Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 2. 2014 | 08:00

GSG: Atli Már á besta skorinu í fiskimótinu

Í gær, fór fram í Sandgerði  1. maí fiskimótið. Keppendur voru 60 þar af 9 kvenkylfingar. Mótið var punktamót og verðlaun veitt fyrir besta skor án forgj og 5 fyrstu sætin í punktakeppni með forgj. Sami keppandi gat ekki unnið til verðlauna í báðum flokkum. Atli Már Grétarsson, GK, lék Kirkjubólsvöll á 3 yfir pari, 75 höggum og var á besta skori keppanda. Hann fékk í verðlaun 4 kg léttsaltaða þorskhnakka og 4 kg bleikju + 1/2 kg harðfisk.   Atli Már var einnig nú nýlega í golffréttum þar sem hann fór holu í höggi á 15. braut Húsatóftavallar. Sjá frétt Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR:   Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2014 | 22:00

GHR: Haukur Már lék best (á 66 höggum!!!) á 1. maí móti GHR og Grillbúðarinnar

Haukur Már Ólafsson, nýr þjálfari barna og unglinga í GKG, var á besta skorinu af þeim 215 (þar af 13 kvenkylfingar), sem luku leik á Strandarvelli í dag, í 1. maí móti GHR og Grillbúðarinnar. Golf 1 var á staðnum og má sjá myndaseríu úr mótinu með því að SMELLA HÉR:  Haukur Már lék Strandarvöll á hvorki meira né minna en 4 undir pari, 66 höggum!!! Hann fékk 7 fugla (á 5., 8., 10., 11., 14., 17. og 18. holu) en því miður líka 3 skolla.  Stórglæsilegur árangur þetta! Haukur Már er fæddur 26. júní 1986 og því 27 ára. Hann er sonur hinnar snjöllu golfdrottningar GKG, Maríu Málfríðar Guðnadóttur, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2014 | 21:00

1. maí mót GHR og Grillbúðarinnar – Myndir

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ingibjörg Guðmundsdóttir – 1. maí 2014

Það er Ingibjörg Guðmundsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Ingibjörg er fædd 1. maí 1964 og á því merkisafmæli í dag!!! Hún er eigandi golfvefverslunarinnar Hissa.is, þar sem margt skemmtilegt fyrir kylfinginn fæst m.a. hinir vinsælu SeeMore pútterar, japönsku Miura kylfurnar og SNAG golfkennsluútbúnaðurinn. Auk þess eru margir eigulegir smáhlutir sem fást s.s. tí, boltamerki, birdiepelar o.m.fl.  Hægt er að smella á auglýsingu Hissa.is hér á síðunni til þess að sjá úrvalið. Ingibjörg er gift Magnúsi Birgissyni (Magga Birgis) golfkennara og eiga þau tvo stráka Pétur og Birgi Björn. Komast má á facebooksíðu Ingibjargar til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Ingibjörg Guðmundsdóttir  (Innilega til hamingju með stórafmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2014 | 14:00

Ryder Cup 2024 fer fram í NY

Ryder Cup keppnin 2024 þ.e. eftir 10 ár mun fara fram á Bethpage Black golfvellinum, uppáhaldi margs íslenska kylfingsins í New York og þar áður þ.e. 2019 mun 101. US PGA Championship risamótið einnig verða haldið á velinum en PGA of America náði samningi við ríkisstjóra NY, Andrew Cuomo þar um. Svarti völlurinn (ens. Black course) er einn af 5 golfvöllum ríkisskrúðgarðsins á Long Island en þar var m.a. Opna bandaríska haldið fyrir 5 árum, þegar Lucas Glove vann fyrsta og eina risatitil sinn til þessa. Nr. 11 á heimslistanum Rory McIlroy er eflaust líka vera ánægður með staðsetningu Ryder bikarsins 2024 vegna þess að hann sigraði á The Barclays þar fyrir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2014 | 12:00

GK: Hreinsunarmótið fer fram 4. maí

Þá er það ákveðið, vinsæla Hreinsunarmótið verður haldið 4. maí n.k. Mæting er fyrir þá sem vilja taka til hendinni klukkan 09:00. Tekið verður á því til 12:30, síðan verður grillað og allir síðan ræstir út klukkan 14:00. GK hvetur félagsmenn sína til að klæða sig eftir veðri og einnig til að taka með sér vinnuvettlinga. Verkefnin verða fjölmörg og nóg fyrir alla að gera. Golfvöllurinn verður síðan opinn fyrir rástímapantanir mánudaginn 5. maí. Keilisfélagar geta byrjað að bóka sig á rástíma á laugardagskvöldið klukkan 20:00. Fyrsti koma fyrstir fá…. GK vonar að veðrið verði öllum hliðhollt í sumar, allir eigi eftir að njóta sumarsins og lækka forgjöfina!  

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2014 | 10:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Andrew Svoboda (1/25)

Efstu 25 af peningalista Web.com Tour hlutu kortin sín á PGA Tour. Byrjað verður  í dag að kynna þann sem varð í 25. sæti og rétt slapp fyrir horn að hljóta PGA Tour kortið sitt.  Svoboda tók hins vegar einnig þátt í Web.com Tour Finals og varð þá í 5. sæti!  Hann vann því svo sannarlega fyrir kortinu sínu á PGA Tour. Svoboda hefir gengið vel það sem af er á PGA Tour en hann varð m.a. T-2 þ.e. deildi 2. sætinu með öðrum nýliða á PGA Tour, Robert Streb, á Zurich Classic nú nýverið. Andrew Svoboda er fæddur í New Rochelle, New York. 2. október 1979 og er því  34 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2014 | 08:30

GS: Róbert Smári sigraði á næstsíðasta mótinu í 50 ára afmælismótaröð GS

Veður var hið besta og Hólmsvöllur í frábæru ásigkomulagi þann 26. apríl s.l., enda var skor margra leikmanna með besta móti á næstsíðasta 50 ára afmælismóti GS. Það má segja að ungur kylfingur úr Golfklúbbi Suðurnesja hafi stolið senunni. Róbert Smári Jónsson (16 ára) lék frábært golf og endaði með 42 punkta og á 70 höggum; var á besta skorinu og með flesta punktanna yfir mótið í heild.  Í 2. sæti í punktunum varð annar heimamaður, Jón Björgvin Guðnason með 40 glæsipunkta og í 3. sæti varð síðan Haukur Ingi Júlíusson, GK á 39 punktum (með 20 punkta á seinni 9 ). Laufey Jóna Jónsdóttir (15 ára) lék einnig afbragðsvel Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 1. 2014 | 08:00

NÝTT!!! Nýju strákarnir á PGA Tour 2013-2014

Golf 1 mun nú hefjast handa við að kynna „nýju strákana“ á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Árið 2013 var reglum um hvernig menn kæmust á sterkustu mótaröð karlkylfinga, þ.e. bandarísku PGA mótaröðina, breytt. Hér áður fyrr voru haldin úrtökumót til þess að komast á PGA Tour og síðan eitt lokaúrtökumót og síðan fengu efstu menn kortin sín beint á PGA Tour. Nú er verið að þyngja leiðina inn á PGA Tour. Leiðin á PGA Tour nú er þannig að fyrst verður að fara í úrtökumót og komast í gegnum lokaúrtökumót til þess að komast inn í 2. deild PGA Tour, Web.com mótaröðina. Á hverju ári fá 25 efstu á peningalista Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 30. 2014 | 19:00

Rory tekur þátt í Opna írska

Rory McIlroy hefir staðfest þátttöku sína í Opna írska, sem fram fer í Cork í júní 2014. Rory er sá síðasti sem boðar þátttöku sína en áður hafa Padraig Harrington, Graeme McDowell og Darren Clarke, staðfest þátttöku, sem þýðir að allir risamótstitilhafar Írlands taka þátt í mótinu. Fyrirliði evrópska Ryder Cup liðsins Paul McGinley, Shane Lowry,  Michael Hoey og John Daly  munu einnig taka þátt í mótinu, sem nú fer fram á Fota Island. „Ég hef aldrei komið á Fota,“ sagði Rory, sem nú nýlega féll í 11. sæti heimslistans. „Reyndar hef ég aldrei almennilega komið til Cork – þannig að ég þekki svæðið ekkert of vel, en ég veit Lesa meira