„Stelpurnar okkar“ í 37. sæti e. 1. dag á HM áhugakylfinga
Heimsmeistaramót áhugakylfinga í kvennaflokki hófst miðvikudaginn 29. ágúst og er keppt á Írlandi. Alls eru 57 þjóðir sem taka þátt og þar á meðal er landslið Íslands sem er skipað þremur leikmönnum. Keppt er um Espirito Santo Trophy á þessu móti sem fram fer nú fram í 28. sinn. HM fer fram á Carton House, sem er fyrsta flokka keppnisvöllur og allar aðstæður eru í hæsta gæðaflokki. Keppt er á tveimur keppnisvöllum, sem bera nöfnin Montgomerie og O’Meara. Skor keppenda er uppfært og má sjá með því að SMELLA HÉR: Helga Kristín Einarsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Saga Traustadóttir skipa landslið Íslands. Jussi Pitkänen, afreksstjóri GSÍ, er með í för sem Lesa meira
Paulina Gretzky fúl?
Paulina Gretzky var mikið milli tannanna á fólki sl. helgi vegna myndar sem birtist af henni þar sem hún er að horfa á viðtal fréttamanns CBS Amöndu Balionis við eiginmann sinn Dustin Johnson (DJ). Gretzky virtist lítt skemmt að sjá fegurðardísina taka viðtalið við DJ og náðist á mynd með krosslagða handleggi af Terez Owens. Og meðan internetið hrærði í nornarpottinum, tóku Gretzky og Balionis málið í sínar hendur og sendu frá sér „sameiginlega fréttatilkynningu.“ Í henni stóð orðrétt: “Our joint statement on a recent meme: Hi Haters 😏,” Stutt og laggott!!! Hinn 2 barna 34 ára DJ lauk keppni á Northern Trust T-11 og tíar næst upp á morgun Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Michael Jackson – 29. ágúst 2018
Hver hefði trúað því að popgoðsögnin Michael Jackson (oft kallaður konungur popsins) kynni eitthvað fyrir sér í golfi? Svo er að sjá a.m.k. ef eitthvað er að marka meðfylgjandi myndskeið SMELLIÐ HÉR: Eins var Jackson alltaf í golfhönskum, sem settir voru semalíusteinum og hefir sá dýrasti sem stjarnan hélt mikið upp á selst fyrir litlar $350,000 (u.þ.b 35 milljónir íslenskra króna) – Já jafnvel golfhanskar geta orðið verðmætir með tímanum!!! Það er Michael Jackson sem er afmæliskylfingur dagsins hér á Golf 1, en hann hefði orðið 60 ára í dag hefði hann lifað. Michael Joseph Jackson var fæddur 29. ágúst 1958 og dó s.s. flestir aðdáendur hans vita 25. júní 2009, Lesa meira
Ólafía Þórunn hefur keppni á morgun i Oregon
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, LPGA-kylfingur úr GR, hefur leik á morgun, fimmtudaginn 30. ágúst 2018 á LPGA móti sem fram fer í Portland, Oregon, í Bandaríkjunum. Ólafía Þórunn fer út kl. 12:26 að staðartíma (sem er kl. 19:26 hér heima á Íslandi). Hún er í ráshóp með danska kylfingnum Nönnu Koerstz Madsen og Mi Jung Hur frá S-Kóreu. Ólafía endaði í 64. sæti á CP mótinu sem lauk s.l. sunnudag í Kanada. Þar lék hún á +1 samtals. Ólafía hefur leikið á 20 mótum á tímabilinu. Eins og staðan er núna þá er Ólafía í sæti nr. 138 á peningalista LPGA mótaraðarinnar. Hún fór upp um eitt sæti frá því Lesa meira
„Umslags“ reglan í Rydernum?
Nú þegar liðin í 2018 Rydernum eru næstum klár og keppnin nálgast óðfluga þá gæti svo farið að kylfingar heyri hugtakið “envelope rule”, sem hér er þýdd sem „umslags“ reglan. En hvað er „the envelope rule“ eða umslagsreglan? Umslagsreglan tók gildi árið 1979 og er þannig að ef einhver af leikmönnum annars liðsins meiðist þá getur fyrirliði hins liðsins valið einn af leikmönnum, sínum, sem hann vill ekki að spili í tvímenningnum á sunnudeginum og sá meiddi og val fyrirliðans eru paraðir saman og leikurinn er talinn hafa farið jafnt, þ.e. hvort lið fær hálft stig. Fyrirliði hins liðsins verður að setja nafn leikmannsins, sem hann vill ekki að spili Lesa meira
Helga, Ragnhildur og Saga keppa f. Íslands á HM áhugakylfinga
Þær Helga Kristín Einarsdóttir, GK, Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og Saga Traustadóttir keppa fyrir Íslands hönd á HM áhugakylfinga, eða Espirito Santo Trophy. Mótið fer fram í Carton House á Írlandi, 29. ágúst – 1. september 2018. Keppt er á tveimur völlum, Montgomerie og O’Meara, sem eru mjög krefjandi. Alls eru 59 þjóðir sem keppa á HM. Til þess að fylgjast með þeim Helgu, Ragnhildi og Sögu á HM áhugakylfinga SMELLIÐ HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Butch Harmon —– 28. ágúst 2018
Það er Butch Harmon sem er afmæliskylfingur dagsins. Butch, sem kennt hefir öllum helstu stórstjörnum golfsins er fæddur 28. ágúst 1943 og á því 75 ára afmæli í dag!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jóhann Árelíuz (66 ára); David Whelan, 28. ágúst 1961 (57 ára); Lee McLeod Janzen, 28. ágúst 1964 (54 árs); Pétur Hrafnsson, 28. ágúst 1966 (51 árs); Yugi Igarashi, 28. ágúst 1968 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Joakim Haeggman 28. ágúst 1969 (49 ára); Kristrún Heimisdóttir, 28. ágúst 1971 (47 ára); Gísli Rafn Árnason (45 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið Lesa meira
Stigameistarar Íslandsbankamótaraðarinnar 2018
Lokahóf Íslandsbankamótaraðarinnar fór fram s.l. sunnudagskvöld, 26. ágúst 2018 að loknu fimmta og síðasta móti tímabilsins á mótaröð yngri afrekskylfinga Íslands. Alls voru sjö stigameistarar krýndir á lokahófinu sem fram fór í íþróttamiðstöð GKG. Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ fékk góða aðstoð við að veita viðurkenningar á lokahófinu.Íslandsmeistararnir úr Keili og atvinnukylfingarnir Guðrún Brá Bjögvinsdóttir og Axel Bóasson tóku þátt í að afhenda verðlaunin. Vilhelm Þorsteinsson var fulltrúi Íslandsbanka – aðalsamstarfsaðila GSÍ á þessari mótaröð undanfarin misseri. Þrír efstu á stigalista Íslandsbankamótaröðinni 2018: 14 ára og yngri: 1. Dagur Fannar Ólafsson, GKG 6325.00 stig 2. Bjarni Þór Lúðvíksson, GR 5367.50 stig 3. Jóhannes Sturluson, GKG 5240.00 stig 1. Perla Sól Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Soffís K Pitts –—- 27. ágúst 2018
Það er Soffía K Pitts, sem er afmæliskylfingur dagsins. Soffís fæddist 27. ágúst 1958 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Soffíu til hamingju með daginn hér að neðan Soffía K Pitts · (Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kristinn Ágúst Friðfinnsson, 27. ágúst 1953 (65 ára), Rafn Hagan Steindórsson, 27. ágúst 1956 (62 ára); Don Pooley, 27. ágúst 1957 (61 árs); Bernhard Langer, 27. ágúst 1957 (61 árs); Pat Kosky Gower, 27. ágúst 1968 (50 ára); Blake Adams 27. ágúst 1975 (43 ára); Hafdís Su 27. ágúst 1977 (41 árs); Richard Lesa meira
Hvað var í sigurpoka DeChambeau?
Í sigurpoka Bryson DeChambeau voru eftirfarandi kylfur þegar hann sigraði á Northern Trust Open: Dræver: Cobra King F8+ Nardo (TPT Model 14 MKP LT skaft – 45.5 þumlungar), 8° 3-tré: Cobra King LTD 3/4 (Project X HZRDUS Black 85X shaft – 43 þumlungar), 14.5° 5-tré: Cobra King F8+ Baffler (Project X HZRDUS Black 85X shaft at 41 þumlungar), 17.5° Járn: Cobra King One Length Utility (4-5; True Temper Dynamic Gold X7 sköft – 37.5 þumlungar), Cobra Forged One Length (6-PW; True Temper Dynamic Gold X7 sköft – 37.5 þumlungar) Fleygjárn: Cobra King V Grind (50°; True Temper Dynamic Gold X7 skaft – 37.5 þumlungar), Cobra King WideLow Grind (55° og Lesa meira










