti Ingi Rúnar Birgisson, GKG, 24 yfir pari, (86 78 76) T-19 Bætti sig um 8 högg!!! 32. Lesa meira
Eimskipsmótaröðin 2014 (4): Úrslit e. 1. dag á Íslandsmótinu í holukeppni í kvennaflokki
Fyrsta keppnisdegi af þremur á Securitasmótinu-Íslandsmótinu í holukeppni er lokið en mótið er fjórða mót Eimskipsmótaraðarinnar. Í dag voru leiknar tvær umferðir af þremur í riðlakeppninni en leikið er í 8 riðlum í karla og 8 riðlum í kvennaflokki. Á morgun fer síðasta umferðin í riðlum fram og að henni lokinni þá kemur í ljós hvaða kylfingar komast áfram í 8 manna úrslit, en einn kylfingur fer upp úr hverjum riðli. Hér að neðan má sjá hvernig leikirnir fóru í riðlunum og hér er úrslitaskjalið. Kvennaflokkur. Riðill 1: Sunna Víðisdóttir (GR) , Hildur Rún Guðjónsdóttir (GK), Hansína Þorkelsdóttir (GKG), Hekla Sóley Arnarsdóttir (GK). 1. Umferð: Sunna sigraði Heklu 5/3, Hildur Rún sigraði Lesa meira










