Steinunn Sæmundsdóttir – Innilega til hamingju með afmælið!!!
Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 28. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Steinunn Sæmundsdóttir – 28. nóvember 2022

Afmæliskylfingur dagsins er Steinunn Sæmundsdóttir, GR, tvöfaldur Íslandsmeistari í golfi í flokki 50+ 2010 og 2011 sem og Íslandsmeistari í sveitakeppni GSÍ með sveit eldri kvenna í GR, þ.e. 2011, 2012 og 2013.

Steinunn fæddist í Reykjavík 28. nóvember 1960. Hún byrjaði í golfi 14 ára og gekk í GR 1974. Aðaldriffjöðurin í golfleiknum var bróðir Steinunnar, Óskar en hún dró oft fyrir hann. Jafnhliða fjölda Íslandsmeistaratitla í golfi og klúbbmeistaratitla hjá GR er afmæliskylfingurinn okkar 12-faldur Íslandsmeistari á skíðum. Í dag er Steinunn með 5,5 í forgjöf.

Steinunn er 4 barna móðir þeirra Sæunnar Ágústu 38 ára; Hlyns Heiðars, 38 ára; Söndru Rós, 25 ára og Sigrúnar Ásu 21 árs. Eins á Steinunn 4 barnabörn: þá Hlyn Viðar 12 ára og Henrik Viðar 11 ára, Jóhannes Viðar 14 ára og Steinunni Lilju 12 ára.

Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Steinunni með því að SMELLA HÉR:

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan:

Steinunn Sæmundsdóttir – Innilega til hamingju með afmælið!!!

Steinunn Sæmundsdóttir – 62 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Dick Rhyan, 28. nóvember 1934 (88 ára); Atli Þór Þorvaldsson, 28. nóvember 1963 (59 ára); David Ecob, 28. nóvember 1965 (57 ára); Anna Rún Sigurrósardóttir, GO, f. 28. nóvember 1968 – d. 1. febrúar 2014 (hefði orðið 54 ára); Evan Droop, 28. nóvember 1970 (52 ára); Vaughn Groenewald, 28. nóvember 1974 (spilar á Sólskinstúrnum, 48 ára) og Angela Stanford f. 28. nóvember 1977 (45 ára); Sveinn Orri Snæland, GR, 28. nóvember 1981 (41 árs)…. og ….

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is