LPGA: Ólafía Þórunn á glæsilegum -4 e. 1. dag í Kanada!!!
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir var nú rétt í þessu að ljúka við 1. hring á CP Women´s Open, sem er mót vikunnar á LPGA. Ólafía lék samtals á glæsilegum 4 undir pari, 68 höggum og er sem stendur T-16!!! Nokkrar eiga eftir að ljúka leik og því gæti sætistala Ólafíu Þórunnar enn breyst. Á hringnum fékk Ólafía 1 örn, 3 fugla og 1 skolla. Eins og staðan er nú eru þær Ariya Jutanugarn frá Thaílandi og Mariajo Uribe frá Kólombíu efstar og jafnar í 1. sæti, á samtals 8 undir pari, hvor. Til þess að sjá stöðuna á CP Women´s Open SMELLIÐ HÉR:
Nordic Golf League: Haraldur Franklín T-61 e. 1. dag á Åhus KGK ProAm
Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús, úr GR, tekur þátt í Åhus KGK ProAm, en mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Mótið fer fram í Kristianstads golfklúbbnum i Åhus, í Danmörku. Haraldur hóf keppni á 10. braut og kom í hús á 4 yfir pari, 74 höggum. Á hringnum fékk Haraldur Franklín 3 fugla, 5 skolla og 1 skramba. Eftir 1. dag er Haraldur Franklín T-61. Til þess að sjá stöðuna í Åhus KGK ProAm mótinu SMELLIÐ HÉR:
Evróputúrinn: 4 efstir og jafnir e. 1. dag D+D Real Czech Masters
Það eru 4 kylfingar sem eru efstir og jafnir eftir 1. dag móts vikunnar á Evróputúrnum, D+D Real Czech Masters. Spilað er í Albatross golfstaðnum í Tékklandi. Það eru þeir Thomas Pieters frá Belgíu, John Daly frá Bandaríkjunum, JÁ JOHN DALY!!!, enski kylfingurinn Callum Tarren og Gavin Green frá Malasíu, sem eru efstir og jafnir. Þeir hafa allir spilað á 8 undir pari, 64 glæsihöggum!!! Birgir Leifur Hafþórsson okkar, atvinnukylfingur úr GKG, er meðal keppenda og hann kom í hús í dag á 2 undir pari, 70 höggum – fékk 3 fugla og 1 skolla; er sem stendur T-65 og verður að halda vel á spöðunum til þess að komast gegnum Lesa meira
Eimskipsmótaröðin 2018 (8): Guðmundur Ágúst og Helga Kristín efst e. 1. dag
Það er mikil spenna sem ríkir á Securitasmótinu þar sem keppt er um GR-bikarinn á Eimskipsmótaröðinni. Góð skor voru á fyrsta hringnum í blíðviðrinu á Grafarholtsvelli í dag. Mótið er jafnframt lokamót Eimskipsmótaraðarinnar 2017-2018. Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR) er efstur í karlaflokki á -4 og Helga Kristín Einarsdóttir (GK) lék á -3. Rúnar Arnórsson úr Keili lék á -3 og er ekki langt á eftir Guðmundi. Sex kylfingar eru jafnir í 3.-8. sæti og þar á meðal er Axel Bóasson, GK á -1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Keili, er sjö höggum á eftir Helgu. Mótið hófst fimmtudaginn 23. ágúst og fer það fram á Grafarholtsvelli. Stigahæstu keppendur Eimskipsmótaraðarinnar 2017-2018 eru með Lesa meira
LPGA: Ólafía Þórunn á -1 e. 9 holur i Kanada – Fylgist m/HÉR!
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir er við keppni á CP Women´s Open í Kanada. Þegar 1. hringurinn hjá henni er hálfnaður er hún búin að spila á 1 undir pari og er sem stendur T-65. Ólafía byrjaði á 10. teig og fékk skolla á par-3 11. holunni. Hún tók skollann aftur á glæsilegan máta á par-5 14. brautinni þar sem hún fékk örn! Vonandi er að Ólafía Þórunn komist í gegnum niðurskurð á morgun! Efstar í mótinu, sem stendur eru þær Ariya Jutanugarn frá Thaílandi og Mariajo Uribe frá Kólombíu, báðar á 8 undir pari, hvor. Sjá má stöðuna eftir 1. dag á CP Women´s Open með því að SMELLA HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Auður Kjartansdóttir – 23. ágúst 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Auður Kjartansdóttir. Auður er fædd 23. ágúst 1991 og er því 27 ára í dag! Hún er klúbbmeistari Golfklúbbsins Mostra í Stykkishólmi 2013, 2014, 2015 og 2016 eða 4 ár í röð!!! Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Auði með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu Auðar til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan: Auður Kjartansdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Peter Thomson, 23. ágúst 1929 (89 ára); Skylmingafélag Reykjavíkur 23. ágúst 1948 (70 ára); Guðrún Sesselja Arnardóttir 23. ágúst 1966 (52 ára); Mo Joong-kyung, 23. ágúst 1971 (47 Lesa meira
Frægir kylfingar: Aretha Franklin var aðdáandi Tiger
Samúðarskeytunum rigndi yfir aðstandendur fimmtudag fyrir viku, 16. ágúst 2018, þegar fréttir bárust af því að „drottning Soul-tónlistarinnar“ Aretha Franklin hefði látist af völdum krabbameins í brisi, 76 ára að aldri. Franklin var ofurstjarna, sem átti 20 lög, sem trónuðu í 1. sæti vinsældalista þ.á.m. lögin „Respect“, „Chain of Fools“ og „(You Make Me Feel Like) A Natural Woman.“ Hún var fyrsta söngkonan sem tekin var inn í Frægðarhöll Rock and Roll. Hún hlaut 18 Grammy-verðlaun. Hún söng við jarðarför Martin Luther King. Hún söng við embættistöku Bill Clinton og Barack Obama. Hún var óumdeilanlega ein af stærstu stjörnum og söngkonum síns tíma. Hún var líka kylfingur og golfáhangandi þ.e. Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Brittany Lang —- 22. ágúst 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Brittany Lang. Brittany fæddist í Richmond, Virginia, 22. ágúst 1985 og á því 33 ára afmæli í dag!!! Brittany var í Solheim Cup liði Evrópu 2013 og m.a. aðeins önnur af 2 til þess að vinna leik sinn í tvímenningsleikum sunnudagins f.h. liðs Bandaríkjanna, en Brittany vann leik sinn gegn Azahara Muñoz 2&1. Brittany var jafnframt í Solheim Cup liðum Bandaríkjanna 2015 og 2017. Brittany var 2 ár í háskóla, Duke University og spilaði golf með háskólaliðinu. Hún hætti samt í háskóla og gerðist atvinnumaður í golfi 2005 eftir gott gengi á US Women´s Open þar sem hún náði 2. sætinu (T-2) (sem er næstbesti árangur hennar Lesa meira
Lynch m/óvenjulega sveiflu
NFL stjarnan Marshawn Lynch er á fullu í bandaríska fótboltanum og er ekkert að hætta þó svo að hann sjáist af og til með kylfu í hendi að slá lítinn hvítan bolta. Golden State Warriors leikaðurinn Klay Thompson póstaði myndskeiði af Lynch á golfvellinum, en hann stóð fyrir góðgerðargolfmóti sem Lynch tók þátt í þ.e. the Thompson Family Foundation Golf Tournament,. Ýmislegt er óvenjulegt við sveiflu Lynch. Hann lyftir fremri hælnum svo hann líkist ballerínu. Hann virðist nota olnbogana meir en axlir og tekur síðan langt stopp á toppnum, sem a.m.k. er ágætt þegar verið er að taka mynd af honum. Síðan líkist sveifla hans meira hafnarboltasveiflu! Sjá má sveiflu Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Anna Björk Birgisdóttir – 21. ágúst 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Anna Björk Birgisdóttir. Hún fæddist 21. ágúst 1966 og á því 52 ára afmæli í dag!!! Hún er í kvennanefnd Golfklúbbs Reykjavíkur. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska Önnu Björk til hamingju með afmælið Anna Björk Birgisdóttir (52 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Eiríkur Jónsson, 21. ágúst 1905 (113 ára); Sigridur Eythorsdottir, f. 21. ágúst 1940- d. 22. júlí 2016 ; Richard Francis „Dick“ Zokol, 21. ágúst 1958 (60 ára MERKISAFMÆLI!!!); Sturla Friðriksson, 21. ágúst 1962 (56 ára); Keramikhofið Slf, 21. ágúst 1972 (46 ára); Magnus A Carlson, 21. Lesa meira










