Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2014 | 12:29

GK: Atli Már með ás í Grindavík!

Atli Már Grétarsson, GK, fór holu í höggi á 15. braut á Húsatóftavelli í Grindavík. Þađ sem er enn merkilegra er ađ 15 holan par-4 og er 270 metrar. Bylmingshögg þetta sem Atli Már sló – en brautin liggur reyndar í hundslöpp og er hægt að velja um að spila hana alla eða stytta sér leið og slá beint á pinna, sem Atli Már gerði! Golf 1 óskar Atla Má innilega til hamingju með draumahöggið!!!


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2014 | 12:15

Evróputúrinn: 1. sigur Levy kom í Kína

Frakkinn Alexander Levy vann sinn fyrsta sigur á Evrópumótaröðinni í Guangzhou, Kína nú fyrr í dag á Volvo China Open. Hann lék á samtals 19 undir pari, 269 höggum (68 62 70 69). Sigurinn var sannfærandi en Levy, sem vann sér inn € 389,151 (um 60 milljónir íslenskra króna) átti 4 högg á þann sem varð í 2. sæti: Englendinginn Tommy Fleetwood. Fleetwood lék á samtals 15 undir pari, 273 höggum (70 68 67 68). Til þess að sjá lokastöðuna á Volvo China Open SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2014 | 11:43

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá sigraði á Mountain West Conference Champ.!!!

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og golflið Fresno State „The Bulldogs“ tóku þátt í Mountain West Conference Championship svæðismótinu, en mótinu lauk í gær.  Mótið stóð dagana  24.-26. apríl 2014 og þátttakendur voru 45 frá 9 háskólum. Mótið fór fram á Rancho Mirage, í Kaliforníu þar sem Kraft Nabisco risamót kvennagolfsins er haldið á hverju ári. Guðrún Brá sigraði Mountain West Conference Championship, en þetta er fyrsta mótið sem Guðrún Brá sigrar í, í bandaríska háskólagolfinu!!! Þetta er ekkert annað en stórglæsilegt, en Guðrún Brá er tiltöulega nýbyrjuð í bandaríska háskólagolfinu, byrjaði nú rétt eftir áramót. Guðrún Brá lék á samtals 2 yfir pari, 218 höggum (71 71 76). Lið Fresno State varð Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2014 | 10:00

GA: Vorverkin hafin að Jaðri

Nú er nóg að gera hjá Steindóri og Daniel á Jaðarsvelli; vorverkin komin á fullt með hækkandi sól. Flatirnar eru búnar að vera alveg auðar í talsverðan tíma og þ. 23. apríl s.l. var borið á þær í annað sinn.  Einnig var kveikt á vökvunarkerfinu og þær vökvaðar eftir áburðargjöfina.  Það hefur verið mikill þurrkur undanfarið og því nauðsynlegt að koma vatni á þær. Staðan á vellinum er heilt yfir mjög góð.  Það er ennþá þónokkur snjór á vellinum en hann fer minnkandi dag frá degi í veðurblíðunni sem hefur herjað á Akureyri undanfarna daga. Eins og þetta horfir núna þá eru einungis tvær flatir, sem eru illa farnar, annað Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2014 | 07:30

Hvað er í pokanum hjá Seung-yul Noh?

Eftirfarandi í poka suður-kóreanska kylfingsins Seung-yul Noh: Dræver: VR_S Covert 2.0 Tour Brautartré: VR_S Covert Fairway Woods Járn: VR Pro Blade Irons Fleygjárn: VR Forged fleygjárn Pútter: Method 006 Putter Bolti: RZN Platinum Golfklæðnaður:  Nike Golf Tour Premium Sport Performance Collection Golfskór: Nike Lunar Control


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2014 | 07:00

Hver er kylfingurinn: Seung-yul Noh?

Noh Seung-yul frá Suður-Kóreu er í 1. sæti á Zurich Classic fyrir lokahringinn, sem leikinn verður í kvöld. Seung-yul fæddist í Gangwon-do í Suður-Kóreu, 29. maí 1991 og er því 22 ára. Seung-yul byrjaði að spila golf 7 ára eftir að pabbi hans gaf honum fyrsta settið. Seung-yul æfði sig m.a. með því að slá bolta á ströndinni nálægt heimili sínu í Seoul áður en hann fór í skólann og eftir að hann kom heim úr skólanum varði hann öllum tíma sínum á æfingasvæðinu.  Seung-yul spilaði líka tennis, fótbolta og hafnarbolta áður en hann sneri athyglinni alfarið að golfi. Hann gerðist síðan atvinnumaður 9 árum síðar, aðeins 16 ára, árið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2014 | 06:30

PGA: Seung-Yul Noh efstur fyrir lokahring Zurich Classic

Það er  Seung-Yul Noh frá Suður-Kóreu, sem er efstur eftir 54 leiknar holur á Zurich Classic á TPC Louisiana, í Avondale. Noh er búinn að spila á samtals 18 undir pari, 198 höggum (65 68 65). Í 2. sæti aðeins 2 höggum á eftir Noh er Keegan Bradley, sem búinn er að spila á samtals 16 undir pari, 200 höggum (69 66 65). Robert Streb er síðan í 3. sæti á 15 undir pari og 3 deila 4. sætinu á samtals 14 undir pari hver: Ben Martin (sem leiddi 2 fyrstu dagana); Andrew Svoboda og Jeff Overton. Hæst „rankaði“ maður mótsins, Justin Rose, er í 20. sæti ásamt 7 öðrum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 27. 2014 | 06:00

LPGA: Lewis á 1 högg á Ko fyrir lokahringinn á Swinging Skirts

Fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Stacy Lewis á 1 högg á hina ungu, nýsjálensku Lydíu Ko, á Swinging Skirts LPGA Classic og heldur því forystunni fyrir lokahring mótsins, sem fram fer í dag. Lewis er samtals búin að leika á 10 undir pari, 206 höggum (69 69 68). Ko er hins vegar á samtals 9 undir pari, 207 höggum (68 71 68).  Það stefnir eiginlega í einvígi milli þeirra í kvöld. Í 3. sæti er Jenny Shin, á samtals 6 undir pari; í 4. sæti er Hee Young Park á samtals 5 undir pari og 5. sætinu deila hin kínverska Shanshan Feng, PK Kongkraphan og Karine Icher allar á samtals Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Laufey Sigurðardóttir – 26. apríl 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Laufey Sigurðardóttir, GO. Laufey er fædd 26. apríl 1967 og á því 47 ára afmæli í dag Laufey hefir tekið þátt í mörgum innanfélagsmótum, m.a. púttmótum hjá GO sem opnum mótum og staðið sig vel. Hún er í stjórn Golfklúbbsins Odds. Laufey er gift Bjarka Sigurðssyni og eiga þau synina Sigurð Björn og Arnór Inga. Komast má á Facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Laufey Sigurðardóttir Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Mac O’Grady, 26. apríl 1951 (63 árs);  Nancy Scranton, 26. apríl 1961 (53 árs); Clodomiro Carranza, 26. apríl 1982 (Argentínumaðurinn á 32 ára); J.B. Holmes, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 26. 2014 | 12:30

PGA: Ben Martin enn í 1. sæti í hálfleik á Zurich Classic – hápunktar 2. dags

Ben Martin leiðir enn eftir 2. dag Zurich Classic á TPC Louisiana, í Avondale. Martin er búinn að spila á samtals 15 undir pari, 129 höggum (62 67). Í 2. sæti er Andrew Svoboda 3 höggum á eftir á samtals 12 undir pari, 132 höggum (64 68). Þriðja sætinu deila síðan þeir Seung-yul Noh og Robert Streb á samtals 11 undir pari, hvor. Sá sem er hæst „rankaður“ í mótinu, Justin Rose er í 22. sæti á samtals 6 undir pari. Meðal þeirra sem ekki komust í gegnum niðurskurð að þessu sinni eru Ernie Els, Billy Horschel og Thorbjörn Olesen. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag Zurich Classic SMELLIÐ Lesa meira