Afmæliskylfingur dagsins: Sigurjón R. Hrafnkelsson – 24. júlí 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Sigurjón R. Hrafnkelsson. Sigurjón fæddist 24. júlí 1963 og á því 55 ára afmæli í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og hefir tekið þátt í fjölda golfmóta. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Doug Sanders, 24. júlí 1933 (85 ára); Einar Bergmundur, 24. júlí 1960 (58 ára); Björn Ólafur Ingvarsson, 24. júlí 1969 (49 ára); Kaname Yokoo, 24. júlí 1972 (46 ára – japanskur spilar aðallega á japanska PGA); Jordi Garcia del Moral, 24. júlí 1985 (33 ára) …… og …….. Axel Þórarinn Þorsteinsson Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Lesa meira
Solheim Cup 2019: Matthew útnefnir varafyrirliða sína
Fyrirlið lið Evrópu í European Solheim Cup Catriona Matthew hefir útnefnt Suzann Pettersen og Kathryn Imrie sem varafyrirliða sína í Solheim Cup 2019, sem fram fer í september á næsta ári á velli Gleneagles hótelsins í Perthshire, Skotlandi. Báðir varafyrirliðarnir eru hlaðnir reynslu og ástríðukylfingar og koma með reynslu úr 18 Solheim Cup mótum sem þær hafa ýmist verið leikmenn eða varafyrirliðar. Í ávarpi fyrir the Aberdeen Standard Investments Ladies Scottish Open, sagði Matthew, sem í Skotlandi er betur þekkt undir gælunafni sínu „Beany“: „Ég er ánægð að hafa Kathryn og Suzann við hlið mér í The Solheim Cup á Gleneagles. Þær búa báðar yfir yfirgripsmikilli reynslu og munu verða verðmætar næst 14 Lesa meira
Evróputúrinn: Porsche European Open 40 ára!
Mót vikunnar Porsche European Open fagnar 40 ára afmæli nú í ár og hér að neðan er sagt frá helstu tölum á 40 ára ferli mótsins: 1978 – Þá fór fyrsta Porsche European Open fram. Það var bandaríski kylfingurinn Bobby Wadkins sem sigraði eftir bráðabana Bernard Gallacher og Gil Morgan í Walton Heath Golf Club. 5 – Fimm sinnum hafa þurft að fara fram bráðabanar til að skera úr um sigurvegara í Porsche European Open. Eftir að Wadkins hafði betur gegn Morgan og Gallacher árið 1978, var bráðabani milli Greg Norman og Ken Brown 1986 þar sem „hvíti hákarlinn“ sigraði, Bernhard Langer vann Barry Lane árið 1995, Alex Levy hafði betur gegn Ross Lesa meira
Íslandsbankamótaröðin (4): Andrea Ýr Íslandsmeistari í holukeppni 15-16 ára telpna
Íslandsmeistaramótið í holukeppni hjá unglingunum fór fram á Jaðarsvelli á Akureyri sl. helgi 21.-22. júlí 2018. Íslandsmeistari í holukeppni í telpuflokki 15-16 ára er heimakonan Andrea Ýr Ásmundsdóttir, GA. Andrea Ýr vann viðureign þeirra Jóhönnu Leu Lúðvíksdóttur, GR 8&6. Í 3. sæti varð Kinga Korpak úr GS, en hún vann Ásdísi Valtýsdóttur á 21. holu. Sjá má viðureignirnar í telpuflokki á skema hér að neðan:
Íslandsbankamótaröðin (4): Kristófer Orri Íslandsmeistari 19-21 árs pilta í holukeppni
Íslandsmótið í holukeppni hjá unglingunum fór fram á Jaðarsvelli sl. helgi. Í flokki 19-21 árs pilta varð Kristófer Orri Þórðarson, GKG Íslandsmeistari í holukeppni. Hann hafði betur gegn heimamanninum Kristjáni Benedikt Sveinssyni, GA, í úrslitaviðureigninni 2&0. Í 3. sæti varð Tumi Kúld, GA. Sjá má skema með öllum viðureignunum frá 8 manna úrslitum til úrslitaviðureignarinnar hér að neðan:
Íslandsbankamótaröðin (4): Tristan Snær Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki
Það var Tristan Snær Viðarsson, GM, sem stóð uppi sem Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki á Íslandsmótinu í holukeppni, sem fram fór á Jarðarsvell á Akureyri, sl. helgi. Tristan Snær vann úrslitaviðureignina í sínum flokki gegn Jóhannesi Sturlusyni, GKG 1&0. Í 3. sæti varð Óskar Páll Valsson, GA, en hann sigraði í keppni um 3. sætið – vann Heiðar Snæ Bjarnason, GOS 8&6. Sjá má skema yfir alla leiki frá 16 manna úrslitum að úrslitaleikjunum hér að neðan:
Íslandsbankamótaröðin (4): Lárus Ingi Íslandsmeistari í holukeppni í drengjaflokki
Íslandsmótið í holukeppni hjá unglingunum fór fram á Jaðarsvelli á Akureyi s.l. helgi. Íslandsmeistari í flokki 15-16 ára drengja varð Lárus Ingi Antonsson, GA. Lárus Ingi hafði betur gegn Sveini Andra Sigurpálssyni GM, um Íslandsmeistaratitilinn 5&4. Sigurður Arnar Garðarsson, GKG sigraði í keppni um 3. sætið. Sjá má alla leiki í drengjaflokki á skema hér fyrir neðan frá 16 manna úrslitunum:
PGA: Merritt sigraði á Barbasol
Það var Troy Merritt sem sigraði á Barbasol meistaramótinu, sem var mót vikunnar á PGA Tour. Lokaskor Merritt var 23 undir pari, 265 högg (62 67 69 67). Í 2. sæti, einu höggi á eftir þ.e. á 22 undir pari urðu 3 bandarískir kylfingar: Tom Lovelady, Richy Werensky og Billy Horschel. Troy Merritt átti frábæran örn, á par-4 8. holunni, sem leiðir í keppni um högg vikunnar og sjá má með því að SMELLA HÉR: Til þess að sjá lokastöðuna á Barbasol SMELLIÐ HÉR:
Íslandsbankamótaröðin (4): Amanda Íslandsmeistari 17-18 ára stúlkna
Íslandsmeistaramót unglinga í holukeppni fór fram sl. helgi á Jaðarsvelli á Akureyri. Íslandsmeistari í flokki 17-18 ára stúlkna er Amanda Guðrún Bjarnadóttir, GHD. Hún vann Heiðrúnu Önnu Hlynsdóttur, GOS 1&0 í úrslitaleik um gullið. Í 3. sæti varð síðan nýbakaður klúbbmeistari kvenna í GKG, Árný Eik Dagsdóttir. Á skemanu hér fyrir neðan má sjá leikina allt frá 16 manna úrslitaleikjunum og að úrslitum:
Afmæliskylfingur dagsins: Vikar Jónasson — 23. júlí 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Vikar Jónasson. Harris fæddist 23. júlí 1997 og er því 21 árs í dag! Vikar er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Komast má á facebook síðu Vikars til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan Vikar Jónasson – Innilega til hamingju með 21 árs afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ken Green, 23. júlí 1958 (60 ára STÓRAFMÆLI!!!); Craig Barlow, 23. júlí 1972 (46 ára); Thomas Brent „Boo“ Weekley, 23. júlí 1973 (45 ára); Mikko Korhonen, 23. júlí 1980 (38 ára); Kiradech Aphibarnrat, 23. júlí 1989 (29 ára); Harris English, 23. júlí 1989 (29 ára); Sam Burns, 23. júlí Lesa meira










