Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2015 | 15:45

The Masters 2015: Spieth þarfnast þolinmæði til að klára sem sigurvegari!

Fyrir fjórum árum síðan var 21 árs strákur sem leiddi með 4 höggum fyrir lokahringinn á the Masters og var síðan á 80 höggum lokahringinn og glutraði epískt niður forystu sinni. Í dag mun annar 21 árs strákur fara út (reyndar nú aðeins eftir 2 tíma) með 4 högga forystu og reyna að vinna fyrsta risatitil sinn, nokkuð sem hann hefir dreymt um í óralangan tíma. Og hver er eiginlega munurinn milli þessara tveggja 21 árs stráka; Rory (2011) og Jordan Spieth (2015)? Munurinn er m.a. sá að þetta var í fyrsta skipti sem Rory hafði verið í forystu fyrir lokahring á risamóti.  Þetta er hins vegar í 2. sinn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2015 | 15:00

Græni jakkinn

Það er þetta sem allt snýst um …. að geta klæðst græna jakkanum! Græni jakkinn á upphaf sitt allt til fyrstu daga Masters mótsins, 1937, þar sem félagar Augusta National voru látnir klæðast grænum jökkum til þess að aðgreina þá frá öðrum sem voru á mótinu. Frá árinu 1949  hefir sigurvegari Masters risamótsins fengið að klæðast græna jakkanum í 1 ár – að sigurárinu liðnu er hefð að skila jakkanum til klúbbsins, en þeir sem eru í Masters Champions hópnum þ.e. þeir sem hafa sigrað á Masters mótinu fá að klæðast jakka sínum aftur þegar þeir koma að Augusta National Allir nema Gary Player gerðu það, þ.e. skiluðu græna jakkanum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2015 | 14:00

The Masters 2015: Rose heitur!

Justin Rose er nú í 2. sæti fyrir lokahringinn á The Masters risamótinu. Hann er 4 höggum á eftir forystumanninum, Jordan Spieth, búinn að spila á samtals 12 undir pari, 204 höggum (67 70 67) „Þetta verður mikil reynsla á morgun (þ.e. í dag), stórkostleg reynsla,“ sagði Rose eftir 3. hring, í gær. „Jordan er að spila ótrúlegt golf. Það verður frábært að fylgjast með honum og reyna að halda í við hann.“ Rose hefir unnið a.m.k. eitt PGA Tour mót á hverju s.l. 5 ára  þ.á.m. Opna bandaríska risamótið 2013 í Merion.  Hann  hefir ekkert verið sérlega heitur á þessu keppnistímabili; hann hefir ekki komist í gegnum niðurskurð 3 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2015 | 13:00

The Masters 2015: Rástímar og paranir f. 4. hring

Fyrstur út á lokahring Masters fer út tælenski kylfingurinn Thongchai Jaidee og það kl. 10 að staðartíma, sem er kl. 14 að íslenskum tíma eða eftir  1  tíma. Næstur á eftir honum fara út fyrirliði Ryder bikarsliðs Evrópu, Darren Clarke og Fidji-eyingurinn Vijay Singh, en ræst er út með 10 mínútna millibili. Rory og Tiger fara út kl. 14:30 eða kl. 18:30 að íslenskum tíma og verður spennandi að fylgjast með þeim. Lokahollið sem í eru Justin Rose (2. sætið) og (forystumaðurinn) Jordan Spieth fer ekki út fyrr en kl. 14: 50 að staðartíma eða rétt fyrir kvöldmatarleytið hér á Íslandi (kl. 19:00) Til þess að sjá rástíma og paranir á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2015 | 11:30

Hrafn á Masters

Meira af Hrafni Guðlaugssyni, klúbbmeistara GSE 2012 og 2014 og Faulkner. Á morgun byrja svæðismótin SSAC í Montgomery, Alabama hjá honum,  en í gær var Hrafn að slappa af. Hann er einn Íslendinga, sem staddur er á the Masters risamótinu en ólíkt öðrum var tekin mynd af honum og Jordan Spieth! Fyrir andliti sér heldur Hrafn á einhvers konar skrá og segir í texta með myndinni: „Ég er augljóslega bara að lesa!“ … sem er eins gott því það er stranglega bannað að taka myndir! Þetta er svo sannarlega Golfmynd vikunnar hér á Golf 1!!! Vel gert Hrafn!


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2015 | 11:15

Bandaríska háskólagolfið: Hrafn (í 2. sæti) og Faulkner sigruðu á Red Hawk Spring Classic

Hrafn Guðlaugsson, GSE, er aldeilis að gera góða hluti í bandaríska háskólagolfinu. Stutt er síðan að hann sigraði í einstaklingskeppni – Sjá umfjöllun Golf 1 þar um með því að SMELLA HÉR:  Nú um daginn, nánar tiltekið 6.-7. apríl s.l. tóku Hrafn og lið hans í Faulkner háskólanum þátt í Red Hawk Spring Classic. Mótið fór fram á Canebrake golfklúbbnum í Athens, Alabama og gestgjafi var  Martin Methodist háskólinn. Þátttakendur í mótinu voru 60 frá 10 háskólum. Hrafn varð í 2. sæti í mótinu (70 72)  í einstaklingskeppninni (en herbergisfélagi hans í Faulkner, Hunter Fikes sigraði í mótinu (71 69).  Lið Hrafns varð í sigursæti mótsins af 10 háskólum – og Hrafn Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2015 | 11:00

Spieth vildi sigra á Masters þegar hann var 14 ára – Myndskeið

Í 7 ára gömlu viðtali sagðist Jordan Spieth , sem þá var 14 ára, vilja sigra á The Masters. Nú 7 árum síðar aðeins 21 árs er hann í þeim sporum að geta sigrað á The Masters. Hér má sjá myndskeið af viðtali við þjálfara hins 14 ára Spieth og síðan Spieth sjálfan þar sem hann segist vilja sigra á The Masters. Draumur sem verður að veruleika í dag? Hér má sjá myndskeiðið með viðtalinu við hinn 14 ára Texasbúa Jordan Spieth SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2015 | 10:00

The Masters 2015: Hápunktar 3. hrings – Myndskeið

Það sáust mörg góð tilþrif á 3. hring The Masters risamótsins. Hér má sjá hápunkta 3. hrings á The Masters risamótinu SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2015 | 09:55

The Masters 2015: Uppskrift að ekta Pimento ostasamloku á la Masters

Deb Lander, fréttamaður Real Food Traveler í Flórída, gerði sér ferð í Augusta National Golf Club í Georgíu-ríki í Bandaríkjunum, á árinu 2013 til þess að fylgjast með Masters mótinu (þið vitið þessu golfmóti þar sem sigurvegarinn fær að klæðast grænum jakka 🙂 ) Henni fannst maturinn þar fremur „retro“ þ.e. eins og farið væri aftur í tímann til 1950 og 1960 en eitt vinsælasta snakkið, sem áhorfendur virtust háma í sig út um allan völl voru hinar frægu ,hefðbundnu Masters pimento osta samlokur. Ef þið fáið tækifæri til þess að fylgjast með Masters mótinu í návígi einhvern tímann, smakkið endilega aðalsnakkið á vellinum: pimento osta samlokuna (sem er sérlega Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 12. 2015 | 09:45

The Masters 2015: Blaðamannafundur með Spieth e. 3 hring – Myndskeið

Eftir metheildarskor Jordan Spieth upp á 16 undir pari, 200 höggum (64 66 70) var efnt til blaðamannafundar. Á fundinum sagði Spieth m.a. að það hefðu verið vonbrigði að hafa verið á 4 undir fyrir 17. holu og hafa síðan lokið 3. hring á 2 undir pari, 70 höggum. Hann sagði líka að í raun væri hann samt ánægður því skorið hefði getað verið mun verra og var ánægður með björgun á 18. holu. Spieth sagði að sér hefði liðið vel alla mótsdagana en erfitt hefði verið að vera með mikla forystu. Gott hefði verið að sjá mörg pútt detta, en á hinn bóginn hefði verið erfitt að þurfa að Lesa meira