Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2018 | 21:00

Eimskipsmótaröðin 2018 (8): Guðmundur Ágúst og Helga Kristín sigruðu

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og Helga Kristín Einarsdóttir, GK sigruðu á Securitasmótinu ı GR-bikarnum á Eimskipsmótaröðinni, sem fram fór í Grafarholti. Skorið hjá Guðmundi var stórkostlegt en hann lék hringina þrjá á -14 samtals en til samanburðar er mótsmetið á Íslandsmótinu í golfi -12. Helga Kristín bætti sig um 10 högg á milli keppnisdaga og lék best þegar mest á reyndi. Guðmundur Ágúst fær 250.000 kr. í verðlaunafé þar sem hann er atvinnukylfingur en Helga Kristín fær 70.000 þar sem hún er áhugakylfingur. Stigameistarar Eimskipsmótaraðarinnar eru Axel Bóasson, GK sem fær 500.000 kr. í sinn hlut fyrir það afrek í karlaflokki. Guðrún Brá Björgvinsdóttir er stigameistari í kvennaflokki á Eimskipsmótaröðinni Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2018 | 20:00

Golfgrín á laugardegi 2018 (17)

Það eru til margir ágætir írskir golfbrandarar og hér er einn þeirra: Mary’s Diary: Tonight, I thought Paddy was acting weird. We had made plans to meet at a nice restaurant for dinner. I was shopping with my friends all day long, so I thought he was upset at the fact that my friend’s dropped me off a bit late, but he made no comment on it. Conversation wasn’t flowing, so I suggested that we go somewhere quiet so we could talk. He agreed, but he didn’t say much. I asked him what was wrong; He said, „Nothing.“ I asked him if it was my fault that he was upset. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Úlfar Jónsson —– 25. ágúst 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Úlfar Jónsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari. Úlfar er fæddur 25. ágúst 1968 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Úlfar Jónsson– 50 ára Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Dwight Nevil, 25. ágúst 1944 (74 ára); Magnús Eiríksson, 25. ágúst 1945 (73 ára); Thorunn Erlu Valdimarsdottir, 25. ágúst 1954 (64 ára); Ingi Karl Ingibergsson 25. ágúst 1962 (56 ára); Angela Park (á kóreönsku: 박혜인) 25. ágúst 1988 (30 ára STÓRAFMÆLI!!!) …. og …… Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2018 | 23:00

PGA: Koepka og Lovemark leiða e. 2. dag

Það eru tveir sem deila forystunni í hálfleik á Northern Trust Open: Brooks Koepka og Jamie Lovemark. Báðir hafa þeir spilað á 10 undir pari, 132 höggum; Lovemark (66 66) og Koepka (67 65). Einn í 3. sæti er Adam Scott á samtals 9 undir pari og í 3. sæti eru þeir Dustin Johnson og Bryce DeChambeau á samtals 8 undir pari, hvor. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á Northern Trust Open SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Northern Trust Open SMELLIÐ HÉR: Aðalfréttagluggi: Brooks Koepka

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2018 | 22:00

Eimskipsmótaröðin 2018 (8): Guðmundur Ágúst m/ vallarmet – Guðrún Brá efst í kvennaflokki!

Það er mikil spenna sem ríkir á Securitasmótinu þar sem keppt er um GR-bikarinn á Eimskipsmótaröðinni. Mótið er jafnframt lokamót Eimskipsmótaraðarinnar 2017-2018. Frábært golf var leikið á Grafarholtsvelli í dag í karlaflokknum þar sem Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, setti vallarmet með því að leika á 63 höggum eða -8. Hann er efstur í karlaflokknum á -12 samtals og er með fimm högga forskot á Íslandsmeistarann Axel Bóasson úr GK sem lék á 65 höggum í dag og átti vallarmetið í stutta stund í dag. Í kvennaflokknum eru miklar sviptingar. Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr GK er með eitt högg í forskot á Helgu Kristínu Einarsdóttur, GK. Guðrún er á +5 samtals Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2018 | 21:00

Evróputúrinn: Birgir Leifur úr leik

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, tók þátt í D+D Real Czech Masters, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum. Hann komst því miður ekki í gegnum niðurskurð. Birgir Leifur lék á samtals sléttu pari, 144 höggum (70 74) en það dugði ekki til niðurskurður var miðaður við 4 undir pari eða betra. Í efsta sæti eftir 2. hring D+D REal Czech Masters er Gavin Green frá Malasíu en hann hefir spilað á samtals 12 undir pari (64 68). Til þess að sjá stöðuna á D+D Real Czech Masters SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 2. dags á D+D Real Czech Masters SMELLIÐ HÉR:   

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2018 | 20:00

LPGA: Ólafía fór g. niðurskurð!

Ólafía Þórunn „okkar“Kristinsdóttir tekur þátt í   CP Women´s Open, sem er mót vikunnar á LPGA og fer fram í Kanada. Hún flaug í gegnum niðurskurð, hefir spilað á samtals 3 undir pari, 141 höggi (68 73). Í dag á 2. hring mótsins lék Ólafía á 1 yfir pari, 73 höggum fékk 1 fugl og 2 skolla. Niðurskurður er miðaður við samtals 2 undir pari eða betra. Sem stendur er Ólafía Þórunn T-45 en sætistalan getur enn breyst því nokkrar eiga eftir að ljúka hringjum sínum. Til þess að sjá stöðuna á CP Women´s Open SMELLIÐ HÉR:

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2018 | 18:00

Evróputúrinn: Heppnishögg

Þeir á Evróputúrnum hafa tekið saman yfirlit yfir mestu heppnishögg sem sést hafa í sögu Evrópumótaraðarinnar. Sjá má myndskeið með heppnishöggum Evróputúrsins með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hrafnhildur Sigurðardóttir – 24. ágúst 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Hrafnhildur Sigurðardóttir. Hrafnhildur er fædd 24. ágúst 1957 og á því 61 árs afmæli í dag. Komast má á facebook síðu Hrafnhildar hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið Hrafnhildur Sigurðardóttir – Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Bergljót Davíðsdóttir, 24. ágúst 1953 (65 árs); Sam Torrance, 24. ágúst 1953 (65 ára); Hrafnhildur Sigurðardóttir, 24. ágúst 1957 (61 árs); Svandís Svavarsdóttir 24. ágúst 1964 (54 ára); Gísli Tryggvason, 24. ágúst 1969 (49 ára); Jesús Armando Amaya Contreras, 24. ágúst 1969 (49 ára); Andrew Marshall, 24. ágúst 1973 (45 ára); Björn Steinar Brynjólfsson, 24. ágúst Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2018 | 07:00

PGA: 4 tiltölulega óþekktir efstir e. 1. dag Northern Trust

Það eru 4 kylfingar efstir og jafnir á móti vikunnar á PGA Tour Northern Trust Open. Þetta eru bandarísku kylfingarnir Jamie Lovemark, Sean O´Hair, Kevin Tway og Vaughn Taylor. Þeir hafa allir spilað á 5 undir pari 67 höggum. Þetta eru e.t.v. ekki þekktustu kylfingarnir á PGA Tour og má sjá eldri kynningar Golf1 á þeim hér (smellið á nafn viðkomandi kylfings Jamie Lovemark; Sean O´Hair 1 og Sean O´Hair 2; Kevin Tway og Vaughn Taylor. Hópur 13 kylfinga er 1 höggi á eftir þ.á.m. þeir Hideki Matsuyama, Dustin Johnson og Brooks Koepka. Til þess að sjá stöðuna á Northern Trust að öðru leyti SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta Lesa meira