Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2014 | 09:00
PGA: Kylfusveinn Hadley datt og beyglaði pútter hans – Myndskeið

Chesson Hadley er nýliði á PGA Tour – einn af „nýju strákunum“ sem Golf 1.is á eftir að kynna – en hefir það sem af er keppnistímabils vakið nokkra athygli á sér og er eflaust maður sem við eigum eftir að heyra meira af í framtíðinni. Hann varð í 3. sæti á peningalista Web.com Tour og hlaut þannig keppnisrétt á PGA Tour keppnistímabilið 2013-2014. Hadley hóf leik í Wells Fargo mótinu þ.e. spilaði fyrstu tvo hringi mótsins en komst ekki í gegnum niðurskurð. Á 2. hring, þ.e. í gær, varð kylfusveinn Hadley fyrir því óláni að detta með allar kylfur Hadley og beyglaði pútter Hadley í fallinu, þ.e. skaftið beyglaðist. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2014 | 04:00
LPGA: Lee og Masson leiða í hálfleik í Texas

Það eru þær Meena Lee frá Suður-Kóreu og þýska Solheim Cup stjarnan Caroline Masson, sem leiða eftir 2. dag North Texas LPGA Shootout. Báðar eru þær búnar að spila á samtals 8 undir pari, 134 höggum; Lee (70 64) og Masson (67 67). Þriðja sætinu deila Natalie Gulbis og fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Stacy Lewis, á samtals 7 undir pari, 135 höggum, hvor. Í 5. sæti á samtals 6 undir pari, 136 höggum er Christina Kim. Meðal þeirra sem ekki komust í gegnum niðurskurð voru: Lizette Salas, Morgan Pressel, Carlota Ciganda, Sandra Gal og Laura Davies. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag North Texas LPGA Shootout SMELLIÐ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2014 | 01:00
PGA: Cabrera og Flores í forystu í hálfleik Wells Fargo – Hápunktar 2. dags

Ángel Cabrera frá Argentínu og Martin Flores frá Bandaríkjunum eru í forystu á Wells Fargo mótinu eftir 2. dag keppni. Þeir eru báðir búnir að spila á samtals 9 undir pari, 135 höggum; Flores (67 68) og Cabrera (66 69) Einn í 3. sæti er Justin Rose, einu höggi á eftir á samtals 8 undir pari, 136 höggum (69 67). Til þess að sjá heildarstöðuna á Wells Fargo mótinu eftir 2. keppnisdag SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Wells Fargo mótinu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2014 | 20:00
Viðtalið: Haukur Már Ólafsson, GKG

Viðtalið í kvöld er við sigurvegara 1. maí móts GHR og Grillbúðarinnar, en mótið markar upphaf golfsumarsins hjá fjölda kylfinga. Sigurskorið á Hellu í gær var með glæsilegra móti 4 undir pari, 66 högg!!! Sigurvegarinn er nýtekinn við starfi golfþjálfara og eru börn og unglingar í klúbbi hans afar heppin að sögn kunnugra, að hann skuli hafa tekið þjálfarastarfið að sér og kylfingar á borð við Alfreð Brynjar Kristinsson hafa látið hafa eftir sér að þeir vildu gjarnan vera barn eða unglingur í GKG í dag. Hér fer viðtalið við sigurvegara 1. maí mótsins á Hellu 2014: Fullt nafn: Haukur Már Ólafsson. Klúbbur: GKG. Hvar og hvenær fæddistu? Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2014 | 19:00
LET ACCESS: Valdís Þóra á 6 yfir pari e. 1. dag í Sviss

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, hóf í dag keppni á Association Suisse de Golf Ladies Open mótinu á LET Access mótaröðinni, sem er einskonar 2. deild og stökkbretti inn á Evrópumótaröð kvenna (LET). Mótið fer fram á golfvelli Gams-Werdenberg golfklúbbsins, í Gams, Sviss. Valdís hóf leik á 10. teig og lék 1. hringinn á 6 yfir pari, 78 höggum. Skorkort Valdísar Þóru var ansi skrautlegt en á því voru m.a. 4 fuglar, 3 skollar og 3 skrambar. Sérstaklega var +3 skrambinn á par-4 17. holunni slæmur. Valdís Þóra deilir 91. sætinu eftir 1. dag með 8 öðrum kylfingum, m.a. hinni svissnesku Caroline Rominger. Efstar eftir 1. dag eru hin sænska Emma Westin og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2014 | 18:00
Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Kevin Foley (2/25)

Efstu 25 af peningalista Web.com Tour hlutu kortin sín á PGA Tour. Í dag verður kynntur sá, sem varð í 24. sæti, en það er Kevin Foley. Foley lék eins og efstu 25 af peningalista Web.com Tour á Web.com Tour Finals, um stöðu og varð hann í 47. sæti og hlaut ekki aukinn status við að taka þátt í því móti. Í báðum tilvikum rétt slapp hann inn á Web.com Tour og hefir ekkert gengið sérlega vel frá upphafi 2013-2014 tímabilsins, þ.e. október á s.l. ári. Kevin Foley er fæddur 24. maí 1987 í New Brunswick, New Jersey og er því 26 ára. Kevin er sá yngsti af 8 systkinum og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2014 | 15:00
Afmæliskylfingur dagsins: Auður Guðjónsdóttir – 2. maí 2014

Það er Auður Guðjónsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Auður er fædd 2. maí 1943 og á því 71 ára afmæli í dag!!! Auður er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Komast má á facebooksíðu Auðar til þess að óska henni til hamingju með merkisafmælið hér að neðan: Auður Guðjónsdóttir · 71 árs afmæli – Innilega til hamingju með daginn!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Mike Joyce, 2. maí 1939 (74 ára); Zhang Lian-wei, 2. maí 1965 (48 ára) ….. og .. Örninn Golfverslun · 17 ára Aggystar ísland · 34 ára Hilmir Heiðar Lundevik · 32 ára Guðmundur Ragnarsson · 35 ára Trúbador ÁsgeirKr · 42 ára Birna Gudmundsdottir Herdís Sveinsdóttir · 58 ára Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2014 | 11:00
PGA: Cabrera efstur á Wells Fargo mótinu – hápunktar 1. dags

Það er Argentínumaðurinn Ángel Cabrera sem tekið hefir forystu eftir upphafsdag Wells Fargo mótsins, en það hóst í gær að venju í Quail Hollow Club í Charlotte, Norður-Karólínu. Cabrera lék fyrsta hringinn á 6 undir pari, 66 höggum; var með 7 fugla og 1 skolla. Í 2. sæti skammt undan eru Martin Flores og Phil Mickelson á 5 undir pari, 67höggum. Til þess að sjá stöðuna í heild eftir 1. dag Wells Fargo mótsins SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 1. dags Wells Fargo mótsins SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2014 | 10:15
Evróputúrinn: Pittayarat efstur í hálfleik La Laguna

Mót vikunnar á Evrópumótaröðinni er The Championship at Laguna National. Mótið fer fram í Laguna National G&CC í Tampines, Singpúr. Þegar mótið er hálfnað er það Filipseyingurinn Panuphol Pittayarat sem er í forystu er samtals búinn að spila á 13 undir pari, 131 höggi (63 68). Er þetta óbreytt staða frá deginum áður, þar sem Pittayarat leiddi. Öðru sætinu deila 3 kylfingar: Bandaríkjamaðurinn David Lipsky, Felipe Aguilar frá Chile og Ástralinn Scott Hend, en þeir hafa allir leikið á samtals 12 undir pari. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á The Championship at Laguna National SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 2. dags The Championship at Laguna National SMELLIÐ Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2014 | 10:00
GKJ: Ingvar Andri sigraði eftir bráðabana – Margrét Óskars með flesta punkta (37) í Opna 1. maí mótinu

Það voru 202 (þar af 29 kvenkylfingar) sem luku keppni í Opna 1. maí móti GKJ. Mótinu lauk ekki fyrr en að ganga 22:00 í gær en 3 mættu á teig í bráðabana, sem fara þurfti fram um 1. sætið í höggleiknum, en 3 kylfingar voru með sama skor, 5 yfir pari, 77 högg. Það var par-3 1. brautin, sem spiluð var í bráðabananum og þar var það meistari Unglingaeinvígisins í Mosó 2013, Ingvar Andri Magnússon, GR, sem sigraði með glæsifugli! Hann fær í verðlaun 25.000 kr. gjafakort í Bónus. Í 2. sæti í höggleik án forgjafar varð Adam Örn Stefánsson, GSE og í 3. sæti varð heimamaðurinn Guðjón Reyr Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

