Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2019 | 20:00

Golfgrín á laugardegi 2019 (1)

Náungi, sem er að spila golf kemur að langri par-3 braut þar sem slá verður yfir vatnshindrun. Djúp rödd ofan af himnum ráðleggur honum: „Notaðu nýja Titleist Pro V1 boltann!“ Náunginn tíar upp Titleist bolta sinn og tekur æfingasveiflu. Þá heyrist aftur í röddinni, sem segir nú ákveðin: „Ekki taka mark á því sem ég sagði í upphafi, notaðu æfingasvæðisbolta !„

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 5. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Gerður Hrönn Ragnarsdóttir – 5. janúar 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Gerður Hrönn Ragnarsdóttir. Gerður Hrönn er fædd 5. janúar 1999 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Hún er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Komast má á facebook síðu Gerðar Hrannar til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan Gerður Hrönn Ragnarsdóttir – Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Kim Arason Mortensen, 5. janúar 1960 (59 ára); Miguel Ángel Jiménez. 5. janúar 1964 (55 ára); Анаsтолий Березин 5. janúar 1967 (51 árs) Kristmundur Guðjón, 5. janúar 1967 (51 árs); Shaun Carl Micheel, 5. janúar 1969 (48 ára); Katrín Dögg Hilmarsdóttir, 5. janúar 1982 (36 ára); Peter Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2019 | 20:00

Spennandi keppnistímabil framundan hjá Valdísi Þóru á LET Evrópumótaröðinni

Valdís Þóra Jónsdóttir, úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, hefur keppnistímabilið á sterkustu atvinnumótaröð Evrópu í næstu viku. Fatima Bint Mubarak Ladies Open á LET Evrópumótaröðinni fer fram í Abu Dhabi dagana 10.-12. janúar. Keppnisdagskrá LET Evrópumótaraðarinnar 2019 liggur nú fyrir og er hægt að nálgast allar upplýsingar um mót ársins með því að SMELLA HÉR: Fatima Bint Mubarak Ladies Open verður jafnframt fyrsta mótið á LET Evrópumótaröðinni þar sem leikið er eftir nýjum golfreglum sem tóku gildi í byrjun þessa árs. Eftir mótið í Abu Dhabi tekur við keppnistörn í Ástralíu þar sem að þrjú mót fara fram í lok febrúar og byrjun mars. Valdís Þóra á góðar minningar frá Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Helga Kristín Einarsdóttir – 4. janúar 2019

Afmæliskylfingur dagsins í dag, 4. janúar 2018 er Helga Kristin Einarsdóttir.  Helga Kristín er fædd 4. janúar 1996 og er því 23 ára í dag. Hún var s.s. flestir vita í Nesklúbbnum og hefir m.a. orðið klúbbmeistari kvenna í NK 3 ár í röð 2013-2015, en er nú í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Helga Kristín spilar golf í bandaríska háskólagolfinu með liði Albany. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Helga Kristin Einarsdóttir (23 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Gestur Pálsson, 4. janúar 1965 (53 ára); David Toms, 4. janúar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 4. 2019 | 14:00

Howell aftur með á TOC e. 11 ár!

Ekkert mót í heiminum er jafn erfitt að fá þátttökurétt í og Tournament of Champions, þar sem eingöngu sigurvegarar ársins þar áður á PGA Tour fá að reyna með sér. Enginn veit þetta betur en Charles Howell III, en hann er nú aftur með eftir 11 ára fjarveru.“ „Í einn stað er þeta eins og ég hafi verið hér síðas fyrir mannsævi en í annan sta er þetta eins og ég hafi verið hér í gær.“ Á þeim 11 árum frá því Howell III var síðast með á Kapalua hefir hann spila i 340 PGA Tour mótum, þar til hann vann aftur og það var ekki létt verk. Fyrrum nr. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2019 | 23:00

PGA: Tway efstur á TOC – Hápunktar 1. dags

Það er bandaríski kylfingurinn Kevin Tway, sem leiðir eftir 1. dag á Tournament of Champions (TOC), á Kapalua, Hawaii, þar sem einvörðungu sigurvegarar á PGA Tour 2018 fá þátttökurétt.  Alls eru keppendur 33 einhverjir af bestu kylfingum heims og nokkrir, sem komu á óvart í fyrra s.s. Cam Champ. Einn sigurvegaranna tekur ekki þátt í TOC 2019 en það er Tiger Woods. Tway kom í hús á 7 undir pari, 66 höggum. Í 2. sæti eru Dustin Johnson (DJ), sem á titil að verja, Gary Woodland og Justin Thomas, allir á 6 undir pari, 67 höggum. Til þess að sjá stöðuna að öðru leyti á TOC SMELLIÐ HÉR: Til þess Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: María Guðrún Nolan og Jóhannes William Grétarsson —————— 3. janúar 2019

Afmæliskylfingar dagsins eru María Guðrún Nolan og Jóhannes William Grétarsson. Bæði eru fædd 3. janúar 1979 og eiga því 40 ára stórafmæli í dag!!!  Margir kannast við Maríu Guðrúnu en hún var í og vann hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi og hefir m.a. starfað hjá Mytime Active at Hollingbury Park Golf Course í Englandi, þar sem hún býr í dag í Brighton ásamt fjölskyldu sinni. Komast má á facebook síðu Maríu Guðrúnar til þess að óska henni til hamingju með stórafmælið hér að neðan: María Guðrún Nolan (40 ára – Innilega til hamingju með stórafmælið!!!) Hinn afmæliskylfingurinn er Jóhannes William Grétarsson. Jóhannes er frá Skagaströnd og er kvæntur Sigurbjörgu Magnúsdóttur. Komast Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2019 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: Scott Langley (23/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals. Fyrst verður byrjað að kynna þá 25 sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og verður nú kynntur sá sem varð í 3. sæti peningalistans, Scott Langley frá Bandaríkjunum. Eftir að efstu 25 á peningalista Web.com Tour hafa verið kynntir verða þeir 25 kynntir sem urðu efstir á Web.com Finals. Scott Langley fæddist í Barrington, Illinois 18. apríl Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2019 | 08:00

Golfútbúnaður: Nýju TP5 og TP5x TaylorMade golfboltarnir

Komnir eru á markað nýir TP5 og TP5x boltar frá TaylorMade. TaylorMade segir boltana framför frá eldri boltum fyrirtækisins sömu tegundar, sem komu á markað 2017. Eric Loper sem er yfirmaður R&D þ.e. rannsóknar og hönnunardeildar TaylorMade sagði m.a: „Með nýju TP5  TP5x golfboltunum, vissum við að það var tækifæri til þess að gera þá enn hraðari. Rannsóknir okkar á snertingu drævers og golfbolta ásamt þróunar á nýju HFM (High Flex Material) efni hefir veitt okkur hæfnina til þess að umbreyta á skilvirkari máta samþjöppun í hraða, á hvaða sveifluhraða sem er. Nýja  Speed-Layer System (SLS) stjórnar líka spin-i sem er gríðarlega mikilvægt fyrir performans dræver, járna og fleygjárna.“ Einn þeirra Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2019 | 07:00

Hoffmann trúlofast

Nýja árið byrjar vel hjá PGA Tour kylfingnum Morgan Hoffmann. Hann tilkynnti í gær, 2. janúar 2018,  að trúlofun sín og kærustu sinnar, Chelsea Colvard, til margra ára, hefði farið fram nú í árslok 2018. Hann sagði þetta hafa breytt 2018 frá því að vera algerlega versta ár ævi sinnar í það allra besta. „Ég fæ að giftast draumastúlkunni minni“ Ég er svo heppinn, hef aldrei kynnst manneskju sem er svo elskuleg og umhyggjusöm – 2018 fór úr því að vera versta ár ævi minnar í algerlega það besta !!!“ Fyrri ári síðan, í desember 2017 tilkynnti Hoffmann að hann væri með vöðvarýrnunarsjúkdóm (muscular dystrophy) og hann hefir verið að kljást Lesa meira