Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 10. 2014 | 09:00

GR: Úrslit úr 3 daga Meistaramóti GR – Ingvar Andri á 66 2. dag Meistaramóts!!! – Myndir

Í fyrradag, 8. júlí 2014 lauk Meistaramóti GR í þeim flokkum sem léku 54 holur en það eru barna-og unglingaflokkar, öldungaflokkar, 3.flokkur karla, 4.flokkur karla, 5.flokkur karla og 3.flokkur kvenna. Leikið var bæði í Grafarholti og á Korpúlfsstöðum í blíðviðri.  Frosti Eiðsson, hirðljósmyndari GR-inga tók eftirfarandi myndir af meistaramótinu sem sjá má með því að SMELLA HÉR:  Lokahóf barna og unglinga fór fram í golfskálanum í Grafarholti þar sem veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum flokki .  Glæsileg skor sáust í unglingaflokkum og þá ber helst að nefna annan hring Ingvars Andra Magnússonar á Grafarholtsvelli 7. júní en hann lék á 66 höggum eða 5 höggum undir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 10. 2014 | 08:00

Uehara efst snemma dags á Opna breska

Ricoh Opna breska kvenrisamótið hófst í dag á Royal Birkdale golfklúbbnum í Southport, Englandi og er þetta 3. risamót ársins í kvennagolfinu. Mótið stendur dagana 10.-13. júlí 2014. Allir bestu kvenkylfingar heims eru meðal keppenda, þ.á.m. nr. 1 á Rolex-heimslistanum Stacy Lewis, sem er sem stendur í 3. sæti; Charley Hull, Lexi Thompson og Michelle Wie, sem er ansi heit í ár, búin að vinna 1. risamótstitil sinn og spurning hvort hún bæti 2. við? Snemma dags er það japanska stúlkan Ayako Uehara, sem er í forystu á 3 undir pari. Fylgjast má með skori keppenda með því að SMELLA HÉR:     

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2014 | 19:30

Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Michael Putnam (25/25)

Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá síðasti af strákunum heppnu 25, þ.e. sá sem sigraði, þ.e. varð efstur á peningalistanum, varð í  1. sæti, keppnistímabilið 2013, en það er  Michael Putnam.  Putnam  tók  þátt í Web.com Tour Finals eins og öllum efstu 25, af peningalista Web.com Tour, stendur til boða á Web.com Tour Finals, um bætta stöðu og sigraði aftur þ.e. varð í 1. sæti, tók alslemm og gat í raun ekkert gert annað en jafnað frábæran 1. sætis árangur sinn. Michael Putnam fæddist í Tacoma, Washington-ríki,  1. júní 1983 og er því 31 árs. Putnam Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2014 | 18:30

GSS: Úrslit í Meistaramóti barna og unglinga – Myndir

Meistarmót barna og unglinga GSS var haldið dagana 1.-4.júlí á Hlíðarendavelli. Keppt var í 5 flokkum og voru þátttakendur 15 talsins. Sjá má myndir frá verðlaunaafhendingu með því að SMELLA HÉR:  Úrslitin voru sem hér segir. 1 flokkur stelpur 2 x 18 holur – rauðir teigar 1. Telma Ösp Einarsdóttir 262 högg 2. Maríanna Ulriksen 317 högg 1 flokkur strákar 3 x 18 holur – gulir teigar 1. Elvar Ingi Hjartarson 249 högg 2. Hákon Ingi Rafnsson 260 högg 3. Pálmi Þórsson 280 högg 2 flokkur stelpur 3 x 9 holur – rauðir teigar 1. Hildur Heba Einarsdóttir 219 högg 2. Anna Karen Hjartardóttir 230 högg 3. Helga Júlíana Guðmundsdóttir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2014 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Scott Verplank – 9. júlí 2014

Bandaríski kylfingurinn Scott Rachal Verplank fæddist í Dallas, Texas 9. júlí 1964 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Verplank gerðist atvinnumaður í golfi 1986 (þ.e. fyrir 28 árum) og hefir á ferli sínum sigrað í 8 mótum þar af 5 á PGA Tour.  Besti árangur hans í risamóti er T-4 árangur hans 2011 í PGA Championship. Scott Verplank er kvæntur konu sinni Kim og saman eiga þau 4 börn: Scottie, Hannah, Emma og Heidi Ann. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Richard Finch, 9. júlí 1977 (37 ára)   …. og ….. Kristinn Þór Guðmundsson (42 ára) Dagbjört Rós Hermundsdóttir (35 ára) Heiðrún Jónsdóttir (45 ára) Asinn Sportbar (37 ára) Hafliði Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2014 | 17:00

Kristófer Orri bestur íslensku keppendanna á EM piltalandsliða e. 2. dag

Kristófer Orri Þórðarson, GKG lék best af íslensku piltunum á EM piltalandsliða í dag, 2. keppnisdag. Kristófer Orri er búinn að eiga tvo glæsihringi upp á 1 yfir pari, hvorn og er því á samtals 2 yfir pari, 146 höggum (73 73). Leikið er í Oslo golfklúbbnum í Noregi og eru þátttakendur piltalandsliðanna 96 talsins eða alls 16 lið frá jafnmörgum þjóðum. Sem stendur er lið Íslands í 8.-9. sæti ásamt piltalandsliði Frakka. Hægt er að nálgast upplýsingar um mótið og stöðuna.með því að SMELLA HÉR:  T27 – Kristófer Orri Þórðarson Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar,  samtals á  2 yfir pari, 146 höggum (73 73). T35 – Egill Ragnar Gunnarsson Golfklúbbi Kópavogs og Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2014 | 16:30

Gísli Sveinbergs bestur íslensku keppendanna e. 2. dag EM karlalandsliða – lék á 70 höggum!

Gísli Sveinbergsson úr GK lék best okkar manna á 2. degi EM karlalandsliða sem fram fer í Finnlandi. Hann fór upp skortöfluna um heil 28 sæti!!! Keppt er á Linna golfvellinum sem er staðsettur um 100 km frá Helsinki rétt utan við bæinn, Hämeenlinna. Hægt er að nálgast ítarlegar upplýsingar um mótið og skor keppenda má finna með því að  SMELLA HÉR: Keppnisfyrkomulag: Að loknum höggleik fyrstu tvo dagana verður liðum raðað í tvo riðla, A og B, eftir árangri. Fyrstu 8 leika í A riðli og keppa um Evrópumeistaratitilinn á þremur dögum í holukeppni, sæti 1 gegn 8, 2 gegn 7 osfrv. Sæti 9-16 keppa einnig í holukeppni, þjóð Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2014 | 15:45

Ólafía Þórunn best af íslensku keppendunum á EM kvennalandsliða 2. daginn í röð

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir GR lék best af íslensku keppendunum á EM kvennalandsliða í dag 2. keppnisdag en mótið fer fram í Ljubliana, Slóveniu. Fyrstu tvo keppnisdagana er keppt í höggleik þar sem fimm bestu skorin telja eftir hvern dag. Nánari upplýsingar um mótið og skor keppenda má finna með því að  SMELLA HÉR:  T26 – Ólafía Þórunn Kristinsdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur, samtals á 2 yfir pari, 144 höggum (70 74). T37 – Signý Arnórsdóttir Golfklúbbnum Keili, samtals á 3 yfir pari, 145 höggum (73 72). T37 – Ragnhildur Kristinsdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur, samtals á 3 yfir pari, 145 höggum (72 73). T61 – Sunna Víðisdóttir Golfklúbbi Reykjavíkur, samtals á 7 yfir pari, 149 höggum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2014 | 15:00

GHG: Harpa Rós og Erlingur klúbbmeistarar 2014

Meistaramót GHG fór fram dagana 4.-6. júlí s.l. Alls voru þátttakendur 53, sem kepptu í 9 flokkum. Klúbbmeistarar GHG árið 2014 eru formaður klúbbsins Erlingur Arthúrsson og Harpa Rós Björgvinsdóttir, í kvennaflokki. Úrslit í einstökum flokkum voru eftirfarandi: Meistaraflokkur karla: 1 Erlingur Arthúrsson GHG 4 F 34 37 71 -1 80 88 71 239 23 2 Elvar Aron Hauksson GHG 1 F 39 37 76 4 81 82 76 239 23 3 Ólafur Dór Steindórsson GHG 4 F 46 41 87 15 80 83 87 250 34 4 Birgir Rúnar Steinarsson Busk GHG 3 F 43 41 84 12 89 87 84 260 44 Meistaraflokkur kvenna:  1 Harpa Rós Björgvinsdóttir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 9. 2014 | 14:00

Hápunktur á ferli Poulter… og það er ekki 1 af 4 Ryder Cup sigrum hans – Myndskeið

Ian Poulter er einn þeirra sem ekki hafa sigrað á risamóti. Hann fer því býsna vonglaður í Opna breska sem hefst í næstu viku á Royal Liverpool vellinum. Best er Poulter þekktur fyrir 4 sigra sína með liði Evrópu í Ryder Cup, en hann mun jafnframt reyna að bæta 5. sigrinum við á Gleneagles í haust. Eftirminnilegastur af þessum sigrum Poulter með liði Evrópu í Rydernum er eflaust kraftaverkið í Medinah þar sem Poulter vann alla 4 leiki sína og það var ekki hvað síst fyrir hans tilstuðlan að Evrópa sneri við taflinu frá því að vera 10-6 undir fyrir lokadaginn í 14 1/2 – 13 1/2 sigurs daginn eftir Lesa meira