Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 26. 2018 | 23:59

LPGA: Ólafía Þórunn lauk keppni T-64 á CP Women´s Open

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir lauk keppni á CP Women´s Open T-64. Hún lék á samtals 1 yfir pari, 289 höggum (68 73 75 73). Fyrir þessi úrslit færist Ólafía enn niður stigalistann var í 137. sæti en er nú í 138. sæti stigalistans, en hún verður að vera meðal efstu 100 ætli hún sér að halda korti sínu og þar með spilarétti á LPGA. Sigurvegari mótsins varð heimakonan Brooke M. Henderson en hún lék á 21 undir pari, 267 höggum (66 66 70 65) og færist við sigurinn úr 7. sæti stigalistans í 2. sætið, sem er það hæsta sem Henderson hefir náð á ferli sínum. Sjá má lokastöðuna á Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 26. 2018 | 23:00

PGA: DeChambeau sigraði á Northern Trust!

Það var Bryce DeChambeau sem stóð uppi sem sigurvegari á Northern Trust Open. Sigurskor DeChambeau var 18 undir pari, 266 högg (68 66 63 69). Þetta var 3. PGA Tour sigu DeChambeau og hann var býsna sannfærandi því hann átti heil 4 högg á þann sem kom í 2. sæti, Tony Finau, sem var á samtals 14 undir pari, 270 höggum (69 67 66 68). Billy Horschel og Ástralinn Cameron Smith deildu síðan 3. sætinu á samtals 13 undir pari, hvor. Til þess að sjá lokastöðuna á Northern Trust Open SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta lokahrings Northern Trust Open SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 26. 2018 | 20:00

Íslandsbankamótaröðin 2018 (5): Úrslit

Keppnistímabilinu á Íslandsbankamótaröð unglinga lauk í kvöld, sunnudaginn 26. ágúst. Fimmta mót tímabilsins fór fram á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar dagana 24.-26. ágúst. Keppt var í fjórum aldursflokkum hjá piltum og þremur aldursflokkum hjá stúlkum. Úrslit urðu eftirfarand. 19-21 árs: 1. Daníel Ingi Sigurjónsson, GV (74-76-78) 228 högg (+15) 2. Sigurður Már Þórhallsson, GR (87-76-77) 240 högg (+27) 3. Atli Már Grétarsson, GK (89-78-82 ) 249 högg (+36) 17-18 ára: 1. Sigurður Bjarki Blumenstein, GR (68-72-71) 211 högg (-2) 2. Elvar Már Kristinsson, GR (73-69-71) 213 högg (par) 3. Viktor Ingi Einarsson, GR (74-69-76) 219 högg (+6) 4. Jón Gunnarsson, GKG (78 -71-75) 224 högg (+11) 5. Aron Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 26. 2018 | 19:00

Eimskipsmótaröðin 2018: Axel og Guðrún Brá stigameistarar

Axel Bóasson, GK og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK stóðu uppi sem stigameistarar á Eimskipsmótaröðinni 2017-2018. Úrslitin réðust á Securitasmótinu ı GR-bikarnum í gær á Grafarholtsvelli. Þetta er í þriðja sinn sem Axel fagnar þessum titli en í fyrsta sinn sem Guðrún Brá er stigameistari í kvennaflokki. Axel og Guðrún eru ríkjandi Íslandsmeistarar í golfi 2018 og fengu þau 500.000 kr. í verðlaunafé fyrir árangur sinn á Eimskipsmótaröðinni. Árangur Guðrúnar á tímabilinu var stórkostlegur. Hún sigraði á fimm af alls sex mótum sem hún tók þátt í. Sigurhlutfallið var því 83%. Helga Kristín Einarsdóttir, GK varð í öðru sæti á stigalistanum og Anna Sólveig Snorradóttir, GK varð í þriðja sæti. Lokastöðuna Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 26. 2018 | 17:00

Evróputúrinn: Pavan sigraði!

Það var ítalski kylfingurinn Andrea Pavan sem sigraði á D+D Real Czech Masters. Sigurskor Pavan var 22 undir pari, 266 högg (65 69 65 67). Í 2. sæti 2 höggum á eftir varð gamla írska brýnið Pádraig Harrington. Sjá má hápunkta D+D Real Czech Masters með því að SMELLA HÉR:  Sjá má lokastöðuna á D+D Real Czech Masters með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 26. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Stefanía Daney Guðmundsdóttir – 26. ágúst 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Stefanía Daney Guðmundsdóttir. Stefanía Daney er fædd 26. ágúst 1997 og á því 21 árs stórafmæli. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Stefaníu Daneyju til hamingju með afmælið hér að neðan   Stefanía Daney Guðmundsdóttir – 21 árs – Innilega til hamingju með stórafmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: John Hudson, 26. ágúst 1945 (73 ára); Howard K. Clark, 26. ágúst 1954 (64 ára); James Edgar Rutledge 26. ágúst 1959 (59 ára); Eiríkur Þór Hauksson, 26. ágúst 1975 (43 ára); Ben Martin, 26. ágúst 1987 (31 árs); Jenny og Kristin Coleman (spila báðar á LPGA) 26. ágúst 1992 (26 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2018 | 23:00

PGA: DeChambeau efstur f. lokahring Northern Trust

Það eru miklar sviptingar á toppnum á Northern Trust Open, sem er mót vikunnar á PGA Tour. Í efsta sæti fyrir lokahringinn er Bryce DeChambeau frá Bandaríkjunum. Hann hefir spilað á samtals 16 undir pari, 197 höggum (68 66 63) og færist í aukanna með hverjum hring. Í 2. sæti er Keegan Bradley búinn að tylla sér á 12 undir pari og 3. sætinu deila þeir Cameron Smith frá Ástralíu og hinn bandaríski Tony Finau, báðir á samtals 11 undir pari Til þess að sjá stöðuna á Northern Trust Open eftir 3. dag SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 3. hrings á Northern Trust Open SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2018 | 22:30

Evróputúrinn: Harrington og Pavan efstir og jafnir í Prag

Það eru þeir Pádraig Harrington frá Írlandi og hinn ítalski Andrea Pavan, sem deila forystunni fyrir lokahringinn á D+D Real Czech Masters, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum. Báðir hafa þeir Harrington og Pavan spilað á 7 undir pari, 199 höggum; Harrington (66 68 65) og Pavan (65 69 65). Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG,  tók þátt í mótinu, en komst ekki í gegnum niðurskurð. Til þess að sjá stöðuna á D+D Real Czech Masters SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta D+D Real Czech Masters SMELLIÐ HÉR:  Í aðalmyndaglugga: Andrea Pavan.

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2018 | 22:00

LPGA: Ólafía á 75 3. dag í Kanada

Ólafía Þórunn „okkar“Kristinsdóttir tekur þátt í CP Women´s Open, sem er mót vikunnar á LPGA og fer fram í Wascana Country Club í Regina, Saskatchewan í Kanada. Þriðji hringurinn var sá slakasti hjá Ólafíu Þórunni til þessa í mótinu, en hún fékk 2 fugla og 5 skolla. Ólafía hefir spilað á samtals sléttu pari, 216 höggum (68 73 75). Hún deilir einu af neðstu sætunum af þeim sem komust í gegnum niðurskurð, með Cristie Kerr þ.e. 64. sætinu. Til þess að sjá stöðuna á CP Women´s Open eftir 3. dag SMELLIÐ HÉR:

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2018 | 22:00

Nordic Golf League: Haraldur úr leik

Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús, úr GR, tók þátt í Åhus KGK ProAm, en mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Mótið fer fram í Kristianstads golfklúbbnum i Åhus, í Danmörku, dagana 23.-25. ágúst 2018. Haraldur komst ekki í gegnum niðurskurð í gær, en aðeins munaði einu sárgrætilegu höggi. Niðurskurður var miðaður við samtals 6 yfir pari eða betra en Haraldur var á 7 yfir pari, 147 höggum (74 73). Mótinu lauk í dag og var sigurvegari Daninn Benjamin Henry Poke, sem lék á 6 undir pari, 204 höggum (70 67 67). Til þess að sjá lokastöðuna í Åhus KGK ProAm mótinu SMELLIÐ HÉR: