Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2014 | 07:00

GBE: Rósmundur Örn með ás!

Föstudaginn 23. maí 2014  gerðist sá skemmtilegi atburður að einn klúbbmeðlimur í Golfklúbbi Byggðarholts á Eskifirði þ.e. hann Rósmundur Örn sló draumahöggið á 8. braut. Hann var að spila með Steinari Snæ og átti hann þetta góða högg í blíðunni, sem var á Austfjörðum í gær. Golf 1 óskar Rósmundi Erni til hamingju með  ásinn!!!


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2014 | 06:00

PGA: Walker slær í fljúgandi fugl á Colonial – Myndskeið

Á 2. hring á Crowne Plaza Invitational á Colonial, sló Jimmy Walker teighöggið sitt í fugl á flugi og boltinn lenti í karga. Atvikið átti sér stað á par-4 17. holunni á Colonial. Engum sögum fer af líðan fuglsins, en hann virðist hafa haldið flugi sínu áfram og því vonandi í lagi með hann! Sjá má myndskeið af teighöggi Jimmy Walker með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2014 | 23:20

PGA: Brice Garnett leiðir í hálfleik á Crowne Plaza – Hápunktar 2. dags

Það er bandaríski kylfingurinn Brice Garnett sem leiðir eftir 2. hring Crowne Plaza mótsins, í Texas. Sjá má kynningu Golf 1 á Garnett með því að SMELLA HÉR:  Garnett er samtals búinn að spila Colonial á 7 undir pari, 133 höggum (67 66). Í 2. sæti eru Robert Streb og Chris Stroud, 1 höggi á eftir Garnett; á 6 undir pari, 134 höggum. Sjö kylfingar deila síðan 4. sætinu, þ.á.m. Dustin Johnson og Jimmy Walker, allir á 5 undir pari, 135 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á Crowne Plaza SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Crowne Plaza SMELLIÐ HÉR: (bætt við um leið og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2014 | 23:00

EuroPro: Ólafur Björn lauk keppni í 32. sæti

Ólafur Björn Loftsson, NK, tók þátt í  The Dawson and Sanderson Travel Classic mótinu sem er hluti af EuroPro mótaröðinni. Mótið stóð dagana 21.-23. maí og lauk í dag.  Leikið var á Longhirst Hall golfvellinum í Dawson, Englandi. Þátttakendur voru 153. Ólafur Björn lauk keppni á samtals 7 yfir pari, 223 höggum (72 74 77) og deildi 32. sætinu með 5 öðrum kylfingum. Fyrir árangur sinn hlaut Ólafur Björn 277,5 pund. Til þess að sjá lokastöðuna á The Dawson and Sanderson Travel Classic mótinu  SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2014 | 22:00

LET: Kylie Walker leiðir eftir 1. dag Deloitte Ladies Open

Í dag hófst á the International, Amsterdam í Hollandi, Deloitte Ladies Open. Það er skoski kylfingurinn Kylie Walker, sem leiðir eftir 1. dag á 4 undir pari, 69 höggum. Á hringnum fékk Walker 6 fugla og 2 skolla. Hópur 9 kylfinga er deilir síðan 2. sæti á 2 undir pari, þ.á.m. Maha Haddoui frá Marokkó, en þetta er það hæsta sem hún hefir komist á móti á Evrópumótaröð kvenna til þessa! Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Deloitte Ladies Open SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2014 | 21:00

Evróputúrinn: Björn og Lowry efstir í Wentworth – Hápunktar 2. dags

Þeir Thomas Björn og Shane Lowry deila nú toppsætinu á flaggskipsmóti Evrópumótaraðarinnar þegar mótið er hálfnað. Björn og Lowry léku á samtals 10 undir pari, 134 höggum, hvor; Björn (62 72) og Lowry (64 70). Þremur höggum á eftir forystumönnunum eru þeir Luke Donald og Rafa Cabrera-Bello og 4 kylfingar deila síðan 5. sætinu þeir Rory McIlroy, Jonas Blixt, Fabrizio Zanotti og Henrik Stenson.  Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag BMW PGA Championship SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 2. dags á BMW PGA Championship SMELLIÐ HÉR:


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2014 | 18:00

Ótrúlegur ás Bubba Watson – Myndskeið

Bubba Watson var í Disney World með teymi sínu þegar ákveðið var að fara á völlinn. En ekki hvað völl sem er. Watson var í Orlando Resort, á Fantasia Gardens and Fairways mínígolfvellinum, þegar hann ákvað að reyna ótrúlegt brelluhögg meðan hann var að spila eina holuna á vellinum öfugt. Sömu reglur eiga greinilega ekki við um gæja sem hafa sigrað 6 sinnum á PGA Tour! Hér má sjá ótrúlegan „brelluás“ Bubba SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hulda Birna Baldursdóttir – 23. maí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Hulda Birna Baldursdóttir, en hún er fædd 23. maí 1973. Hulda Birna er PGA golfkennaranemi og framkvæmdarstjóri Stelpugolfs 2014.   Stelpugolfdagurinn verður haldinn 29. maí n.k. á Leirdalsvelli hjá GKG, en Hulda Birna er einmítt í þeim golfklúbb.     Afmæliskylfingurinn er gift Einari Erni Jónssyni og á 4 börn: Baldur, Margréti, Gabríel og Mikael. Komast má á facebook síðu Huldu Birnu til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Hulda Birna Baldursdóttir (41 árs – Innilega til hamingju með afmælið!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: David Graham, 23. maí 1946 (68 ára);  Gary Dennis McCord, 23. maí 1948 (66 ára);  Marina Arruti, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2014 | 13:25

Nordea: Birgir Leifur á 2 undir pari 69 höggum e. 1. dag í Landskrona

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik, Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hóf leik í dag á Landskrona Masters PGA Championship, en mótið er hluti af Nordea mótaröðinni. Leikið er í Landskrona GK í Svíþjóð og stendur mótið dagana 23.-25. maí. Birgir Leifur lék á 2 undir pari, 69 höggum; hann fékk 4 fugla og 2 skolla. Birgir Leifur er 3 höggum á eftir forystumanninum, heimamanninum Jacob Glennemo. Birgir Leifur  deilir 17. sæti ásamt 12 öðrum. Sjá má stöðuna á Landskrona Masters eftir 1. dag með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2014 | 13:00

Lucy Li 4 ára grét vegna þess að hún vildi ekki fara af æfingasvæðinu!

Lucy Li komst í fyrirsagnir golffréttamiðla nú fyrir skemmstu,  þegar hún sló aldursmet Lexi Thompson fyrir að vera sú yngsta nokkru sinni til þess að fá keppnisrétt í US Women´s Open risamótinu. Lexi var 12 ára 4 mánaða og 18 daga ung þegar hún keppti í US Women´s Open 2007; Li sem verður 12 ára 1. október 2014 verður 11 ára 8 mánaða og 19 daga ung þegar hún tíar upp í risamótinu á kvenfrelsisdaginn, 19. júní n.k. Sagt er að Li hafi byrjað að æfa aðeins 7 ára en sveifla Lucy Li er allt of góð til þess að það geti verið rétt! Joby Ross golfkennari í Mariners Point Golf Lesa meira