Nick Cullen sigraði á Australian Masters – Nr. 2 varð nr. 2
Það var ástralski kylfingurinn Nick Cullen, sem stóð uppi sem sigurvegari á Australian Masters fyrr í morgun, en mótið fór fram á The Metropolitan á Sandbeltinu í Melbourne, Ástralíu. Sigurskor Cullen var 9 undir pari, 279 högg (73 71 66 69). Nr. 2 á heimslistanum, Adam Scott, sem átti titil að verja á Australian Masters varð í 2. sæti á mótinu, en því sæti deildi hann með þeim Josh Youngers og James Nitties. Þremenningarnir voru allir 1 höggi á eftir Cullen þ.e. á 8 undi pari, 280 höggum; Scott (73 68 71 68). Til þess að sjá lokastöðuna á Australian Masters SMELLIÐ HÉR:
GA: Heimir Jóhannsson og Jón Gunnar Traustason sigruðu í Nóvembermóti II
Í gær var slegið í 2. nóvembermót á Jaðarsvelli á Akureryri vegna óvenjugóðrar veðurspár, sem gekk eftir. Leiknar voru 13 holur þ.e. 1.-12. hola og svo 18. og heim. Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni og fyrir besta skorið þ.e. í höggleik án forgjafar. Þátttakendur í mótinu vour 74 þar af 12 kvenkylfingar. Sigurvegarar í punktakeppninni voru eftirfarandi: 1 Heimir Jóhannsson GA 11 F 10 24 34 34 34 2 Sigurður Samúelsson GA 17 F 10 20 30 30 30 3 Sigþór Harðarson GA 12 F 9 20 29 29 29 Á besta skorinu voru Heimir Jóhannsson og Jón Gunnar Traustason, en þeir léku báðir holurnar 13 Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Emma Cabrera Bello – 22. nóvember 2014
Afmæliskylfingur dagsins er Emma Cabrera Bello. Emma er fædd 22. nóvember 1985 og á því 29 ára afmæli. Emma byrjaði að spila golf 5 ára og býr nálægt Maspalomas golfvellinum, sem mörgum Íslendingum er að góðu kunnur. Hún er samt félagi í fínasta golfklúbbnum á Gran Kanarí: Real Club de Golf de Las Palmas, en völlur klúbbsins er byggður ofan í eldfjallagíg. Meðal áhugamála afmælisbarnsins er lestur góðra bóka, að vera á skíðum hvort heldur svig eða vatns-, henni finnst auk þess gaman að fara í kynnisferðir til að kynna sér nýja staði sem hún ferðast til. Bróðir Emmu er Rafael, sem spilar á Evrópumótaröðinni. Emma er með gráðu í viðskiptafræði og Lesa meira
Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2015: Daníel Woltman (2/27)
Þann 20. nóvember 2014 lauk lokaúrtökumótinu á PGA Catalunya golfvellinum í Girona á Spáni og voru alls 27 „nýir“ strákar sem fengu eða endurnýjuðu keppnisrétt sinn á Evrópumótaröðinni. Sá sem varð í 26. sæti er Bandaríkjamaðurinn Daníel Woltman og var hann jafnframt eini Bandaríkjamaðurinn að þessu sinni, sem komst í gegnum lokaúrtökumótið. Þetta er í 1. sinn sem Woltman spilar á Evrópumótaröðinni. Daníel Woltman er fæddur 26. september 1986 í Beaver Dam, Wisconsin og er því 28 ára. Hann er fyrrum ríkismeistari í golfi í Wisconsin (þ.e. var bæði State Amateur og State Open Champion). Woltman útskrifaðist frá University of Wisconsin árið 2009, eftir að hafa leikið með skólaliðinu í bandaríska Lesa meira
Markar síðasti skandall Tiger nýja lægð fyrir golfiðnaðinn?
Brian Shactman skrifar langa grein í „The Street“ sem ber fyrirsögnina: „Does Tiger Woods’ Latest Disgrace Mark a New Low for the Golf Business?“, sem myndi útleggjast eitthvað á þá leið: „Markar síðasti skandall Tiger nýja lægð fyrir golfiðnaðinn?“ Hér fer greinin í lauslegri íslenskri þýðingu: Tiger Woods var aftur í fréttunum í þessari viku og á yfirborðinu virðist sem það hafi ekkert að gera með golf – eða að um ekta sögu sé að ræða, sé því að skipta. Golf Digest birti skáldað blaðaviðtal þar sem höfundurinn lét frá sér fara sínar eigin hugsanir og lét í veðri vaka að þær væru svör Tiger Woods. Dan Jenkins (blaðamaðurinn sem Lesa meira
Evróputúrinn: Cabrera-Bello og Stenson efstir eftir 3. dag í Dubaí
Það eru sænski kylfingurinn Henrik Stenson, sem a titil að verja á DP WorldTour Championship og spænski kylfingurinn Rafael Cabrera Bello, sem deila 1. sætinu fyrir lokahring mótsins. Báðir eru búnir að spila á samtals 14 undir pari, 202 höggum; Stenson (68 66 68) og Cabrera-Bello (73 64 65). Einn í þriðja sæti er Justin Rose, 3 höggum á eftir forystumönnunum. Nr. 1 á heimslistanum, Rory McIlroy deilir 4. sætinu ásamt þeim Thorbirni Olesen, Tyrrell Hatton og Victor Dubuisson; allir á samtals 10 undir pari eða 4 höggum á eftir forystumönnunum Stenson og Bello. Til þess að sjá stöðuna að öðru leyti á DP World Tour Championship eftir 3. dag SMELLIÐ Lesa meira
Ás Shane Lowry – Myndskeið
Eftir 1. dag DP World Tour Championship í Dubai voru Írarnir Rory McIlroy og Shane Lowry efstir og jafnir. Á 2. degi þ.e. í gær, föstudeginum, náði Henrik Stenson hins vegar 2 högga forystu og McIlroy og Lowry runnu aðeins neðar á skortöfluna. Shane Lowry átti hins vegar högg sem fékk hann til að gleyma öllu um stund; en það var glæsiás. Ásinn kom á par-3 13. holu Earth golfvallarins á Jumeirah golfstaðnum í Dubaí. Til þess að sjá myndskeið af ási Lowry SMELLIÐ HÉR:
Nýju strákarnir á PGA Tour 2015: Zack Sucher (38/50)
Zack Sucher varð í 14. sæti af 50 á Web.com Finals og var því einn af þeim 50 heppnu til þess að hljóta kortið sitt á bestu golfmótaröð heims bandaríska PGA Tour, fyrir keppnistímabilið 2014-2015. Zack Sucher fæddist í Atlanta, Georgia, 2. október 1986 og er því 28 ára gamall. Hann á sama afmælisdag og Jón Haukur „okkar“ Guðlaugsson, í GR. Sucher á eina systur og einn bróður. Hann er 1,83 m og 95 kg. Sucher spilaði í bandaríska háskólagolfinu með golfliði University of Alabama í Birmingham. Hann gerðist atvinnumaður árið 2009 og spilaði síðan á NGA Hooters Tour á árunum 2010 -2012. Sucher spilaði síðan á Web.com Tour árið 2011 og Lesa meira
LPGA: Carlota Ciganda og Julieta Granada efstar og jafnar e. 2. dag á CME
Það eru spænski Solheim Cup kylfingurinn Carlota Ciganda og Julieta Granada frá Paraguay, sem eru efstar og jafnar eftir 2. dag CME Group Tour Championship. Þær eru báðar búnar að spila á samtals 7 undir pari, hvor. Leikið er á Ritz Carlton Golf Resort, í Tiburon golfklúbbnum, í Naples, Flórída. Í 3. sæti í mótinu er Morgan Pressel á samtals 6 undir pari og fjórða sætinu deila þær Michelle Wie, Sandra Gal og ástralski kylfingurinn Sarah Jane Smith, allar á 5 undir pari. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á CME mótinu SMELLIÐ HÉR:
Fjölmörg mót nú um helgina
Þeir kylfingar áhuga hafa á því að skella sér í golfmót um helgina hafa úr fjölmörgum möguleikum að velja enda veður óvenju hlýtt miða við árstíma. Ef marka má skáningu þá munu margi nýta tækifærið enda aðstæður góðar, boðið verður upp á sumarflatir í flestum tilfellum. Nú er um að gera að nýta þennan sumarauka og skella sér út á golfvöll! Eftirfarandi golfklúbbar bjóða upp á mót helgina 22.-23. nóvember 2014: GG: Golfklúbbur Grindavíkur býður upp á opið mót, sunnudaginn 23. nóvember 2014. GSG: Aðventumót verður haldið á Kirkjubólsvelli hjá Golfklúbbi Sandgerðis, sunnudaginn 23. nóvember 2014. GA: Opið mót á Jaðarsvelli hjá Golfklúbbi Akureyrar, laugardaginn 22. nóvember 2014. GB: Afmælis Lesa meira










