Eimskipsmótaröðin 2018 (7): Axel efstur – Haraldur Franklín og Anna Sólveig m/vallarmet – Guðrún Brá og Anna Sólveig jafnar í hálfleik
Þrír kylfingar úr Golfklúbbnum Keili eru efstir þegar Íslandsmótið í höggleik er hálfnað í Vestmannaeyjum; Axel Bóasson í karlaflokki og Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Anna Sólveig Snorradóttir eru jafnar í kvennaflokki. Keppendur sýndu glæsileg tilþrif á 2. degi Íslandsmótsins. Í karlaflokki sló Haraldur Franklín Magnús 16 ára vallarmet Helga Dan Steinssonar, þ.e. bætti það um 1 högg, lék á 8 undir pari, 62 glæsihöggum. Á hringnum fékk Haraldur Franklín 8 fugla og 10 pör. Fuglarnir komu á 3., 4., 6. og 8. braut á fyrri 9 og á 10. 15. 16 og 18. braut á seinni 9. Með þessu glæsiskori saxaði Haraldur Franklín á forskot Axels og er munurinn milli Lesa meira
LET & LPGA: Ólafía og Valdís úr leik
Atvinnukylfingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL tóku þátt í sameiginlegu móti LET og LPGA; Aberdeen Standard Investments Ladies Scottish Open eða Opna skoska kvennamótinu. Þær eru báðar úr leik. Valdís Þóra lék á samtals 3 yfir pari 145 höggum (74 71) og varð T-95 þ.e. jöfn 7 öðrum í 95. sæti. Ólafía Þórunn lék á samtals 5 yfir pari, 147 höggum (77 70) og varð T-114 þ.e. jöfn 11 öðrum í 114. sæti af 156 keppendum. Aðrir, sem spiluðu á 5 yfir eins og Ólafía voru m.a. Michelle Wie og 3 yfir eins og Valdís Þóra, Lydia Ko, fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna. Efst eftir Lesa meira
Evróputúrinn: Birgir Leifur T-38 e. 2. dag
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG lék vel á 2. hring Porsche European Open mótinu. Birgir Leifur lék 2. hring á 2 undir pari, 70 höggum. Samtals hefir Birgir Leifur spilað á 2 undir pari 142 höggum (72 70) og er T-38 þ.e. deilir 38. sæti, sem þýðir að hann flaug gegnum niðurskurð, sem miðaður var við parið eða betra. Margir frægir komust ekki gegnum niðurskurðinn s.s. Ryder Cup fyrirliði Evrópu í ár Thomas Björn, franski kylfingurinn Raphaël Jacquelin og Alejandro Cañizaeres frá Spáni, en hjá öllum munaði aðeins 1 höggi að þeir kæmust í gegn. Efstur í mótinu, þegar það er hálfnað er bandaríski kylfingurinn Bryson DeChambeau, sem spilað hefir á Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Jordan Spieth ——- 27. júlí 2018
Afmæliskylfingur dagsins er sigurvegari Opna breska 2017 og tvöfaldur risamótsmeistari ársins 2015, Jordan Spieth. Spieth, sigurvegari Opna breska í ár, sigraði s.s. kunnugt er á Masters risamótinu í apríl 2015 og vann síðan Opna bandaríska. Jordan Spieth fæddist 27. júlí 1993 og á því 25 ára stórafmæli í dag. Ótrúlegur árangur þetta hjá ekki eldri kylfingi!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Örn Guðmundsson, 27. júlí 1952 (66 ára); Björk Klausen, 27. júlí 1954 (64 ára); Ólöf Jónsdóttir, 27. júlí 1970 (48 ára); Erla Björk Hjartardóttir, 27. júlí 1971 (47 ára); Stefán Fannar Sigurjónsson, 27. júlí 1972 (46 ára); Arnar Snær Jóhannsson, 27. júlí 1991 (27 ára); Golfklúbburinn Lesa meira
Guðlaugur sigraði í Læknamótinu
Þann 25. júlí sl. fór fram Læknamótið á Brautarholtsvelli. Keppnisfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf. Sigurvegari í mótinu varð Guðlaugur B. Sveinsson, úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði með 36 punkta. Sjá má heildarúrslitin í Læknamótinu hér að neðan: 1 Guðlaugur B Sveinsson GK 13 F 20 16 36 36 36 2 Gunnlaugur Sigfússon GHD 12 F 14 18 32 32 32 3 Jón Þrándur Steinsson GR 18 F 13 17 30 30 30 4 Jens Þórisson GF 4 F 12 17 29 29 29 5 Ríkarður Sigfússon GR 19 F 14 15 29 29 29 6 Ólafur Sveinbjörnsson GR 8 F 15 13 28 28 28 7 Þorvaldur Magnússon GL 13 Lesa meira
PGA: Garrigus efstur e. 1. dag á RBC Canadian Open
Það er bandaríski kylfingurinn Robert Garrigus, sem er efstur eftir 1. dag á RBC Canadian Open. Garrigus lék 1. hring á 9 undir pari, 63 höggum. Í 2. sæti er bandaríski kylfingurinn Adam Schenk, sem er ekki mörgum kunnur (Sjá kynningu Golf 1 á honum með því að SMELLA HÉR:) en Schenk er 1 höggi á eftir Garrigus. Mótið fer fram á Glen Abbey golfvellinum í Ontaríó í Kanada. Til þess að sjá stöðuna á RBC Canadian Open SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 1. dags á RBC Canadian Open SMELLIÐ HÉR:
LET & LPGA: Erfið byrjun hjá Ólafíu og Valdísi á Opna skoska kvennamótinu
Atvinnukylfingarnir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL eru báðar meðal keppenda á sameiginlegu móti LET og LPGA; Aberdeen Standard Investments Ladies Scottish Open eða Opna skoska upp á okkar ilhýra. Eftir 1. dag er Valdís Þóra T-102 (lék 1. hring á 3 yfir pari 74 höggum) og Ólafía Þórunn T-139 (lék 1. hring á 6 yfir pari, 77 höggum). Erfið byrjun hjá báðum og báðar undir niðurskurðarlínunni, en þessa stundina er niðurskurður miðaður við 1 yfir pari eða betra. Telja verður að Valdís Þóra eigi góðan möguleika að komast gegnum niðurskurð með góðum hring í dag en það verður erfiðara verkefni fyrir Ólafíu Þórunni. Mótið er sterkt. Lesa meira
Eimskipsmótaröðin 2018 (7): Til keppenda á Íslandsmótinu – Þórsvöllur opinn
Æfingasvæði við Þórsvöll (samhliða 10. braut) er opið frá kl. 06:30 þar til síðasti ráshópur hefur farið út alla keppnisdagana. Efra æfingasvæði við golfskála er opið frá kl. 06:30 þar til kl. 09:30. Neðra æfingasvæði/æfingaskýli er heimilt að nota fyrir styttri högg alla keppnisdaga. Keppendur eru beðnir um að slá ekki inná 13. braut af neðra svæði. Keppendur er beðnir um að virða það að slá ekki lengri högg af æfingasvæði við golfskála en 140 metra. Ef keppendur verða uppvísir af því að slá bolta út af æfingasvæði er áskilinn réttur að beita viðurlögum. Sjá má upplýsingar fyrir keppendur á fésbókarsíðunni golfeyjar með því að SMELLA HÉR: Aðalfréttagluggi: Fallegt á Lesa meira
Landslið Íslands á HM í Írlandi
Jussi Pitkänen, afreksstjóri Golfsambands Íslands, hefur valið landslið Íslands sem keppa á heimsmeistaramóti áhugamanna í lok ágúst og byrjun september. Heimsmeistaramótið fer fram á Carton House, Maynooth, rétt við Dublin á Írlandi. Keppnisvellirnir heita Montgomerie og O’Meara. HM kvenna eða Espirito Santo Trophy, hefst 29. ágúst og stendur til 1. september. Landslið Íslands verður þannig skipað: Helga Kristín Einarsdóttir (GK), Ragnhildur Kristinsdóttir (GR), og Saga Traustadóttir (GR). HM karla eða Eisenhower Trophy, hefst 5. september og stendur til 8. september. Landslið Íslands verður þannig skipað: Aron Snær Júlíusson (GKG), Bjarki Pétursson (GB), Gísli Sveinbergsson (GK).
Eimskipsmótaröðin 2018 (7): Axel og Guðrún Brá efst e. 1. dag
Íslandsmótið í höggleik hófst á Vestmannaeyjavelli í dag, en Golfklúbburinn í Vestmannaeyjum fagnar 80 ára afmæli sínu og er hann 3. elsti golfklúbbur Íslands, stofnaður 1938. Íslandsmótið í höggleik stendur dagana 26.-29. júlí 2018 og verða nýir Íslandsmeistarar krýndir nk. sunnudag. Efitr fyrsta dag eru systkinabörnin frá Hafnarfirði Axel Bóasson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili, efst í karla og kvennaflokki. Í karlaflokki voru 12 sem brutu 70 á Vestmannaeyjavelli og sá sem efstur er Axel Bóasson, lék á stórglæsilegum 5 undir pari, 65 höggum; fékk 1 örn (á par-5 4. holuna), 5 fugla og 2 skolla. Í kvennaflokki voru 14, sem brutu 80 á Vestmannaeyjavelli og sú sem efst Lesa meira









