Ragnheiður Jónsdóttir | september. 2. 2018 | 15:00

Evróputúrinn: Matt Wallace sigraði á Made in Denmark

Það var enski kylfingurinn Matt Wallace sem sigraði á móti vikunnar á Evróputúrnum, Made in Denmark. Wallace lék á samtals 19 undir pari, 269 höggum, líkt og landar hans Lee Westwood, Steven Brown og Jonathan Thomson. Það varð því að koma til bráðabana milli þeirra 4 þar sem Wallace stóð uppi sem sigurvegari á 2. holu með fugl, en Steven Brown tapaði á parinu, eftir að Thomson og Westwood höfðu fallið úr keppni þegar á 1. holu. Mótið fór fram á golfvelli Silkeborg Ry nálægt Århus í Danmörku, dagana 30. ágúst – 2. september 2018. Til þess að sjá lokastöðuna á Made in Denmark SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 2. 2018 | 09:00

PGA: Simpson efstur í hálfleik á Dell

Það er Webb Simpson, sem tekið hefir forystuna eftir 2. keppnisdag Dell Technologies Championship. Simpson hefir spilað á samtals 11 undir pari, 131 höggi (68 63). Í 2. sæti eru forystumaður 1. dags Justin Rose og Tyrrell Hatton Ryder Cup liðsmenn í evrópska liðinu. Til þess að sjá hápunkta 2. dags SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá stöðuna í hálfleik á Dell Technologies meistaramótinu SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2018 | 20:00

Golfgrín á laugardegi 2018 (18)

Brandari þessa laugardagskvölds kemur á myndskeiði – SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2018 | 19:00

Evróputúrinn: Westy efstur á Made in Denmark

Aðstoðarfyrirliði liðs Evrópu í Ryder bikarnum, Lee Westwood er í efsta sæti á móti vikunnar á Evróputúrnum fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun, sunnudaginn 2. september 2018. Westy er samtals búinn að spila á 16 undir pari, 200 höggum (68 65 67). Af þeim þremur sem gera sér vonir um Ryder Cup sæti í liði Evrópu er Matthew Fitzpatrick búinn að standa sig best; hefir spilað á samtals 10 undir pari og deilir 13. sæti fyrir lokahringinn; Thorbjörn Olesen sem spáð var velgengni á heimavelli er á samtals 7 undir pari og í 30. sæti og Eddie Pepperell hefir staðið sig síst þremenninganna, er á samtals 3 undir pari Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2018 | 18:00

Ísland endaði í 39. sæti á HM áhugakylfinga

Heimsmeistaramóti áhugakylfinga í kvennaflokki lauk í dag á Írlandi. Bandaríkin fögnuðu HM -titlinum með miklum yfirburðum. Ísland endaði í 39. sæti af alls 57 þjóðum sem tóku þátt. Leikmenn Íslands bættu leik sinn jafnt og þétt út allt mótið. Sjá má lokastöðuna á heimsmeistaramóti áhugakylfinga í kvennaflokki með því að SMELLA HÉR:  Keppt er í liðakeppni og einnig gildir árangur keppenda í einstaklingskeppni. Þrír keppendur eru í hverju liði og telja tvö bestu skorin í hverri umferð. Helga Kristín Einarsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Saga Traustadóttir léku fyrir Íslands hönd. Þetta var frumraun þeirra allra á HM. Helga Kristín endaði í 92. sæti í einstaklingskeppninni á +13 samtals (79-73-76-75) 303 högg. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2018 | 17:00

LET Access: Guðrún Brá úr leik í Svíþjóð

Íslandsmeistarinn í höggleik kvenna 2018, Guðrún Brá Björgvinsdóttir atvinnukylfingur úr GK, tók þátt í móti vikunnar á LET Access, Turfman Allerum Open. Mótið var þriggja daga frá 30. ágúst – 1. september 2018 og fór fram á velli Allerum golfklúbbsins í Helsingborg, Svíþjóð. Guðrún Brá lék samtals á 6 yfir pari, 150 höggum (75 75) og komst ekki í gegnum niðurskurð, sem var miðaður við parið eða betra. Sigurvegari í Turfman Allerum Open varð Rachel Goodall frá Englandi en hún lék á samtals 9 undir pari, 207 höggum (68 72 67). Til þess að sjá lokastöðuna á Turfman Allerum Open SMELLIÐ HÉR: Í aðalmyndaglugga: Guðrún Brá Björgvinsdóttir. Mynd: Frosti.

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Breki Marinósson – 1. september 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Breki Marinósson, Breki er fæddur 1. september 1997 og á því 20 árs afmæli í dag. Komast má á facebook síðu Breka til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan Breki Marinósson – 21 árs – Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Al Geiberger “Mr. 59”, 1. september 1937 (81 árs); Manuel Piñero Sanchez, 1. september 1952 (66 ára); Guðríður Vilbertsdóttir, 1. september 1954 (64 ára); Ragnar Ólafsson, 1. september 1956 (62 ára); Ballettskóli Eddu Scheving (57 ára) Else Marie & Elin Margrethe Skau, 1. september 1967 (51 árs);  Friðrik K. Jónsson 1. september 1970 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2018 | 14:00

Nordic Golf League: Guðmundur Ágúst lauk keppni T-19 í Finnlandi

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, atvinnukylfingur úr GR, lauk keppni T-19 þ.e. jafn 6 öðrum kylfingum í 19. sæti á Timberwise Finnish Open hosted by Jaakko Mäkitalo, sem er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Mótið fór fram á Alastaro Golf golfstaðnum, í Virttaa, Finnlandi dagana 30. ágúst – 1. september 2018 og lauk því í dag. Guðmundur Ágúst lék á samtals pari, 216 höggum (73 72 71). Sigurvegari í mótinu varð Svíinn Stefan Idstam, en sigurskor hans var 11 undir pari, 205 högg (69 70 66). Til þess að sjá lokastöðuna á Timberwise Finnish Open hosted by Jaakko Mäkitalo SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 31. 2018 | 22:00

LPGA: Ólafía úr leik

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir er úr leik á Cambia Portland Classic. Annað ár hennar á LPGA hefir reynst henni erfitt og erfið barátta framundan að halda sér meðal efstu 100 á stigalista LPGA þannig að hún hljóti áframhaldandi þátttökurétt á mótaröðinni. Ólafía lék á samtals sléttu pari 144 höggum (72 72), en það dugði ekki til; aðeins munaði 1 höggi að Ólafía næði niðurskurði og það ekki í fyrsta sinn í sumar. Margir frábærir kylfingar voru í sömu stöðu og Ólafía, m.a. liðsfélagi hennar úr Wake Forest, Cheyenne Woods, vinkona hennar Sandra Gal og kylfingarnir frábæru Morgan Pressel, sem átt hefir fast sæti í Solheim Cup liði Bandaríkjanna og Lizette Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 31. 2018 | 08:01

Ísland í 40. sæti e. 2. dag HM áhugakylfinga

Heimsmeistaramót áhugakylfinga í kvennaflokki hófst miðvikudaginn 29. ágúst og er keppt á Írlandi. Alls eru 57 þjóðir sem taka þátt og þar á meðal er landslið Íslands sem er skipað þremur leikmönnum. Keppt er um Espirito Santo Trophy á þessu móti sem fram fer nú fram í 28. sinn. HM fer fram á Carton House þar sem allar aðstæður eru í hæsta gæðaflokki. Keppt er á tveimur keppnisvöllum, sem bera nöfnin Montgomerie og O’Meara. Skor keppenda er uppfært hér: Helga Kristín Einarsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Saga Traustadóttir skipa landslið Íslands. Jussi Pitkänen, afreksstjóri GSÍ, er með í för sem liðsstjóri. Þetta er í fyrsta sinn sem íslensku kylfingarnir keppa á Lesa meira