Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 14. 2014 | 08:00

GOS: Aron Emil sigraði á 1. móti 2014 hjá GOS!

Laugardaginn 10.mai var flottur dagur á Svarfhólsvelli, en þá hittust félagar í GOS kl 9:45 og gengu um og hreinsuðu völlinn, löguðu stíga ofl. Eftir vorhreinsum var farið í mat og síðan var fyrsta mót ársins sett á stað. Golfklúbbur Selfoss þakkar öllum sem komu og hálpuðu til að gera völlinn flottan! Hinn efnilegi 12 ára peyji Aron Emil Gunnarson spilaði best allra og sigraði á 45 punktum, sem er frábær árangur!!! Úrslitin í mótinu: 1 Aron Emil Gunnarsson * GOS 27 F 21 24 45 45 45 2 Gísli Björnsson * GOS 34 F 17 25 42 42 42 3 Bergur Sverrisson* GOS 3 F 20 22 42 42 42 4 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 14. 2014 | 07:00

Hvað var í sigurpoka Kaymer?

Þýski kylfingurinn Martin Kaymer sigraði á því sem margir nefna 5. risamót golfsins: The Players á TPC Sawgrass s.l. sunnudag (11. maí 2014). Eftirfarandi var í sigurpoka hans:  Dræver: TaylorMade SLDR 460 (8.5°) Skaft: Graphite Design Tour AD DI-6X 3-tré: TaylorMade SLDR (TS, 14°) Skaft: Graphite Design Tour AD DI-7X Blendingur: TaylorMade SLDR (17°) Skaft: Graphite Design Tour AD DI-85X Hybrid Járn: TaylorMade Tour Preferred MC (3-PW) Sköft: True Temper Dynamic Gold X100 Tour Issue Fleygjárn: TaylorMade XFT TP (54 bent í 51°, 58°) Sköft: True Temper Dynamic Gold X100 Tour Issue Pútter: Ping Karsten 1959 Anser 2 Golfbolti: TaylorMade Lethal


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2014 | 19:30

Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Matt Bettencourt (10/25)

Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá, sem varð í 16. sæti, en það er  Matt Bettencourt.  Bettencourt lék eins og öllum efstu 25, af peningalista Web.com Tour, stendur til boða á Web.com Tour Finals, um bætta stöðu og varð í 48. sæti, þ.e. bætti stöðu sína ekki. Matt Bettencourt fæddist 12. apríl 1975 í Alameda, Kaliforníu og er því 39 ára. Í dag býr hann í Duncan, Norður-Karólínu.   Bettencourt gerðist atvinnumaður í golfi 2001 eftir að hafa útskrifast frá Modesto Junior College. Alls hefir Bettencourt sigrað 6 sinnum á atvinnumannsferli sínum, 1 sinni á PGA Tour Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2014 | 19:00

Spieth hrifinn af íþróttamannslegri framkomu Kaymer

Íþróttamannsleg framkoma Martin Kaymer var öllum ljós bæði þeim sem á horfðu í sjónvarpi en nú hefir helsti keppinautur Kaymer á The Players, Jordan Spieth, lýst hrifningu sinni á framkomu þýska kylfingsins. Heimamenn í Flórída gerðust heldur háværir og hvöttu Spieth óspart áfram og fögnuðu hverju því sem misfórst hjá Kaymer, sem e.t.v. er bara smá upphitun fyrir því sem koma skal á Ryder Cup í Gleneagles. Eftir því sem leið á hringinn varð Spieth sífellt ergilegri út í sjálfan sig og þegar hann missti 1 metra pútt eitt sinn kom Kaymer til hjálpar, sem hann hefði alls ekki þurft að gera. Spieth sagði að Kaymer hefði komið til sín Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2014 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Saga Ísafold Arnarsdóttir – 13. maí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er  Saga Ísafold Arnarsdóttir. Saga Ísafold er fædd 13. maí 1994 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Hún er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Saga Ísafold hefir m.a. verið í afrekshóp GSÍ 2012 (B-hóp) og var ein af 6 stúlkum úr Keili sem spiluðu á Opna undir 18 ára mótinu á Írlandi í apríl 2012. Eins spilaði Saga Ísafold á Eimskipsmótaröðinni 2012 og varð m.a. í 13. sæti af konunum, á 1. móti mótaraðarinnar í Leirunni. Saga Ísafold varð einnig Íslandsmeistari í sveitakeppni unglinga (í stúlknaflokki) með A-sveit Keilis í Þorlákshöfn. Komast má á facebook síðu Sögu Ísafoldar hér að neðan til þess að óska henni Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2014 | 16:00

Els æfir sig með stuttum pútter!

Ernie Els hefir spilað í 9 mótum á s.l. 10 vikum og segir hann að þó að niðurstöðurnar hafi ekkert verið frábærar og hann hafi ekki komist svo oft í gegnum niðurskurð þá verði að líta á heildarmyndina. Þannig segir Els eftirfarandi á vef Sólskinstúrsins: „Það hefir virkilega verið indælt að spila hér og nú þegar við erum í Flórída er það ekki virkilega erfitt heldur. Lífið er gott hér, Liezl og krökkunum líður vel og ég nýt þess að einbeita mér að PGA Tour. Ég hef ekki gert það síðan… ja, næstum aldrei. Öll ferðalögin um heiminn og síðan að búa í Englandi … það gerist ekki aftur. Orkustig Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2014 | 12:00

Lawrie segir sjokkerandi að leik skuli ekki hafa verið hætt eftir að kylfusveinn dó á Madeira Open – Hann dró sig úr mótinu

Skoski kylfingurinn Paul Lawrie segir sjokkerandi að leik skuli ekki hafa verið hætt eftir að kylfusveinn Alastair Forsyth, Iain McGregor dó á 9. flöt á lokahring Madeira Islands Open, sl. sunnudag (11. maí 2014). Forsyth sagði að McGregor myndi hafa viljað að leik yrði haldið yrði haldið áfram.  Það eru ekki allir sammála því. Paul Lawrie og tveir aðrir kylfingar Evrópumótaraðarinnar drógu sig sjálfir úr mótinu af virðingu við McGregor. „Þetta var virðingarvottur við hann (McGregor). Ég hef verið hér í 12 ár og ég þekkti hann allan tímann. Hann (McGregor) var elskulegur maður. Að mínu áliti var sjokkerandi, algjörlega sjokkerandi að leik skuli hafa verið haldið áfram,“ sagði Lawrie. „Ég Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2014 | 09:15

Líf og fjör á Golfdögum – Nöfn vinningshafa

Það var mikið líf og fjör á golfdögum Kringlunnar og GSÍ, sem haldnir voru dagana 8.-11.maí., hátt í 60.000 manns lögðu leið sína í Kringluna þessa daga. Á fjórða tug verslana buðu golftengd tilboð auk þess sem þær tengdu útstillingar sínar golfinu á afar skemmtilegan hátt.  Fjöldi golfklúbba kynntu starfsemi sína á sérstakri golfsýningu sem fram fór laugardaginn 10. maí.  Einnig nýttu nokkrir golftengdir aðilar sér tækifærið og kynntu vörur sínar og þjónustu. Boðið var upp á ýmsa þrautir eins og lengsta upphafshögg en á annað hundrað kylfingar tóku þátt í þeirri keppni.  Afrekskylfingar á vegum GSÍ leiðbeindu gestum á tveimur púttflötum sem settar voru upp og gafst gestum kostur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2014 | 09:00

GVS: Dagur sigraði í 2 mótum á sama degi – í seinna skiptið á Skemmumóti GVS! – Hafþór Ægir á 44 pkt.!

Dagur Ebenezersson, GKJ var í hörkugolfstuði s.l. helgi en hann tók þátt í 2 opnum mótum … og sigraði í höggleikshluta þeirra beggja!!! Hann tíaði upp kl. 8:40 á Brautarholtsvelli á Kjalarnesi ásamt félaga sínum Jóni Hilmari Kristjánssyni, GKJ og vann höggleikshluta Opna mótsins á Brautarholtsvelli s.s. Golf 1 hefir áður greint frá SMELLIÐ HÉR:  Ekki nóg með það Dagur fór líka holu í höggi á 8. braut Brautarholtsvallar!!! Dagur og Jón Hilmar keyrðu síðan á Vatnsleysuna og þar var tíað upp að nýju kl. 14:30 ásamt þeir Ágústi Ársælssyni, GVS og Þóri Baldvin Björgvinssyni, GÖ. Og aftur var Dagur  á besta skorinu – lék Kálfatjarnarvöll á glæsilegu 1 undir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 13. 2014 | 08:30

GST: Guðrún Björg og Arnór Tumi sigruðu á Kríumótinu!

Það voru 18 kylfingar sem tóku þátt í Kríumótinu á Garðavelli undir Jökli hjá Golfklúbbi Staðarsveitar, þar af aðeins 1 kvenkylfingur Guðrún Björg Guðjónsdóttir, GVG …. og hún sigraði í mótinu. Keppnisfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf. Guðrún Björg var á 33 punktum 15 á fyrri 9 og 18 á seinni 9. Arnór Tumi Finnsson, GB,  var á besta skorinu, 80 höggum. Sjá má heildarúrslit í punktakeppnishluta Kríumótsins hér að neðan: 1 Guðrún Björg Guðjónsdóttir GVG 28 F 15 18 33 33 33 2 Hjörleifur Þór Jakobsson GST 10 F 14 18 32 32 32 3 Pétur Vilbergur Georgsson GVG 3 F 15 17 32 32 32 4 Kristinn Jónasson GJÓ Lesa meira