GLF: Eygló Birgisdóttir og Hjörtur Sigurðsson klúbbmeistarar 2018
Meistaramót Golfklúbbsins Lundar (GLF) fór fram 22. júlí s.l. á Lundsvelli í Fnjóskadal. Þátttakendur, sem luku keppni voru 30 og var keppt í kvenna- og karlaflokki. Klúbbmeistarar GLF 2018 eru Eygló Birgisdóttir og Hjörtur Sigurðsson. Sjá má heildarúrslit í Meistaramóti GLF 2018 hér að neðan: Kvennaflokkur: 1 Eygló Birgisdóttir GA 11 F 48 46 94 24 94 94 24 2 Halla Sif Svavarsdóttir GA 11 F 46 49 95 25 95 95 25 3 Hrefna Svanlaugsdóttir GA 22 F 52 49 101 31 101 101 31 4 Sólveig Sigurjónsdóttir GA 19 F 53 53 106 36 106 106 36 5 Kristveig Atladóttir GA 24 F 53 55 108 38 108 Lesa meira
GVS: Heiður Björk á besta skorinu í Art Deco mótinu! Úrslit
49 konur luku keppni í hinu glæsilega Opna Art Deco kvennamóti, sem fram fór 21. júlí sl. Keppnisfyrirkomulag var hefðbundið – Verðlaun veitt fyrir efstu 3 sætin í punktakeppni og fyrir besta skor auk nándarverðlauna. Eins voru sérstök verðlaun fyrir 10. sætið, 26. og 38. sætið að þessu sinni, sem og að dregið var 10 sinnum úr skorkortum og voru glæsilegar snyrtivörur í verðlaun frá fyrirtækinu Gullborg ehf. Sú sem var á besta skorinu gat ekki tekið verðlaun í punktakeppninni. Á besta skori var Heiður Björk Friðbjörnsdóttir, GS, en hún lék Kálfatjarnarvöll á glæsilegum 83 höggum. Í punktakeppninni sigraði Guðrún Másdóttir, GR, en hún var með 31 punkt; í 2. Lesa meira
Afmæliskylfingar dagsins: Guðmundur Arason – 26. júlí 2018
Það er Guðmundur Arason, læknir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hann er fæddur 26. júlí 1956 og á því 62 ára afmæli í dag. Guðmundur er í Golfklúbbi Öndverðarness. Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Guðmund með því að SMELLA HÉR: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Mick Jagger 26. júlí 1943 (75 ára); Þorsteinn Gíslason, 26. júlí 1947 (71 árs); Allen Doyle, 26. júlí 1948 (70 ára STÓRAFMÆLI!); Sirrý Arnardóttir, 26. júlí 1965 og Viðar Örn Ástvaldsson, 26. júlí 1965 (53 ára); Hulda Soffía Hermanns, GK, 26. júlí 1967 (51 árs); Flott Föt Flottari Verð 26. júlí 1969 (49 ára); Hannah Jun, 26. júlí 1985 (33 Lesa meira
Evróputúrinn: Birgir Leifur fer út kl. 12:10 í Porsche mótinu
Mót vikunnar á Evróputúrnum er Porsche European Open. Það fer fram á Green Eagle golfvellinum í Hamburg, Þýskalandi 26.-29. júlí 2018 – Sjá kynningu Golf 1 á „Græna Erninum“ með því að SMELLA HÉR: Meðal keppanda á mótinu eru Birgir Leifur Hafþórsson, margir þekktari kylfinga á Evróputúrnum, rásfélagi Haraldar Magnús á Opna breska, Zander Lombard frá S-Afríku og bandaríski kylfingurinn Patrick Reed. Birgir Leifur á rástíma kl. 14:10, sem er kl. 12:10 að íslenskum tíma. Til þess að fylgjast með Birgi Leif og stöðunni á Porsche European Open SMELLIÐ HÉR:
Monty segir evrópska Ryder liðið vera það besta til þessa
Colin Montgomerie sagði í viðtali í dag að fyrirliði evrópska liðsins í Rydernum ætti að vera „fullur sjálfsöryggis“ um tækifæri liðs síns í París. Francesco Molinari náði að stöðva fimm sigra sigurgöngu Bandaríkjamanna á risamótum, en þeir hafa unnið allt samfellt allt aftur til þess að Brooks Koepka sigraði á Opna bandaríska 2017. (síðan vann Jordan Spieth á Opna breska í fyrra; síðan vann Justin Thomas PGA Championship 2017; Patrick Reed Masters 2018, og Brooks Koepka aftur 2. árið í röð Opna bandaríska 2018). „Það er ótrúlegt hvað sigur á Opna getur gert fyrir andlega líðan liðs og það er ekki bara hann (Molinari),“ sagði Montgomerie í dag á blaðamannafundi Lesa meira
LPGA: Lexi ekki m/ í Opna breska
Bandaríski kylfingurinn Lexi Thompson tilkynnti á Instagram að hún hefði dregið sig úr Opna breska kvenrisamótinu eða Ricoh Women’s British Open eins og það heitir upp á engilsaxnesku. Hún lét frá sér fara eftirfarandi yfirlýsingu á félagsmiðlum sínum (sem hér fylgir í lauslegri íslenskri þýðingu): „Hæ allir, Ég vildi bara láta ykkur vita að ég hefði opinberlega dregið mig úr Ricoh Women’s British Open 2018. Þetta er gífurlega erfitt fyrir mig að spila ekki í þessu virta risamóti, en ég gerði mér grein fyrir því nýlega að ég verð að taka mér tíma til að vinna í sjálfri mér. Atburðir sl. eins og hálfs árs (á og utan vallar) hafa tekið Lesa meira
Guðrúnu Brá og Haraldi Franklín spáð Íslandsmeistaratitlum
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Keili og Haraldur Franklín Magnús, GR verða Íslandsmeistarar í golfi 2018 ef spá sérfræðinga gengur eftir. Golf á Íslandi/golf.is fékk góðan hóp golfsérfræðinga til þess að spá í spilin fyrir Íslandsmótið 2018. Keppni hefst fimmtudaginn 26. júlí og lokahringurinn fer fram sunnudaginn 29. júlí. Mótið fer fram í Vestmannaeyjum. Mest var hægt að fá 100 stig í þessari spá. Kvennaflokkur: Alls fengu 11 keppendur stig. 1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Keilir 99 stig 2. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR 68 stig 3. Berglind Björnsdóttir, GR 32 stig 4. Saga Traustadóttir, GR 26 5. Helga Kristín Einarsdóttir, Keilir 24 stig Andrea Björg Bergsdóttir (GKG), Ragnhildur Sigurðardóttir (GR), Hulda Clara Gestsdóttir (GKG), Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Cheyenne Woods – 25. júlí 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Cheyenne Nicole Woods, frænka Tiger og fyrrum liðsfélagi Íslandsmeistarans í höggleik 2011, 2014 og 2016, Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur, í Wake Forest. Cheyenne fæddist í Phoenix, Arizona, 25. júlí 1990 og á því 27 ára afmæli í dag. Hún er dóttir Earl Dennison Woods Jr., eldri bróður Tiger Woods. Afi hennar Earl Woods eldri var fyrsti þjálfarinn hennar. Cheynne spilaði golf með golfliði Xavier College Preparatory og sigraði ár eftir ár Arizona 5A State Championships árin 2006 og 2007. Cheyenne útskrifaðist frá Wake Forest University 2012 þar sem hún spilaði golf með Demon Deacons. Cheyenne hefir sigrað á meira en 30 áhugamannamótum. Árið 2009 þáði hún boð styrktaraðila Lesa meira
Hvað var í sigurpoka Molinari?
Eftirfarandi verkfæri voru í poka Francesco Molinari þegar hann sigraði á Opna breska: Dræver: TaylorMade M4 8.5* (Mitsubishi Tensei White 60x). 3-tré: TaylorMade M3 13˚. 5-tré: TaylorMade M4 18˚. Járn: TaylorMade P790 4, P750 5-PW (Dynamic Gold X100). Fleygjárn: TaylorMade Milled Grind 50˚, 56˚, Hi-Toe 60˚. Pútter: Bettinardi Dass BBZero Bolti: Titleist Pro V1x Golfklæðnaður: Nike Skór: Nike.
Valdís Þóra komst inn á risamót – keppir á Opna breska á Royal Lytham & St Annes
Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni, hefur tryggt sér sæti á Opna breska meistaramótinu. Mótið fer fram á Royal Lytham & St Annes Golf Club á Englandi 2.- 5. ágúst. Mótið er eitt af fimm risamótum hvers árs hjá atvinnukylfingum í kvennaflokki. Valdís Þóra hefur leikið á einu risamóti á ferlinum, Opna bandaríska meistaramótinu, sem fram fór í fyrra. Valdís Þóra verður þar með annar íslenski kylfingurinn sem tekur þátt á Opna breska meistaramótinu í kvennaflokki. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, tryggði sér keppnisrétt á Opna breska meistaramótinu í fyrra með því að enda í einu af 10 efstu sætunum á Opna skoska meistaramótinu sem fram fór í vikunni Lesa meira










