Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2015 | 14:00
Spieth vinsæll meðal kvenna – en hann er genginn út!

Jordan Spieth nýtur mikillar kvenhylli nú eftir að hann sigraði á The Masters. Hann hefir m.a. fengið aragrúa bónorða frá stúlkum um allan heim, sem gjarnan vildu giftast honum. En Spieth er bara genginn út …. hann er búinn að deita highschool-ástina sína Annie Verret í 5 ár. Það virðast gírugar, ástfangnar konur um allan heim ekkert láta á sig fá og ein tvítaði m.a. að hann yrði bara að segja Annie upp fyrir sig! Mörg tvítin ganga í sömu átt. Allt svolítið yfirþyrmandi fyrir Annie og Jordan, en því miður fyrir alla kvenkyns aðdáendur Spieth eru hann og Annie enn eftir 5 ár yfir sig ástfangin! Þeim sem fylgja Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2015 | 13:30
Rose upplýsir leyndarmálið um velgengnina á Masters

Justin Rose hefir upplýst að leyndarmálið að velgengni sinni á síðasta Masters risamóti hafi verið það að hann breytti matarræði sínu til samræmis við það sem tennisleikarinn Novak Djokovic neytir og nú segir Rose að sér „líði betur en nokkru sinni áður.“ Hann á líka mjög auðvelt með að sjá jákvæðu hliðarnar á leik sínum, sem í 13 af síðustu 14 Mastersrisamótum hefði örugglega nægt til að koma honum í bráðabana. Aðeins David Duval hefir fundið fyrir því hvernig það er að vera á 14 undir pari á August og fara frá Georgía án Græna Jakkans. Auðvitað er Rose vonsvikinn að verða ekki fyrsti Evrópubúinn í 16 ár til að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2015 | 11:00
Tiger meiddist á hendi á lokahring The Masters

Tiger Woods meiddi sig á hendi á lokahringnum á The Masters og sagði eftir hringinn að „handarbein hefði farið úr lið.“ Svo virðist sem Tiger hafi slegið í trjárót þegar hann var að spila 2. höggið sitt á 9. holu. „Beinið fór úr lið og ég kippti því aftur í lið,“ sagði Tiger. „Þetta var vont. Það var svo sannarlega vont. Ég vissi ekki að það væri trjárót þarna. Ég fór með hendina eða réttara sagt kylfuna beint í hana. Hún haggaðist ekki en líkami minn var á hreyfingu.“ „Þetta fór úr lið, en mér tókst að kippa þessu í liðinn, sem mér leið ekki vel með en þetta small Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2015 | 10:00
Spieth ætlar ekkert úr græna jakkanum

„Ég hef plön um að fara ekkert úr honum um stund,“ sagði Spieth eftir að hann var klæddur í græna jakann á The Masters af sigurvegara mótsins 2014, Bubba Watson. „Ég mun líklega sofa í honum (græna jakkanum) í nokkrar nætur.“ „Þetta er ótrúlegasta vika lífs míns. Þetta er eins frábært og það verður í íþróttagrein okkar (golfinu). Þetta er draumur minn sem rætist. Ég hef ekki brotið 70 á síðasta ári jafnvel þó ég hafi haft tækifæri til sigurs þannig að vera á lágu skori hér (á Augusta National) og heyra þessi fagnaðaróp en mjög sérstakt.“ „Að fá aðild að klúbbi grænu jakkana og verða hluti af Masters sögunni Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2015 | 09:00
Mickelson og Rose tala um lokahringi sína – Myndskeið

Hér má sjá myndskeið þar sem Phil Mickelson og Justin Rose tala um lokahringi sína á The Masters risamótinu 2015 – Sjá með því að SMELLA HÉR: Það voru Mickelson og Rose sem deildu 2. sætinu á The Masters í ár – voru báðir á 14 undir pari, hvor, sem oft hefði nú dugað til sigurs eða a.m.k. bráðabana …. en ekki í þetta sinn. Spieth var einfaldlega með yfirburði sigraði á 18 undir pari. Rose sagðist m.a. hafa getað gert betur. Spieth hefði ekki gefið sér nein færi en hann hefði s.s. ekki búist við því heldur. Rose sagðist e.t.v. hafa eygt smá von á 16. holu – en Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2015 | 08:00
Wozniacki neitar því að hamingjuóskir hennar til Spieth hafi verið sneið til Rory

Caroline Wozniacki hefir verið ásökuð um það á félagsmiðlum að hamingjuóskir sem hún sendi Jordan Spieth vegna sigurs hans á The Masters risamótinu hafi verið sneið til Rory. Í hamingjuóskum Wozniacki sagði: „Congratulations to @JordanSpieth on winning @TheMasters! Extremely impressive how he came out firing from the start and never looked back!“ (Lausleg þýðing: Hamingjuóskir til @JordanSpieth fyrir að sigra @TheMasters! Verulega flott hvernig hann skoraði allt frá byrjun og leit aldrei aftur!“) Margir á félagsmiðlunum ásökuðu Caroline um að þetta væri ein aðferða hennar til að ná sér niðri á Rory, sem sagði henni upp með símhringingu en ekki augliti til auglitis á síðasta ári, meðan þau voru trúlofuð, rétt eftir að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2015 | 07:00
The Masters 2015: Hápunktar og myndasería frá lokahringnum – Myndskeið

CBS hefir tekið saman 10 mínútna langt myndskeið um hápunkta lokahringsins á The Masters risamótinu 2015. Hápunktana má sjá með því að SMELLA HÉR: Hér má einnig sjá myndaseríu frá lokahring Masters – Sjá með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 14. 2015 | 01:30
Spieth farinn frá Augusta

Jordan Spieth er nú farinn frá Augusta National til New York. Hann setti meðfylgjandi mynd inn á facebook síðu sína, en þar má sjá hann fara um borð í einkaþotu sem einn styrktaraðila hans Under Armour sendi eftir honum. Á facebook síðu sína skrifaði Spieth kl. 21:30 í gær (13. apríl 2015) að okkar tíma: „Unbelievable week…so thankful for everyone’s support. Off to NYC!“ (Lausleg þýðing: „ Ótrúleg vika …. svo þakklátur fyrir stuðning allra. Farinn til New York City!“)
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2015 | 19:30
Rick Shiels fer yfir kylfurnar í poka Masters-meistarans Jordan Spieth – Myndskeið

Rick Shiels fer í meðfylgjandi myndskeiði yfir þær kylfur sem eru í poka Jordan Spieth. Sjá má myndskeiðið með því að SMELLA HÉR: Eftirfarandi verkfæri voru í poka Spieth á The Masters risamótinu 2015: Dræver: Titleist 915D2 (9.5°, Aldila Rogue 60 TX skaft) 3-tré: Titleist 915F (15°, Graphite Design Tour AD-DI7 X skaft) Blendingur: Titleist 915Hd (20.5°, Graphite Design Tour AD-DI 95 X skaft) 4-9 járn: Titleist AP2 714 (True Temper Project X 6.0 sköft) 46° fleygjárn: Titleist Vokey SM5 (True Temper Project X 6.0 skaft) 52° fleygjárn: Titleist Vokey SM5 (True Temper Project X 6.0 skaft) 56° fleygjárn: Titleist Vokey SM5 (True Temper Project X 6.0 skaft) 60° fleygjárn: Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 13. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Davis Love III ——- 13. apríl 2015

Það er fyrirliði Bandaríkjanna í Rydernum 2016 Davis Milton Love III sem er afmæliskylingur dagsins. Love III er fæddur í Charlton, Norður-Karólínu 13. apríl 1964 og á því 51 árs afmæli í dag. Hann fæddist daginn eftir að pabbi hans Davis M Love Jr. lauk við lokahring sinn í Masters-mótinu 1964, en pabbi hans var golfkennari og atvinnumaður í golfi og móðir hans, Helen, lágforgjafarkylfingur. Love III gerðist atvinnumaður í golfi 1985, sem sagt 21 árs. Á ferli sínum hefir hann sigrað í 36 mótum þar af 20 á PGA Tour. Besti árangur hans í risamótum kom 1997 þegar hann sigraði í PGA Championship. Love III er hin síðari ár best Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

