Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2018 | 18:00

Ryder Cup 2018: Kuchar, Duval og Johnson varafyrirliðar Furyk

Þar sem Tiger Woods og Phil Mickelson verða leikmenn eftir að Jim Furyk valdi þá í lið Bandaríkjanna í Rydernum, þá varð að velja aðra varafyrirliða. Þeir sem verða varafyrirliðar í liði Bandaríkjanna í Ryder bikarnum 2018 eru: Matt Kuchar, Zach Johnson og David Duval. Duval sagðist vera sjokkeraður en jafnframt væri þetta mikill heiður fyrir hann, þegar hann frétti um val sitt í varafyrir- liðastöðu í liði Bandaríkjanna á Rydernum. Hann var í liði Bandaríkjanna, sem vann Ryder Cup 1999. Kuchar og Johnson höfðu nú fremur gert sér vonir um að vera leikmenn en varafyrirliðar; Kucher í 5. sinn í röð, en útnefning hans sem varafyrirliða batt enda á þær væntingar. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 5. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Alexa Stirling Fraser – 5. september 2018

Það er Alexa Stirling Fraser, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hún var fædd 5. september 1897 og hefði orðið 121 árs í dag hefði hún lifað, en Alexa dó 15. apríl 1977. Sjá má eldri umfjöllun Golf 1 um Alexu Stirling Fraser í greinaflokknum kylfingar 19. aldar með því að SMELLA HÉR; Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru Thomas Charles Pernice Jr. 5. september 1959 (59 ára); Grétar (Gressi) Agnars, 5. september 1972 (46 ára); Ingvar Karl Hermannsson, 5. september 1982 (36 ára) … og …. Golf 1 óskar afmæliskylfingunum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 4. 2018 | 20:00

Tiger í fyrsta skipti í bandaríska Ryder liðinu frá 2012

Jim Furyk, fyrirliði liðs Bandaríkjanna í Ryder bikarnum tilkynnti um „villtu kortin sín“ (ens. wild cards). Sem fyrirliði fær Furyk að velja 3 í liðið, sem ekki hljóta vera í liðinu með sjálfkrafa hætti. Val Furyk voru Tiger Woods, Phil Mickelson og Bryson DeChambeau. Þetta er í fyrsta skipti frá árinu 2012 sem Tiger er í bandaríska Ryder bikars liðinu. Aðrir leikmenn í bandaríska liðinu 2018 eru eftirfarandi: Brooks Koepka, Bubba Watson, Dustin Johnson, Jordan Spieth, Justin Thomas, Patrick Reed,  Rickie Fowler og Webb Simpson.

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 4. 2018 | 18:00

Ísland í 14. sæti á EM kvenna 50+ í Belgíu eftir 1. dag

Evrópumót eldri kylfinga kvenna í liðakeppni hófst í dag 4. september á Mont Garni vellinum í Belgíu. Alls eru 19 þjóðir sem taka þátt. Afreksnefnd GSÍ og afreksstjóri GSÍ völdu eftirtalda kylfinga í liðið: Anna Snædís Sigmarsdóttir, GK Ásgerður Sverrisdóttir, GR María Málfríður Guðnadóttir, GKG Steinunn Sæmundsdóttir, GR Svala Óskarsdóttir, GL Þórdís Geirsdóttir, GK Sjá má stöðuna í mótinu með því að SMELLA HÉR:  Ísland er í 14. sæti eftir 1. keppnisdaginn á +52 samtals. Spánn er í efsta sæti á +14 samtals og Belgía er í öðru sæti á +17. 35. sæti: Þórdís Geirsdóttir 79 högg (+6) 64. sæti: Anna Snædís Sigmarsdóttir 83 högg (+10) 64. sæti: Svala Óskarsdóttir Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 4. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ásbjörn Björgvinsson – 4. september 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Ásbjörn Björgvinsson Hann er fæddur 4. september 1957 og á því 61 árs afmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið Til hamingju með afmælið!!! Ásbjörn Björgvinsson – Innilega til hamingju með 61 árs afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Raymond Floyd, 4. september 1942 (76 ára); Tom Watson, 4. september 1949 (69 ára);  Gestur Halldórsson, 4. september 1960 (58 ára); Christian Þorkelsson (57 ára); Pétur Már Ólafsson, 4. september 1965 (53 ára); Laura Lyn Rosier-Heckaman 4. september 1968 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Óska Skart (34 ára) og Dawn Shockley, 4. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hólmfríður Einarsdóttir – 3. september 2018

Það er Hólmfríður Einarsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hólmfríður er fædd 3. september 1972. Hún er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og jafnframt klúbbmeistari Golfklúbbs Úthlíðar í kvennaflokki, tvö ár í röð, 2012 og 2013. Reyndar urðu þau mæðgin, þ.e. Hólmfríður og sonur hennar, afrekskylfingurinn Emil Þór Ragnarsson, klúbbmeistarar Úthlíðar 2013. Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Hólmfríði með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Hólmfríði til lukku með daginn hér að neðan: Hólmfríður Einarsdóttir, GKG & GÚ – Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Þór Geirsson GVG, 3. september 1952 (66 ára); Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2018 | 14:00

GA: Þórarinn Valur og Viðar sigruðu á VW Open!

Eftir frábæra tvo daga kláraðist Volkswagen Open 25. ágúst s.l. með flottu lokahófi í golfskála GA. Veðrið ákvað að hlusta ekkert á veðurfræðingana og var ótrúlega milt báða keppnisdagana, kylfingum til mikillar ánægju. Flott tilþrif sáust einnig um allan völl í þessu skemmtilega móti, en þar voru Þórarinn Valur Árnason og Viðar Valdimarsson fremstir á meðal jafningja. Þeir félagar enduðu mótið með 94 punkta, 10 punktum á undan næsta liði, og sigruðu þeir því með miklum yfirburðum. Golfklúbbur Akureyrar þakkar Heldi og Bílaleigu Akureyrar kærlega fyrir frábært mót. Næsta opna mót golfklúbbsins verður Byko Open, þann 9. september. Við viljum auðvitað fjölmenna í það mót og bendum því á að Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2018 | 08:00

Ryder Cup 2018: Olesen öruggur í Ryder lið Evrópu

Danski kylfingurinn Thorbjörn Olesen tryggði sér síðasta fasta sætið í Ryder bikars lið Evrópu í gær á heimavelli í Made in Danmark mótinu. Aðeins Eddie Pepperell og Matthew Fitzpatrick hefðu getað velgt Olesen undir uggum og velt honum úr sessi með sigri á Made in Denmark en það varð ekki þar sem enski kylfingurinn Matt Wallace bar sigur úr býtum í mótinu. Olesen varð T-20, Pepperell T-56 og Fitz T-7 á Made in Denmark 2018, sem fram fór á golfvelli Silkeborg Ry í Århus í Danmörku. Þetta er í fyrsta sinn sem Thorbjörn Olesen spilar í Ryder bikars liði Evrópu. Eftir að ljóst var að hann hefði komist í liðið Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2018 | 07:00

LPGA: Marina Alex sigraði á Cambia Portland Classic

Það var bandaríski kylfingurinn  Marina Alex, sem sigraði á Cambia Portland Classic. Sigurskor Alex var 19 undir pari, 269 högg (62 71 71 65). Alex er e.t.v. ekki þekktasti kylfingur LPGA og má sjá kynningu Golf 1 á henni með því að SMELLA HÉR:  Alex er fædd 2. ágúst 1990 og er því nýorðin 28 ára. Þetta er fyrsti sigur hennar á LPGA. Með sigrinu færist Marina Alex m.a. úr 23. sæti stigalistans í 10. sætið! Í 2. sæti heilum 4 höggum á eftir Alex á samtals 15 undir pari varð enski kylfingurinn Georgia Hall.  Í 3. sæti varð síðan japanski kylfingurinn Ayako Uehara á samtals 13 undir pari. Ólafía Þórunn Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 2. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Sigurður Jónsson, Ingunn Rós Valdimarsdóttir og Einar Long —– 2. september 2018

Afmæliskylfingar dagsins eru þrír Einar Long, Ingunn Rós Valdimarsdóttir og Sigurður Jónsson. Ingunn Rós er fædd 2. september 1978 og á því 40 ára stórafmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan: Ingunn Rós Valdimarsdóttir (40 ára stórafmæli – Innilega til hamingju!!!) Einar Long, GHR og GR er þekktari er kynna þurfi. Hann er m.a. framkvæmdastjóri Grillbúðarinnar, sem hefir styrkt mót hjá GHR m.a. 1. maí mótið. Sigurður Jónsson er í GA, kvæntur Sólveigu Sigurjónsdóttur. Einar og Sigurður eiga sama afmælisdag og eiga báðir 60 ára merkisafmæli í dag.  Komast má á facebook síðu afmæliskylfinganna til þess Lesa meira