Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 30. 2014 | 08:00

Sigurbolti Rory á Opna breska til sölu – Myndskeið

Eftir að Rory McIlory sigraði á Opna bandaríska henti hann bolta sínum út í áhorfendafjöldann. Heppinn náungi að nafni Lee Horner, 39 ára, greip boltann. Nú er það þannig að golfminjagripir sem þessir seljast fyrir himinháar fjárhæðir. Uppboðsfyrirtækið  GreenJacketAuctions fór á stúfanna og bauð 10.000 bandaríkjadala fyrir boltann, sem Horner seldi þeim samstundis. Nú er verið að bjóða boltann upp hjá GreenJacketAuctions og er boð í boltann, sem stendur ,í 6.114 bandaríkjadölum og búist við að það eigi eftir að hækka umtalsvert. Hér má sjá frétt ESPN á myndskeiði um sigurbolta Rory á Opna breska 2014  SMELLIÐ HÉR:  Hér má sjá uppboðssíðu greenjacket (uppboð á bolta Rory er í 3. línu lengst Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 30. 2014 | 07:00

GSG: Karl Ólafsson fór holu í höggi!!!

Karl Ólafsson kylfingur úr GSG gerði sér lítið fyrir í gær og fór holu í höggi á 15. braut Kirkjubólsvallar. Þetta er í annað skipti sem Karl fer holu í höggi, en hann hefir áður fengið ás á 2. braut heimavallar síns. Golf 1  óskar Karli innilega til hamingju með draumahöggið!

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 30. 2014 | 06:00

Guðmundur Arason á besta skorinu í Golfmóti Loftleiða 2014

Í gær, þann 29. júlí 2014 fór fram Golfmót Loftleiða 2014 einnig nefnt Loftleiðir Masters golfmótið á vegum Golfklúbbs flugfreyja og flugþjóna. Mótið var haldið á Grafarholtsvelli. Á besta skori í mótinu varð Guðmundur Arason, GR, en hann lék Grafarholtið á 5 yfir pari, 76 höggum.  Þess mætti geta að Guðmundur hafði nýlokið við að spila 4 hringi  á Íslandsmótinu í höggleik, þ.e. 5. mótinu á Eimskipsmótaröðinni og stóð sig vel þar. Á besta skori kvenna í mótinu varð Margrét Óskarsdóttir, GKJ, 85 höggum. Efst í punktakeppni karla og kvenna urðu eftirfarandi: Karlar:  1 Björgólfur G Guðbjörnsson GKJ 24 F 23 20 43 43 43 2 Sigurður Örn Sigurðsson GR Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2014 | 21:45

GBE: Sveit GBE Austurlandsmeistarar!!!

Í fréttatilkynningu frá Golfklúbbi Byggðarholts (GBE) á Eskifirði segir eftirfarandi: „Um síðastliðna helgi sendum við (GBE) lið í Sveitakeppni Austurlands sem haldin var á Seyðisfirði. Í riðlunum lentum við á móti GKF og GFH. Við unnum GKF 4-0 en gerðum jafnt við GFH 2-2,  en við fórum samt áfram í úrslit á fleiri holum unnum. Í úrslitum lentum við á móti sveit GN og aftur fór 2-2 en unnum við aftur á fleiri holum. Unnum við því Sveitakeppni Austurlands. Í sveit GBE voru: Bjarni Kristjánsson, Jóhann Hafþór Arnarson, Steinar Snær Sævarsson, Rósmundur Örn Jóhannsson og Hermann Ísleifsson. Okkur langar að þakka Seyðfirðingum fyrir gott mót.“

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2014 | 20:30

Eimskipsmótaröðin 2014 (5): Hvernig er skipting þeirra sem komust gegnum niðurskurð á Íslandsmótinu í golfi eftir klúbbum?

Um síðustu helgi lauk stærsta golfviðburðinum á Íslandi, Íslandsmótinu í golfi hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, með sigri heimamannsins Birgis Leifs Hafþórssonar, sem vann Íslandsmeistaratitilinn í 6. sinn og Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur, GR, sem sigraði í 2. sinn í kvennaflokki. Alls komust 92 kylfingar í gegnum niðurskurð (18 kvenkylfingar og 74 karlkylfingar).  Hvernig skyldi nú skipting þeirra vera eftir golfklúbbum sem þau koma úr, þ.e. hvaða golfklúbbur er með flesta kylfinga sem komust í gegnum niðurskurð? Svarið er að Golfklúbbur Reykjavíkur átti flesta sem komust í gegnum niðurskurð eða alls 29 kylfinga (31,5%)  og næstflesta átti Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, með  19 kylfinga (21,5%) og í 3. sæti með 9 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2014 | 17:00

Rickie vinsæll í Nígeríu

Rickie Fowler er ekki bara vinsæll kylfingur í Bandaríkjunum og hér á Íslandi…. heldur líka í Nígeríu. Fyrrum framkvæmdastjóri ferðamálasambands Nígeríu  Olusegun Runsewe, segir að ástæða þess að hann sé einn fremsti golfáhugamaður í Nígeríu sé vegna skuldbindingar sinnar við golfið og hvatningar frá bandarísku golfstjörnunni Rickie Fowler. Runsewe, fyrrum sýslumaður Cross River State í Nígeríu. lögmaðurinn Paul Erokoro og M. Tarfa eru meðal toppkylfinga sem þátt taka í nýstofnuðu móti, Captain’s Cup, sem fram fer í  IBB Golf and Country Club, í Abuja, Nígeríu. Talandi um núverandi form sitt í spilamennskunni sagði Runsewe, sem er með 18 í forgjöf: „Leyndarmál mitt er bara skuldbinding mín við leikinn. Hvað sem ég Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2014 | 15:00

Afmæliskylfingur dagsins: Signý Marta Böðvarsdóttir – 29. júlí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Signý Marta Böðvarsdóttir. Signý Marta er fædd 29. júlí 1970 og er því 44 ára í dag. Hún er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Signý Marta er góður kylfingur og hefir m.a. staðið sig vel í púttmótaröðum GR-kvenna. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Signý Marta Böðvarsdóttir · 44 ára (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Max Faulkner f. 29. júlí 1916 – d. 26. febrúar 2005;  Friðrik Sigurðsson, GS, 29. júlí 1969 (45 ára); Harrison Frazar, 29. júlí 1971 (43 ára);  Ísabelle Lendl, 29. júlí 1991 (23 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2014 | 13:00

GKS: Framkvæmdir við nýja golfvöllinn – Myndir

Framkvæmdir við nýja golfvöll Golfklúbbs Siglufjarðar (GKS) í Hólsdal eru í fullum gangi. Búið er að sá í fyrstu braut og slá hana tvisvar. Vonast er til að geta sáð í flest grínin og nokkrar brautir í þessari viku. Teikningar af vellinum má sjá með því að SMELLA HÉR:  Eins má sjá nokkrar myndir sem teknar voru af framkvæmdunum á vellinum sunnudaginn 27. júlí og mánudaginn 28. júlí með því að SMELLA HÉR:   

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2014 | 11:00

Paul McGinley ekki með í PGA Championship

Fyrirliði Evrópu í Ryder bikarnum, Paul McGinley, hefir dregið sig úr  PGA Championship risamótinu vegna axlarmeiðsla. Mótið fer fram 7.-10. ágúst n.k. McGinley, 47 ára, er með bólgur í vinstri öxl og eftir að hafa röntgenað öxlina ákvað hann að keppa ekki í Valhalla. „Röntgenmyndirnar sýndu að ég verð virkilega að hvíla öxlina á mér í nokkra mánuði,“ sagði McGinley. „Þetta er leitt vegna þess að ég myndi hafa elskað að tía upp í Valhalla,“ sagði McGinley. „En ég er búinn að meta stöðuna nokkrar síðastliðnar vikur í fríi með fjölskyldunni og ég held að þetta sé skynsamasta ákvörðunin.

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2014 | 09:00

Hvað hefir PGA Championship fram yfir hin risamótin?

Þann 7.-10. ágúst,  þ.e. í n.k. viku fer fram 4. og síðasta risamót ársins. Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt! Þetta er 96. PGA Championship risamótið og fer að þessu sinni fram í Valhalla Golf Club í Louisville, Kentucky. En hvað skyldi PGA Championship hafa fram yfir hin risamótin? PGA Championship á ekki roð við The Masters, sem alltaf fer fram á sama, gullfallega mótsstaðnum Augusta National. Opna bandaríska er þekkt fyrir að vera langerfiðasta risamótið og Opna breska er það mót sem á sér lengstu hefðina. Hvað er sérstakt við PGA Championship og hvað hefir það fram yfir hin mótin? Stutt svar: Wanamaker Trophy en lengri útgáfuna má finna hér Lesa meira