Axel, Birgir Leifur, Ólafía Þórunn og Valdís Þóra tilnefnd sem lið ársins 2018
Axel Bóasson (GK), Birgir Leifur Hafþórsson (GKG), Ólafía Þórunn Krisinsdóttir (GR) og Valdís Þóra Jónsdóttir (GL) eru tilnefnd sem lið ársins í kjörinu hjá Samtökum íþróttafréttamanna. Þetta er í fyrsta sinn sem golflandslið er tilnefnt í þessu kjöri. Ísland fagnaði sigri á meistaramóti Evrópu í blandaðri liðakeppni sem fram fór á Gleneagles í Skotlandi um miðjan ágúst á þessu ári. Mótið var hluti af meistaramóti Evrópu sem fram fer á tveimur stöðum í Evrópu. Þetta er í fyrsta sinn sem þessi keppni fer fram. Kjörið fer fram samhliða vali samtakanna á íþróttamanni ársins. Þjálfari ársins og lið ársins voru valin í fyrsta sinn árið 2012. Úrslit kjörsins vera opinberuð í Lesa meira
Haraldur Franklín tilnefndur sem íþróttamaður ársins 2018
Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús úr Golfklúbbi Reykjavíkur er í hópi 10 efstu í kjörinu á Íþróttamanni ársins 2018. Það eru Samtök íþróttafréttamanna sem standa að kjörinu og verður því lýst þann 29. desember. Þetta er í 63. sinn sem kjörið fer fram. Þetta er í tólfta sinn sem kylfingur kemst inn á topp 10 listann í kjörinu á íþróttamanni ársins og er þetta í fyrsta sinn sem Haraldur Franklín er tilnefndur sem íþróttamaður ársins. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, var kjörin í fyrra íþróttamaður ársins og er hún eini kylfingurinn sem hefur fengið þetta sæmdarheiti. Ólafía varð í þriðja sæti í þessu kjöri árið 2016. Alls hafa fjórar konur Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Kristín Aðalsteinsdóttir – 22. desember 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Kristín Aðalsteinsdóttir. Kristín er fædd 22. desember 1972. Kristín er í Golfklúbbi Setbergs. Kristín hefir spilað víða erlendis m.a. á Spáni og í Golfclub Ozo í Lettlandi. Með fullu starfi hjá Hópbílum þjálfar Kristín 5. flokk stelpna í handbolta hjá ÍR. Kristín er gift Val Benedikt Jónatanssyni og eiga þau 2 börn: Hrafnhildi Völu, 15 ára og Gísla Hrafn, sem varð 12 ára fyrir 3 dögum síðan (Til hamingju Gísli Hrafn!!!) Komast má á facebook síðu Kristínar til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Kristín Aðalsteinsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Charles Lesa meira
Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Robyn Choi (14/58)
Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour. Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur. Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar og í dag verður hafist á að kynna 45 efstu og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA. Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Thorbjørn Olesen – 21. desember 2018
Thorbjørn er fæddur í Furesø, Danmörku 21. desember 1989 og á hann því 29 ára afmæli í dag. Hann gerðist atvinnumaður, 2008, aðeins 19 ára. Hann varð í 4. sæti strax á 1. keppnistímabili sínu á Nordea mótaröðinni, 2009, þar sem hann vann 3 mót og fékk þar með kortið sitt á Áskorendamótaröð Evrópu 2010. Það sumar, í júlí 2010, vann hann fyrsta mót sitt á Áskorendamótaröðinni, The Princess, sem haldið var í Svíþjóð. Hann varð nr. 3 á stigalista Áskorendamótaraðarinnar og hlaut þar með kortið sitt á Evrópumótaröðinni, 2011. Í desember 2010 varð Olesen í 2. sæti á Alfred Dunhill Championship, fyrsta mótinu á 2011 keppnistímbili Evróputúrsins. Í júní Lesa meira
Bjarki náði ekki niðurskurði í Miami
Bjarki Pétursson, GB, tók þátt í South Beach International Amateur, sem fram fór á Normandy Shores golfvellinum í Miami Beach Golf Club, í Flórída – Sjá má heimasíðu Miami Beach Golf Club með því að SMELLA HÉR: Mótið stóð dagana 19. -22. desember 2018 og það laðar yfirleitt að sér einhverja sterkustu áhugamenn heims. Þetta er stór mót, þátttakendur 210. Bjarki komst því miður ekki í gegnum niðurskurð. Hann lék samtals á 8 yfir pari, 149 höggum (74 75) og munaði aðeins 4 höggum að hann næði í gegn. Til þess að sjá stöðuna á South Beach Int. Amateur SMELLIÐ HÉR:
LET: Guðrún Brá stóð sig vel á úrtökumótinu… en komst því miður ekki áfram að þessu sinni
Íslandsmeistarinn í golfi 2018, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, var sex höggum frá því að tryggja sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni í golfi. Sterkustu atvinnumótaröð kvenna í Evrópu. Guðrún Brá endaði í 53. sæti á +3 samtals á lokaúrtökumótinu. Alls voru leiknir fimm hringir á fimm keppnisdögum. Mótið fór fram í Marokkó og voru keppnisvellirnir tveir. Guðrún Brá endaði í 53. sæti á +3 samtals (73-72-72-73-73). Hún var sex höggum frá 25. sætinu sem hefði tryggt keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni á næsta tímabili. Guðrún Brá fær keppnisrétt á LET Access mótaröðinni en þar lék hún á fjölmörgum mótum á sínu fyrsta keppnistímabili, sínu sem atvinnukylfingur. Alls voru 115 sem kepptu um Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Vilhjálmur Andri Vilhjálmsson – 20. desember 2018
Það er Vilhjálmur Andri Vilhjálmsson sem er afmæliskylfingur dagins. Hann er fæddur 20. desember 1977 og á því 41 árs afmæli í dag!!! Komast má á facebook síðu Kristins Arnar eða Kidda eins og hann er kallaður af vinum sínum til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan Vilhjálmur Andri Vilhjálmsson– 41 árs– Innilega til hamingju!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Jennifer Song, 20. desember 1989 (29 ára); Kristinn Arnar Ormsson, 20. desember 1991 (27 ára) …. og ….. Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að Lesa meira
Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: K.H. Lee (21/50)
Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals. Fyrst verður byrjað að kynna þá 25 sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og verður nú kynntur sá sem varð í 5. sæti peningalistans, K.H. Lee frá S-Kóreu Eftir að efstu 25 á peningalista Web.com Tour hafa verið kynntir verða þeir 25 kynntir sem urðu efstir á Web.com Finals. K.H. Lee (K.H. er stytting á Kyoung-hoon ) Lesa meira
Eden Bee Simpson fæddist 8. des s.l.
Bandaríski kylfingurinn Webb Simpson og eiginkona hans, Dowd, eignuðust sitt 5. barn 8. desember sl. Bæði móður og barni heilsast vel. Webb Simpson skrifaði eftirfarandi eftir fæðingu 5. barns síns, sem hlotið hefir nafnið Eden Bee Simpson: „Cannot believe we welcomed our 5th child into the world last night. So thankful to God for this little girl. My wife Dowd and daughter are doing great. Not sure name yet 😉 “ (Lausleg þýðing: „Trúi því ekki að við tókum á móti 5. barni okkar í þennan heim sl. nótt. Svo þakklát Guði fyrir þessa litlu stelpu. Eiginkona mín, Dowd og dóttur líður vel. Ekki viss um nafn í bili;)„) Nafnið Lesa meira










