Afmæliskylfingur dagsins: Guðlaugur Gíslason – 1. ágúst 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Guðlaugur Gíslason, fv. alþingismaður og forvígismaður margs góðs í Vestmannaeyjum Guðlaugur var og framúrskarandi kylfingur. Guðlaugur var fæddur 1. ágúst 1908 og hefði því orðið 110 ára í dag. Hann lést 6. mars 1992. Guðlaugur var forystumaður Golfklúbbs Vestmannaeyja um árabil, sem í ár (4. desember) fagnar 80 ára afmæli sínu. Eins var Guðlaugur einn aðalhvatamaður að stofnun Fiska- og Náttúrugripasafns í Vestmannaeyjum, sem í dag heitir Sæheimar. Sæheimar voru í fréttum í dag því þau sorgartíðindi bárust að Tóti lundi hefði látist, en Tóti var lifandi lundi sem hafður var til sýnis í safninu sem Guðlaugur hafði forystu um að byggt yrði. Guðlaugur er faðir Jakobínu Lesa meira
Nordic Golf League: 3 íslenskir kylfingar hefja leik í dag í Danmörku
Atvinnukylfingarnir úr GR Andri Þór Björnsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús hefja leik í dag á Made in Denmark Qualifier – by EnergiMetropol Esbjerg. Mótið er úrtökumót fyrir Made in Denmark mótið sem er hluti af Evróputúrnum. Það fer fram á velli Esbjerg Golfklub og má sjá heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR: Andri Þór fer út kl. 12:40 að staðartíma (10:40 að íslenskum tíma); Guðmundur Ágúst hálftíma síðar kl. 13:10 (11:10 að íslenskum tíma) og Haraldur Franklín kl. 14:40 að staðartíma (12:40 að íslenskum tíma). Fylgjast má með gengi íslensku strákanna með því að SMELLA HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Kolbrún Rut Evudóttir – 31. júlí 2018
Afmæliskylfingur dagsins eru Kolbrún Rut Evudóttir. Kolbrún er fædd 31. júlí 1996 og á því 22 ára afmæli í dag. Komast má á facebook síðu Kolbrúnar hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið Kolbrún Rut Evudóttir – Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Víðir Jóhannsson, 31. júlí 1955 (63 ára); Þorvaldur Í. Þorvaldsson 31. júlí 1957 (61 árs); Peter Albert Charles Senior, 31. júlí 1959 (59 ára); Hss Handverk, 31. júlí 1966 (52 ára); Árni Snævarr Guðmundsson, 31. júlí 1967 (51 árs); Helgi Birkir Þórisson, GSE (43 ára); Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem Lesa meira
Hvað var í sigurpoka DJ?
Dustin Johnson (DJ) sigraði á RBC Canadian Open. Eftirfarandi verkfæri voru í sigurpoka hans og eins minnst á golfföt hans, skó og hanska: Dræver: TaylorMade M4 10.5° með Fujikura Speeder X skafti. 4 tré: TaylorMade M4 HL með Project X HZDRUS Black X skafti. Járn (3-PW): TaylorMade P730 DJ Protos með Dynamic Gold X100 sköftum Fleygjárn: TaylorMade Milled Grind (54°, 60° and 64° Hi-Toe) Pútter: TaylorMade Spider Tour Black Bolti: TaylorMade TP5x Hanski: TaylorMade Tour Preferred Golfföt og skór: Adidas.
Hver er kylfingurinn: Richard McEvoy?
Enski kylfingurinn Richard McEvoy sigraði í gær á Porsche European Open og var þetta 1. sigur hans á Evróputúrnum. McEvoy er ekki alla daga í golffréttamiðlum þannig að ekki er furða þó spurt sé: Hver er kylfingurinn Richard McEvoy? Richard McEvoy er fæddur 13. júní 1979 í Shoeburyness á Englandi. McEvoy byrjaði í golfi eftir að vinur pabba hans sem var golfkennari gaf honum kylfur 8 ára gamall, en McEvoy reyndist mjög hæfileikaríkur unglingur. Hann var í sigurliði Breta og Íra í Walker Cup og vann Q-school Evrópumótaraðarinnar 2003 en hélt ekki kortinu sínu 2004. Hann fékk aftur spilaréttindi sín í lok 2005 í gegnum Áskorendamótaröðina, með sigri á Panasonic Lesa meira
LET & LPGA: Ariya sigraði í Skotlandi!!!
Það var thaílenski kylfingurinn Ariya Jutanugarn, sem bar sigur úr býtum á Opna skoska kvennamótinu, eða m.ö.o. Aberdeen Standard Investments Ladies Scotish Open. Ariya lék á samtals 13 undir pari, 271 höggi (67 – 65 – 73 – 66). Aðeins 1 höggi á eftir varð ástralski kylfingurinn Minjee Lee. Ólafía Þórunn og Valdís Þórunn tóku þátt í mótinu, en náðu því miður ekki niðurskurði. Til þess að sjá lokastöðuna á Opna skoska kvennamótinu SMELLIÐ HÉR:
PGA: DJ sigraði á RBC Canadian Open!!!
Það var Dustin Johnson, sem oft er nefndur DJ sem sigraði á RBC Canadian Open. DJ lék á samtals 23 undir pari, 265 höggum (68 66 65 66). Whee Kim og Byeong Hun An, báðir frá S-Kóreu deildu 2. sætinu 3 höggum á eftir DJ. Til þess að sjá hápunkta 4. hrings RBC Canadian Open SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá lokastöðuna á RBC Canadian Open SMELLIÐ HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Guðmundur Rúnar Hallgrímsson – 30. júlí 2018
Afmæliskylfingur dagsins er klúbbmeistari GS 2018 og mörg undanfarin ár, Guðmundur Rúnar Hallgrímsson. Guðmundur Rúnar er fæddur 30. júlí 1975 og á því 43 ára afmæli í dag. Hann hefir 10 sinnum orðið klúbbmeistari GS. Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan Guðmundur Rúnar Hallgrímsson (42 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Bergsteinn Hjörleifsson GK, 30. júlí 1962 (56 ára); Graeme McDowell, 30. júlí 1979 (39 ára); Justin Rose, 30. júlí 1980 (38 ára); Nino Bertasion, 30. júlí 1988 (30 ára STÓR-AFMÆLI!!!); Louise Larsson, 30. júlí 1990 (28 ára) ….. Lesa meira
Evróputúrinn: Birgir Leifur varð T-48 á Porsche European Open
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lauk keppni á Porsche European Open mótinu T-48. Hann lék samtals á sléttu pari 288 höggum (72 70 75 71) og lauk keppni eins og segir T-48 þ.e. deildi 48. sætinu með 5 öðrum kylfingum. Fyrir árangur sinn í mótinu hlaut Birgir Leifur € 9,200 (sem er eitthvað um ISK 1.120.000,-) Glæsilegt hjá Birgi Leif!!! Sigurvegari í mótinu varð enski kylfingurinn Richard McEvoy, en hann lék á 11 undir pari, 277 höggum. Sjá má hápunkta 4. hrings á Porsche European Open með því að SMELLA HÉR: Til þess að sjá lokastöðuna í mótinu SMELLIÐ HÉR:
Eimskipsmótaröðin 2018 (7): Guðrún Brá og Axel Íslandsmeistarar í höggleik!!!
Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Axel Bóasson, bæði úr Keili, eru Íslandsmeistarar í golfi 2018. Þetta er fyrsti titill Guðrúnar en sá þriði hjá Axel. Axel jafnaði mótsmetið á Íslandsmótinu á -12 samtals, en Þórður Rafn Gissurarson (GR) lék á -12 árið 2015 á Akranesi. Þau Guðrún og Axel eru systkinabörn og faðir Guðrúnar, Björgvin Sigurbergsson, er fjórfaldur Íslandsmeistari í golfi. 1. Axel Bóasson, GK (65-67-70-66) 268 högg (-12) 2. Björn Óskar Guðjónsson, GM (66-69-68-67) 270 högg (-10) 3. Haraldur Franklín Magnús, GR (72-62-71-66) 271 högg (-9) 4.-5. Kristján Þór Einarsson, GM (70-69-69-68) 276 högg (-4) 4.-5. Kristófer Orri Þórðarson, GKG (73-66-69-68) 276 högg (-4) 6.-7. Stefán Þór Bogason, GR (70-68-72-68) Lesa meira









