Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2015 | 14:00

Kvikmyndin sem Spieth horfði á fyrir lokahringinn

Jordan Spieth sagðist ekki hafa fengið mikinn svefn fyrir lokahring The Masters risamótsins. Vafalaust af spennu og stressi. Og hvað gerir maður þá? Reynir að slappa af. Og hvað gerði Spieth? Hann sagðist hafa horft á kvikmynd sem heitir „Forgetting Sarah Marshall“ til þess að dreifa huganum. Þetta sagði hann í viðtali við CBS, sem olli mikilli kátínu fréttamanna og bætti síðan við að sér finndist kvikmyndin ein sú besta sem hann hefði séð.  Hún hefði fengið sig til að hlægja og slappa af. Sjá má þetta líka í „18 atriðum sem maður þarf að vita um sigur Jordan Spieth (á Masters)“ sem CBS Sports hefir tekið saman, með því Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2015 | 11:15

Snemma beygist krókurinn – Jordan Spieth byrjaði 1 1/2 árs í golfi!

Nýbakaður Masters meistari Jordan Spieth byrjaði ungur í golfi, aðeins 1 1/2 árs – þ.e. fyrir 19 1/2 ári með plastkylfum, til þess að halda honum uppteknum meðan yngri bróðir hans fæddist. Hann byrjaði að fara f með pabba sínum og yngri bróður á æfingasvæðið þegar hann var 4 ára. Og allt frá því að hann byrjaði hefir hann aldrei stoppað og virðist endalaust geta bætt sig. Jordan Spieth er sonur Chris og Shawn og á tvö yngri systkini: 1 bróður Steven og þá sem er yngst, systurina Ellie. Mamma Jordan sagði eitt sinn í viðtali: „Við (Spieth-fjölskyldan) gerðumst félagar í  Brookhaven Country Club í Dallas (Texas) þegar Jordan var 8 ára Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2015 | 10:30

Heimslistinn: Jordan Spieth nr. 2

Jordan Spieth, sigurvegari The Masters risamótsins var í síðustu viku fyrir Masters í 4. sæti á heimslistanum. Nú um áramótin 2014/2015 var Spieth í 9. sæti heimslistans og aðeins fyrir 2 árum síðan, árið 2013,  í 141. sæti. Nú eftir sigurinn fer hann upp um 2 sæti úr 4. sætinu í 2. sætið!!! Þetta er það hæsta sem hinn 21 árs Spieth hefir komist á heimslistanum; aðeins Rory er enn á undan honum. Staða efstu 10 á heimslistanum er nú eftirfarandi: 1. sæti Rory McIlroy 11,54 stig 2. sæti Jordan Spieth 9,15 stig 3. sæti Henrik Stenson 7,64 stig 4. sæti Bubba Watson 7,41 stig 5. sæti Jason Day 6,39 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2015 | 10:00

Fötluð systir Jordan Spieth – Ellie – veitir honum innblástur – Myndskeið

Lífið hefir ekki alltaf verið dans á rósum fyrir nýbakaðan Masters meistara Jordan Spieth Hann á fatlaða yngri systur, Ellie sem þjáist af taugasjúkdómi og er auk þess að mörkum þess að vera einhverf. Hann ver hluta af þeim fjármunum, sem hann vinnur sér inn á PGA Tour til góðgerðarstofnunar sinnar, sem styrkir: 1) aðallega ungmenni, sem glíma við fatlanir eins og systir hans, 2) fjölskyldur hermanna og  3) uppbyggingu á unglingagolfi. Spieth er einn af þeim sem gefur til baka.  En Ellie er sú sem að sögn Jordan heldur honum á jörðinni og veitir honum innblástur – og hann segist finna til með systur sinni og félögum hennar þegar hann sér Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2015 | 09:00

The Masters 2015: Spieth veittur græni jakkinn – Myndskeið

Það er í Butler´s Cabin, sem sigurvegara The Masters er veittur græni jakkinn. Í ár var það Bubba Watson sem klæddi sigurvegara The Masters 2015, Jordan Spieth, í græna jakkann. Til þess að sjá myndskeiðið þar sem Jordan Spieth hlýtur græna jakkann SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2015 | 07:00

The Masters 2015: Hver er Annie Verret?

Jordan Spieth var kysstur og knúsaður í bak og fyrir, eftir sigurinn á Masters risamótinu  af fjölskyldu sinni, vinum og …. Annie Verret. Annie Verret? Hver skyldi það nú vera? Annie og Jordan hafa verið saman síðan þau kynntust fyrst 16 ára í highschool í Texas, en nú eru bæði 21 árs. Og Annie, kærastan hans Jordan er ekki bara sæt, heldur þrælklár, en hún er með 4 (sem er það sama og 10 á Íslandi) í meðaleinkunn í viðskiptafræði frá Texas Tech. Svo mikið er víst að hún verður með flottari WAG´s um í Ryder bikarnum, sem fram fer á næsta ári, 2016 í Bandaríkjunum. Annie og Jordan eru Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2015 | 01:00

The Masters 2015: Spieth sigraði!

Það var sá sem búinn var að leiða alla mótsdaga The Masters risamótsins, Jordan Spieth, sem stóð uppi sem sigurvegari. Sigurskorið var 18 undir pari, 270 högg (64 66 70 70) – jöfnun á lægsta heildarskorinu, en í reynd setti Spieth nýtt heildarskormet eftir 36 holur – var á 14 undir pari þá og jafnaði síðan 54 holu heildarskormetið var á samtals 16 undir pari þá og lauk keppni 18 undir eins og áður segir, en við það jafnaði Spieth met um lægsta skor eftir 72 holur á Masters, 270 högg, sem Tiger setti 1997. Spieth er líka sá fyrsti á Masters sem kemst í að verða 19 undir pari Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2015 | 21:15

The Masters 2015: Allt lítur vel út hjá Spieth e. fyrri 9

Hinn 21 árs Jordan Spieth er nú aðeins 9 holur frá draumi sínum – að sigra á The Masters risamótinu. Hann hefir aðeins aukið forystu sína, er kominn með 5 högga forystu á þann sem næstur kemur, keppinaut sinn Justin Rose.  Samtals er Spieth á 17 undir pari. Nú eru aðeins seinni 9 með hinu fræga Amen Corner eftir. Spieth er búinn að fá 3 fugla og 2 skolla, er samtals á 1 undir pari eftir fyrri 9. Rose er á sléttu pari fyrri 9, búinn að fá 2 fugla og 2 skolla.  Hann deilir nú 2. sæti með Phil Mickelson en báðir eru samtals á 12 undir pari , Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2015 | 20:00

The Masters 2015: Allir farnir út lokahringinn – Fylgist með hér!

Nú eru allir farnir út á lokahring The Masters og úrslit nálgast í fyrsta risamóti ársins, með hverri holunni sem spiluð er. Síðasti ráshópur, þeirra Justin Rose og Jordan Spieth fór út fyrir um 1 klst síðan. Eftir 5 holu leik leiðir Spieth enn, en Rose er búinn að saxa á forystuna nú munar aðeins 3 höggum milli þeirra og 13 holur eftir!!! Heldur Spieth þetta út? Spennan magnast með hverri holunni! Tekst Spieth að yfirvinna gamlar, vondar minningar af því þegar hann tapað forystunni á 7. holu fyrir Bubba Watson í fyrra,  eða gerist þa sama nú fyrir reynsluboltanum Rose?  Svarið fæst næstu 30 mín! Til þess að fylgjast Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2015 | 17:00

Afmæliskylfingur dagsins: Lilja Ingibergsdóttir – 12. apríl 2015

Afmæliskylfingar dagsins er Lilja Ingibergsdóttir.  Lilja er fædd 12. apríl 1975 og á því 40 ára stórafmæli í dag!!! Komast má á facebook síðu Lilju hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið: Lilja Ingibergsdóttir  F. 12. apríl 1975 (40 ára – Innilega til hamingju með afmælið!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Donna Andrews, 12. april 1967 (48 ára); Matt Bettencourt, 12, apríl 1975 (40 ára stórafmæli!!!); … og … Evrópumótaröð karla (ens.: European Tour) á 43 ára afmæli í dag! Jafnframt eiga eftirfarandi afmæli, Russell Henley, 12. apríl 1989 (26 ára); Oliver Goss, 12. apríl Guðrún Björg Egilsdóttir, GO F. 12. april Lesa meira