Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 2. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Bjarki Pétursson – 2. desember 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Bjarki Pétursson. Bjarki Pétursson er fæddur 2. desember 1994 og á því 28 ára afmæli í dag. Bjarki er afrekskylfingur í Golfklúbbi Borgarness (GKB) og hefir m.a. orðið klúbbmeistari GB 5 sinnum í röð!!! Bjarki var m.a. valinn efnilegasti kylfingur Íslands á lokahófi GSÍ, 10. september 2011. Árið 2011 tók Bjarki þátt í Duke of York mótinu á Hoylake vellinum hjá Royal Liverpool klúbbnum og náði 16. sæti, sem er góður árangur í ljósi þess að veðrið var að leika keppendur grátt alla dagana. Árið 2011 var Bjarka gott en hann varð Íslandsmeistari í flokki 17-18 ára pilta bæði í holukeppni og höggleik og m.a. kjörinn Íþróttamaður Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2022 | 18:00

Ólafur Björn afreksstjóri GSÍ hefir valið 43 kylfinga í landsliðshóp

Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri Golfsambands Íslands, valdi á dögunum 43 leikmenn í landsliðshóp GSÍ. Leikmennirnir koma frá 10 klúbbum – þar af einum frá Svíþjóð. Flestir koma frá GR, GM og GKG. Yngstu leikmennirnir eru fæddir árið 2009 og sá elsti er fæddur árið 1988. Meðaldur hópsins er 19 ár en allir leikmenn hópsins eru áhugakylfingar þar sem að atvinnukylfingar eru ekki gjaldgengir í verkefnin sem íslensku landsliðin taka þátt í. Klúbbur Fjöldi leikmanna í hópnum Golfklúbbur Reykjavíkur – GR 10 Golfklúbbur Mosfellsbæjar – GM 10 Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar – GKG 10 Golfklúbbur Akureyrar – GA 4 Golfklúbburinn Keilir – GK 3 Golfklúbbur Selfoss – GOS 2 Nesklúbburinn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hildur Mikaelsdóttir – 1. desember 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Hildur Mikaelsdóttir, en hún fæddist 1. desember 1957 og því 65 ára afmæli í dag. Komast á á Facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan Hildur Mikaelsdóttir – 65 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar eru: Lee Trevino, 1. desember 1938 (84 ára); Aðalsteinn Bergdal, 1. desember 1949 (73 ára); Audna Hodd Jonatansdottir, 1. desember 1973 (49 ára); Hunter Haas, 1. desember 1976 (46 ára); Sölusíðan Mín, 1. desember 1988 (34 ára); Matt Haines, 1. desember 1989 (33 ára); Whitney Hillier (áströlsk), f. 1. desember 1990 (32 ára); Greiðan Hárgreiðslustofa ….. og ….. Golf 1 óskar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 1. 2022 | 07:00

Til hamingju Ísland – 1. desember 2022!

Í dag er Fullveldisdagurinn og við höldum upp á að Ísland hlaut fullveldi þann 1. desember 1918 frá Danmörku. Fullveldi felur í sér að fara með æðstu stjórn, dóms-, löggjafar- og framkvæmdavald, t.a.m. skv. kenningunni um þrískiptingu ríkisvalds yfir landsvæði eða hóp fólks. Það er ýmist ríkisstjórn eða þjóðhöfðingi sem fer með fullveldið.  Ísland hlaut fullveldi í dag fyrir nákvæmlega 104 árum, en varð ekki sjálfstætt fyrr en 17. júní 1944. Ástæðan er sú að Íslendingar viðurkenndu danska konunginn áfram sem þjóðhöfðingja sinn og utanríkisstefna Íslands var áfram í höndum Dana. Golf 1 óskar kylfingum landsins, sem öðrum Íslendingum til hamingju með daginn!


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 30. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Arnar Halldórsson og Anthony Kang – 30. nóvember 2022

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Arnar Halldórsson og Anthony Kang. Þeir eru báðir fæddir 30. nóvember 1972 og fagna því 50 ára stórafmæli í dag!!! Anthony Kang gerðist atvinnumaður í golfi 1996 og á í beltinu einn sigur á Evróputúrnum þ.e. á Maybank Malasía Open árið 2009 og auk þess 3 sigra á Asíutúrnum. Komast má á facebook síðu Arnars til þess að óska honum til hamingju með stórafmælið hér að neðan Arnar Halldórsson – 50 ára – Innilega til hamingju!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Steinunn Fjóla Jónsdóttir, 30. nóvember 1970 (52 ára); Alessandro Tadini, 30. nóvember 1973 (49 ára); Sigursteinn Ingvar Rúnarsson, f. 30. nóvember Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2022 | 18:00

GO: Íslandsmeistarafáninn kominn í hendur GO

Íslandsmótið í golfi 2023 fer fram á Urriðavelli dagana 10.-13. ágúst. Þetta verður í annað sinn sem Golfklúbburinn Oddur er gestgjafi mótsins en árið 2006 fór Íslandsmótið fram í fyrsta sinn á Urriðavelli. Þar fögnuðu þau Helena Árnadóttir, GA, og Sigmundur Einar Másson, GKG, Íslandsmeistaratitlunum. Á formannafundi GSÍ sem fram fór þann 12. nóvember s.l. tóku forsvarsmenn GO við Íslandsmótsfánanum. Forsvarsmenn Golfklúbbs Vestmannaeyja höfðu ekki tök á því að afhenda fánann samkvæmt hefðinni – og tóku þau Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, og Viktor Elvar Viktorsson, formaður mótanefndar GSÍ, það verkefni að sér. Kári Sölmundarson, formaður GO, og Þorvaldur Þorsteinsson, framkvæmdastjóri GO, tóku við Íslandsmótsfánanum. Eins og áður segir verður Íslandsmótið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Aron Snær Júlíusson – 29. nóvember 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Aron Snær Júlíusson, GKG. Aron Snær fæddist 29. nóvember 1996 og á því 25 ára afmæli í dag. Hann spilaði í bandaríska háskólagolfinu, með liði Louisiana Lafayette, The Ragin Cajuns og stóð sig vel. Af einstökum afrekum Aron Snæs mætti sem dæmi nefna að hann varð klúbbmeistari GKG 2015 og sigraði í Einvíginu á Nesinu 2015; hann setti vallarmet á Jaðrinum 2014 – 67 högg; hann varð stigameistari GSÍ á Íslandsbankamótaröðinni 2013 í piltaflokki tók m.a. þátt í Duke of York mótinu 2013 og sigraði í Unglingaeinvíginu í Mosfellsbæ, árið 2012 og þá er fátt eitt talið. Allt frá árinu 2017 hefir Aron Snær fyrir sér í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2022 | 18:00

LET: Hedwall sigraði á Andalucia Costa del Sol Open de España

Það var hins sænska Caroline Hedwall (vinkona og um tíma skólafélagi Eyglóar Myrru Óskarsdóttur í Oklahoma State), sem stóð uppi sem sigurvegari á móti vikunnar á Andalucia Costa del Sol Open de España. Mótið fór fram dagana 24.-27. nóvember 2022, á Alferini Golf í Benhavis í Andaluciu. Sigur Hedwall kom eftir bráðabana við hina svissnesku Morgane Metraux, en báðar léku á samtals 18 undir pari. Caroline Hedwall er fædd 13. maí 1989 og því 33 ára. Hún gerðist atvinnumaður 2010 og hefir á ferli sínum sigraði í 16 atvinnumannsmótum. Þetta er 7. sigur Hedwall á LET og sá fyrsti síðan 2018. Hin sænska Linn Grant varð í 3. sæti á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Steinunn Sæmundsdóttir – 28. nóvember 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Steinunn Sæmundsdóttir, GR, tvöfaldur Íslandsmeistari í golfi í flokki 50+ 2010 og 2011 sem og Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ með sveit eldri kvenna í GR, þ.e. 2011, 2012 og 2013. Steinunn fæddist í Reykjavík 28. nóvember 1960. Hún byrjaði í golfi 14 ára og gekk í GR 1974. Aðaldriffjöðurin í golfleiknum var bróðir Steinunnar, Óskar en hún dró oft fyrir hann. Jafnhliða fjölda Íslandsmeistaratitla í golfi og klúbbmeistaratitla hjá GR er afmæliskylfingurinn okkar 12-faldur Íslandsmeistari á skíðum. Í dag er Steinunn með 5,5 í forgjöf. Steinunn er 4 barna móðir þeirra Sæunnar Ágústu 38 ára; Hlyns Heiðars, 38 ára; Söndru Rós, 25 ára og Sigrúnar Ásu 21 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 27. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Helgi Steinar Jóhannsson – 27. nóvember 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Helgi Steinar Jóhannsson.  Hann er fæddur 27. nóvember 2002 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til afmæli hér að neðan Helgi Steinar Jóhannsson – 20 ára – Innilega til hamingju með stórafmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ferðafélag Siglufjarðar (95 ára); Hisayuki Sasaki, 27. nóvember 1964 (58 ára); Þráinn Bj Farestveit., 27. nóvember 1964 (58 ára); Danielle Ammaccapane 27. nóvember 1965 (57 ára); Ragnheidur Arngrímsdóttir, 27. nóvember 1971 (51 árs);  Helmut Müller 27. nóvember 1973 (49 ára); Adrienne Bernadet, 27. nóvember 1984 (38 ára); Neglur Og Fegurð Eva, 27. nóvember 1984 Lesa meira