Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2018 | 03:00

Ryder Cup 2018: Hverjir mætast í tvímenningsleikjum sunnudagsins?

Staðan er 10:6 fyrir tvímenningsleiki sunnudagsins, Ryder liði Evrópu í vil, en í tvímenningsleikjunum getur allt breyst. 12 stig í pottinum og af þeim þurfa „strákarnir hans Thomas Björn“  4 1/2  stig til þess að ná Ryder bikarnum aftur til Evrópu Spurningin er hverjir mætast í tvímenningsleikjunum? Svarið: 11:05am McIlroy g.Thomas 11:17am Casey g. Koepka 11:29am Rose g. Simpson 11:41am Rahm g. Woods 11:53am Fleetwood g. Finau 12:05pm Poulter g. Johnson 12:17pm Olesen g. Spieth 12:29pm Garcia g. Fowler 12:51pm Molinari g. Mickelson 12:53pm Hatton g. Reed 1:05pm Stenson g. Watson 1:17pm Noren g. DeChambeau Næsta spurning: Hvernig fer lið Evrópu að því að vinna? Liðinu nægir að halda jöfnu Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2018 | 18:00

Ryder Cup 2018: Evrópa 10 : 6 USA e. 2. dag!!!

Lið Evrópu hélt áfram að auka forskot sitt í dag á 2. degi Ryder bikars keppninnar. Úrslit dagsins eru með eftirfarandi hætti: Fjórbolti laugardagsins 29. september 2018 f.h.: Lið Evrópu 8 – Lið Bandaríkjanna 4 1 Sergio Garcia og Rory McIlroy unnu Tony Finau og Brooks Koepka 2&1 2 Paul Casey og Tyrrell Hatton unnu Dustin Johnson og Rickie Fowler unnu 3&2 3 Francesco Molinari og Tommy Fleetwood unnu Tiger Woods og Patrick Reed 4&3 4 Ian Poulter og Jon Rahm töpuðu fyrir Jordan Spieth og Justin Thomas 2&1 Fjórmenningsleikis eftir hádegi laugardaginn 29. september 2018: Lið Evrópu 10 Lið Bandaríkjanna 6 1 Henrik Stenson og Justin Rose unnu Dustin Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 29. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Gunnar Geir Baldursson og Ingvar Andri Magnússon —— 29. september 2018

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Gunnar Geir Baldursson og Ingvar Andri Magnússon. Gunnar Geir er fæddur 29. september 1988 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Hann er í Nesklúbbnum (NK).  Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með stórafmælið hér að neðan Gunnar Geir Baldursson – Innilega til hamingju með 30 ára stórafmælið!!! Ingvar Andri  er í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG) og tók m.a. þátt í Evrópumóti áhugakylfinga í ár og verður annar fulltrúi Íslands á Olympíuleikum ungmenna, sem fram fara 6.-18. október n.k. í Buenos Aires í Argentínu. Komast má á facebook síðu Ingvars Andra hér að neðan til þess að Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2018 | 18:00

Ryder Cup 2018: Evrópa 5 : 3 USA e. 1. dag!!!

Lið Evrópu tapaði 3 af 4 leikjum í föstudags fjórbolta morgun umferðinni en sneri síðan við blaðinu eftir hádegi þegar liðið vann alla leiki sína í 2. umferð fjórmenningsleikjanna! Staðan var 3:1 eftir 1. umferð en er núna 5:3 liði Evrópu í vil!!! Þess mætti geta að ekkert lið í sögu Rydersins, sem tapað hefir heilli umferð, hefir unnið bikarinn. Leikirnir fóru með eftirfarandi hætti: Fjórboltaleikir föstudagsmorgunsins 28. september 2018: Lið Evrópu        1                                                                     Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagins: Perla Sól Sigurbrandsdóttir – 28. september 2018

Það er Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Perla Sól er fædd 28. september 2006 og á því 12 ára afmæli í dag. Hún er m.a. Íslandsmeistari í flokki 14 ára og yngri telpna á Íslandsbankamótaröðinni 2018 og hefir m.a. spilað á Eimskipsmótaröðinni í sumar, út í Eyjum, þar sem hún var yngsti keppandinn eða 11 ára. Perla Sól sagði í nýlegu viðtali að það hefði verið bróðir hennar, Dagbjartur, sem hefði dregið sig í golfið. Aðrir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Margaret „Wiffi“ Smith 28. september 1936 (82 ára); Ragnhildur Jónsdóttir, GK, 28. september 1940 (78 ára); Giuseppe Calì, 28. september 1952 (66 ára); Sigurjón Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2018 | 08:00

Ryder Cup 2018: Verst klæddu evrópsku liðin

Yfirleitt ber lið Evrópu höfuð og herðar yfir það bandaríska þegar kemur að klæðaburði og allir kylfingar vita hversu mikilvægt það er fyrir sjálfstraustið að líta vel út, úti á velli. A.m.k. er klæðaburður eitthvað sem ekki ætti að hafa áhyggjur af þegar fókusinn á allur að vera á leiknum og að vera á sem lægstu skori. Það sem á eftir fer er auðvitað bara smekksatriði, en hér er ætlunin að geta nokkurra Rydera þar sem lið Evrópu var e.t.v. ekki eins vel klætt og það hefði getað verið. Fyrst ber að geta myntugrænu jakkanna fyrir 12 árum síðan, 2006 (sjá mynd í aðalmyndaglugga), sem lið Evrópu klæddist í K Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 28. 2018 | 04:00

Ryder Cup 2018: Hefst í dag!!!

Ryder bikars keppnin hefst í dag 28. september og stendur til sunnudagsins 30. september 2018. Framundan eru spennandi golfdagar. Leikið er á Albatros velli Le Golf National í Guyancourt, sem er úthverfi í suð-vestur París, í Frakklandi. Þetta er 2. Ryderinn sem haldinn er á meginlandi Evrópu frá 1997 mótinu, sem fram fór á Spáni. Bandaríkjamenn eiga s.s. allir vita titil að verja, en þeir hafa tapað fyrir liði Evrópu í 5 mótum þar á undan. Þeir sem mætast í fjórboltaleikjum föstudagsmorgunsins eru: Lið Evrópu                                                     Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ómar Sigurðsson – 27. september 2018

Afmæliskylfingur dagsins er Ómar Sigurðsson. Ómar er fæddur 27. september 1948 og á því 70 ára afmæli í dag!!! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Ómar Sigurðsson  (Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kathy Whitworth, 27. september 1939 (79 ára); Armando Saavedra, 27. september 1954 (64 ára); Karl Vídalín Grétarsson, GR, 27. september 1961 (57 ára); Rachel L. Bailey, 27. september 1980 (38 ára – spilar á ALPG); Halla Björk Ragnarsdóttir, GR, 27. september 1994 (24 ára); Töfrahurð Fjölskyldutónleikar ….. og ….. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2018 | 06:45

Keiliskonur á Írlandi

Hópur þrettán Keiliskvenna á aldrinum 68-80 (Sveiflurnar) fóru nú um daginn til Írlands í golfferð. Upphaflega var áætlað að 14 færu í þessum hóp, en ein veiktist og gat því miður ekki farið. Hópurinn er nú kominn heim eftir yndislega 5 daga í Carton House, þar sem leikið var á 2 völlum, O‘Meara og Montgomerie. Veðrið lék ekki við hópinn fyrsta daginn á O‘Meara, en það var þokkalegt, síðan á Montgomerie í rosalegu roki en þurru veðri.  Á þeim velli eru amk. 100 „sandkassar“, þannig að völlurinn er ekki sá auðveldasti. Þriðja daginn var spilað á O‘Meara, rástími kl. 08:00. Keiliskonur spiluðu í hífandi roki og grenjandi rigningu, enginn úti nema þær og það Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2018 | 06:00

Bandaríska háskólagolfið: Birgir Björn í 4. og Arnar Geir í 5. sæti á MVC Fall Inv.

Dagana 24.-25. september s.l. fór fram MVC Fall Invitational á Indian Foothills golfvellinum, í Marshall, Missouri. Þátttakendur voru 47 frá 8 háskólum. Meðal þátttakenda voru 3 íslenskir kylfingar, Birgir Björn Magnússon og Gunnar Guðmundsson sem kepptu með liði sínu Bethany Swedes og „heimamaðurinn“ og klúbbmeistari GSS 2018 og mörg undanfarin ár, Arnar Geir Hjartarson. Skemmst er frá því að segja að Birgir Björn landaði 4. sætinu í einstaklingskeppninni og Arnar Geir 5. sætinu! Birgir Björn lék á 2 undir pari, 142 höggum (70 72) en Arnar Geir á 1 undir pari, 143 höggum (70 73). Gunnar lék á samtals 10 yfir pari, 154 höggum (74 80) og varð T-19. Missouri Lesa meira