LPGA: Ólafía Þórunn á 72 á 1. hring Cambia Portland mótsins
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir , atvinnukylfingur úr GR, lék á 72 höggum á 1. hring Cambia Portland mótsins, sem er mót vikunnar á LPGA. Ólafía Þórunn fékk 2 fugla og 2 skolla. Sem stendur er Ólafía Þórunn T-89 og 1 höggi fyrir neðan niðurskurðarlínu og verður að eiga frábæran hring í dag til þess að komast í gegnum niðurskurð. Í efsta sæti er bandaríski kylfingurinn Marina Alex, en hún lék á 10 undir pari, 62 höggum. Sjá má stöðuna á Cambia Portland með því að SMELLA HÉR:
LET Access: Guðrún Brá á 75 e. 1. dag í Svíþjóð
Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2018, Guðrún Brá Björgvinsdóttir atvinnukylfingur úr GK, tekur þátt í móti vikunnar á LET Access, Turfman Allerum Open. Mótið er þriggja daga frá 30. ágúst – 1. september 2018 og fer fram á velli Allerum golfklúbbsins í Helsingborg, Svíþjóð. Guðrún Brá lék 1. hring á 3 yfir pari, 75 höggum og er 1 höggi undir niðurskurðarlínunni. Spennandi að fylgjast með Guðrúnu Brá á morgun!!! Til þess að sjá stöðuna á Turfman Allerum Open SMELLIÐ HÉR: Í aðalmyndaglugga: Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd: Frosti.
Evróputúrinn: Thomson efstur e. 1. dag Made in Denmark
Það er enski kylfingurinn Jonathan Thomson sem leiðir eftir 1. dag Made in Denmark mótsins, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum. Thompson kom í hús á 8 undir pari, 64 höggum. Þeir þrír sem þurfa að standa sig vel vegna Rydersins virðast vera eitthvað á taugum; Olesen lék á 1 yfir pari, 73 höggum og er í hættu að komast ekki í gegnum niðurskurð; Matthew Fitzpatrick er a.m.k. yfir niðurskurðarlínunni á sléttu pari, 72 höggum og Eddie Pepperell hefir spilað best þremenninganna – kom í hús á 2 undir pari, 70 höggum; en hann er með sjálfum fyrirliða Ryder Cup liðs Evrópu í ráshóp; Thomas Björn, sem lék á 2 Lesa meira
Áskorendamótaröð Evrópu: Axel á 72 e. 1. dag í Frakklandi
Íslandsmeistarinn í höggleik 2018 og atvinnukylfingurinn Axel Bóasson, GK hóf í dag keppni á Cordon Golf Open. Mótið fer fram í Golf Bluegreen Pleneuf-Val-Andre í Pleneuf í Frakklandi og stendur dagana 30.ágúst – 2. september 2018. Axel kom í hús á 2 yfir pari, 72 höggum og er T-85 eftir 1. dag. Í efsta sæti er José-Filipe Lima frá Portúgal. Sjá má stöðuna á Cordon Golf Open með því að SMELLA HÉR: Mynd: GSÍ
Afmæliskylfingur dagsins: Francisco Abreu – 30. ágúst 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Francisco Abreu. Abreu er fæddur 30. ágúst 1943 og á því 75 árs merkisafmæli í dag. Abreu gerðist atvinnukylfingur 1968 og vann tvívegis á Evróputúrnum. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Erling Svanberg Kristinsson, 30. ágúst 1951 (67 ára); Ingibjörg Snorradóttir, 30. ágúst 1951 (67 ára); Beth Bader, 30. ágúst 1973 (45 ára); Amanda Moltke-Leth; 30. ágúst 1976 (42 ára) ….. og ….. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is
LET Access: Guðrún Brá m/á Turfman Allerup Open
Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2018, Guðrún Brá Björgvinsdóttir atvinnukylfingur úr GK, tekur þátt í móti vikunnar á LET Access, Turfman Allerum Open. Mótið er þriggja daga frá 30. ágúst – 1. september 2018 og fer fram á velli Allerum golfklúbbsins í Helsingborg, Svíþjóð. Guðrún Brá fer út kl. 14:10, sem er kl. 12:10 að íslenskum tíma. Guðrún Brá er í ráshóp með heimakonunum Moa Folke og Isabelle Johannsson frá Svíþjóð. Guðrún Brá er fyrir mótið í 62. sæti stigalista LET Access. Fylgjast má með stöðunni a Turfman Allerum Open og gengi Guðrúnar Brá með því að SMELLA HÉR: Í aðalmyndaglugga: Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd: Frosti.
Áskorendamótaröð Evrópu: Axel hefur leik í Frakklandi í dag
Íslandsmeistarinn í höggleik 2018 og atvinnukylfingurinn Axel Bóasson, GK er með á móti vikunnar á Áskorenda- mótaröð Evrópu, Cordon Golf Open. Mótið fer fram í Golf Bluegreen Pleneuf-Val-Andre í Pleneuf í Frakklandi, dagana 30.ágúst – 2. september 2018. Með Axel í ráshóp eru sænski kylfingurinn Joel Sjöholm og heimamanninum Mathis Pansart, frá Frakklandi. Rástíminn er kl. 13:00, sem er kl. 11 að íslenskum tíma. Fylgjast má með gengi Axels og stöðunni á Cordon Golf Open með því að SMELLA HÉR: Mynd: GSÍ
GK: Helgi og Georg Andri sigruðu á Opna Epli mótinu!
Það voru alls um 169 kylfingar sem tóku þátt í Opna Epli mótinu á Hvaleyrarvelli í Hafnarfirði, sl. laugardag, 25. ágúst 2018. Veðrið lék við keppendur og má segja að værð hafi verið yfir golfinu og tók það því helst til of langan tíma. Úrslit voru þessi: Best skor Helgi Runólfsson 72 högg Punktar Georg Andri Guðlaugsson 41 punktar Keistján Þór Sverrisson 40 punktar Grétar Eyríksson 39 punktar Kristján Ari Einarsson 39 punktar Jón Ingi Bjarnfinnsson 38 punktar Næstur holu 4. braut – Jón Ásgeir Ríkharðsson 0,89 m Næstur holu 6. braut – Jóhannes Gunnarsson 1,60 m Næstur holu 10. braut – Guðmundur Örn Árnason 1,28m Næstur holu 15. braut Lesa meira
Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2018 (5): Úrslit
Lokamót Áskorendamótaraðar Íslandsbanka fór fram á Nesvellinum laugardaginn 25. ágúst s.l. Mótaröðin er ætluð þeim kylfingum sem vilja auka við keppnisreynslu sína áður en þau keppa á sjálfri Íslandsbankamótaröðinni. Hér eru úrslit úr mótinu og myndir af verðlaunahöfum. Hulda Bjarnadóttir, stjórnarmaður GSÍ og félagsmaður í Nesklúbbnum, afhenti verðlaunin. Úrslit urðu eftirfarandi: 9-holu mót Hnátur 10 ára og yngri: 1. sæti: Ebba Guðríður Ægisdóttir, GK – 47 högg 2. sæti: Lilja Dís Hjörleifsdóttir, GK – 48 högg 3. sæti: Vala María Sturludóttir, GL – 55 högg Hnokkar 10 ára og yngri: 1. sæti: Hjalti Kristján Hjaltason, GR – 40 högg 2. sæti: Tryggvi Jónsson, GR – 41 högg 3. sæti: Benjamín Lesa meira
Evróputúrinn: Olesen keppir um síðasta sjálfkrafa Ryder Cup sætið í liði Evrópu
Þrír munu kljást um síðasta sjálfkrafa sætið í Ryder Cup lið Evrópu á Made in Denmark mótinu, sem er mót vikunnar á Evróputúrnum, sem hefst á morgun. Það eru Daninn og heimamaðurinn Thorbjörn Olesen, Matt Fitzpatrick og Eddie Pepperell. Mótið fer fram á heimavelli fyrirliða liðs Evrópu, Thomas Björn, Silkeborg Ry. Einn af framangreindum þremenningum mun vera í Ryder liði Evrópu sem nú samanstendur af þeim: Francesco Molinari, Justin Rose, Tyrrell Hatton, Rory McIlroy, Tommy Fleetwood, Jon Rahm og Alex Noren. Olesen nægir að lenda í einu af efstu 6 sætunum til þess að tryggja sér farmiðann til Frakklands með Ryderliði Evrópu í fyrsta sinn, meðan að Fitzpatrick og Pepperell verða Lesa meira








