GSÍ: Hámarksverðmæti verðlauna í golfmótum 2015
Áhugamennskunefnd Golfsambands Íslands hefur ákveðið hámarksverðmæti verðlauna í golfmótum fyrir árið 2015. Hámarksverðmæti verðlauna er 100.000 kr. og ferðavinninga 135.000 kr. Í tilkynningu nefndarinnar kemur fram að miðað er við smásöluverðmæti – og ekki er heimilt að veita viðtöku verðlaunum, sem eru greidd út í peningum eða ávísun á peninga. Reglugerðina má lesa í heild sinni með því að SMELLA HÉR: Eins og endranær er miðað er við smásöluverðmæti vinnings. Eftirtaldar reglur gilda m.a. um verðlaunafé: Ekki má veita viðtöku verðlaunum, sem eru greidd út í peningum eða ávísun á peninga. Vinni keppandi til fleiri en einna verðlauna í sama móti (eða mótasamfellu) má samanlagt verðmæti þeirra ekki vera umfram kr. Lesa meira
The Masters 2015: Holustaðsetningar fyrir 3. hring – Fylgist með stöðunni hér!
Hér má sjá gagnlegar upplýsingar um holustaðsetningar fyrir 3. hring á The Masters, SMELLIÐ HÉR: Nú fer að styttast í að hollið sem mest er beðið eftir fari út Jordan Spieth, sem búinn er að eiga ævintýralega byrjun og Charley Hoffman, sem eins og oft áður tekst að koma á óvart. Spieth leiðir mótið á metskori samtals 14 undir pari, eftir 36 holur og Hoffman er næstur á eftir á samtals 9 undir pari. Spieth og Hoffman fara út eftir 25 mínútur þ.e. kl. 14:55 að staðartíma (kl. 18:55 að íslenskum tíma). Til þess að fylgjast með stöðunni á The Masters SMELLIÐ HÉR:
The Masters 2015: Tiger og Sergio Garcia nýfarnir út
Tiger Woods og Sergio Garcia hafa oft eldað grátt silfur saman. Því er býsna sérstakt að þeir skulu vera paraðir saman nú á 3. hring á The Masters, en kapparnir fóru út kl. 13:15 að staðartíma í Augusta, Georgíu, þ.e. kl. 17:15 að okkar tíma (fyrir 1/2 tíma síðan). Garcia tvítaði um pörunina í gær en þar sagði: „It was gonna happen at some point sooner or later! Paired with @TigerWoods tomorrow but don’t you worry guys, I’m sure we’ll both be fine“ (Lausleg þýðing: Það hlaut að koma að þessu á einhverjum puntki fyrr eða seinna! Paraður með @TigerWoods á morgun, en hafið ekki áhyggjur, ég er viss um Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Ágúst Elí Björgvinsson – 11. apríl 2015
Afmæliskylfingur dagsins er Ágúst Elí Björgvinsson. Ágúst Elí er fæddur 11. apríl 1995 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og mikill FH-ingur s.s. hann á ættir til og einn besti markvörður landsins í handboltanum. Auk krefjandi æfinga í handboltanum hefir Ágúst Elí staðið sig vel í ýmsum opnum mótum í golfinu; var m.a. í vinningssæti á Gamlársdagspúttmóti Hraunkots 31. desember 2008 (3. sæti); 1. sæti á Unglingamótaröð GSÍ , 21. júní 2009; í vinningssæti á Opna Teigsmótinu í Þorlákshafnarvelli 8. maí 2010 (3. sæti + nándarverðlaun á 3. braut); 2. sæti í drengjaflokk (15-16 ára) á Arionbankamótaröð unglinga í Leirunni 5. Lesa meira
GH: Skarphéðinn Ívarsson ráðinn vallarstjóri á Katlavelli
Golfklúbbur Húsavíkur hefur ráðið Skarphéðinn Ívarsson sem vallarstjóra á Katlavelli á Húsavík. Skarphéðinn hefur þegar hafið störf, en hann var vallarstjóri á Katlavelli sumarið 2014. Helsta verkefni á Katlavelli er að vinna áfram í vökvunarkerfinu, sem mun auka gæði vallarins sem og spara fjármuni til lengri tíma. Markmið stjórnar klúbbsins er að glæða barna- og unglingastarf sem og nýliðun í klúbbnum. Þeir sem ekki hafa spilað Katlavöll, ættu að gera sér ferð til Húsavíkur í sumar – því Katlavöllur er líklega einn mest krefjandi og skemmtilegasti 9 holur völlur landsins, með mörgum sérstökum brautum, þar sem að öllum öðrum ólöstuðum par-5 4. brautin stendur upp úr.
80 ára kylfingur – Sal Fasino – með MS með 2 ása með stuttu millibili
Sal Fasino er 80 ára og með MS. Sérstaklega háir vinstra hnéð honum hann, en það stoppar hann ekki frá því að spila 18 holur. Nú í febrúar s.l. fór Fasino í fyrsta sinn holu í höggi á 108 yarda 13. holunni í Majestic golfklúbbnum í Lehigh Acres. Annan ásinn fékk hann 6 vikum síðar í mars þegar hann setti niður teighögg sitt á par-3 7. holu klúbbsins sem líka er 108 yarda. Fasino er múrari og verkefnisstjóri á eftirlaunum og hann djókaði með að ef hann héldi þessu áfram gæti hann náð 101 árs konunni frá Kaliforníu, sem sagðist hafa fengið 11 ása á ferli sínum. Hér má sjá viðtal við Lesa meira
10 mikilvægustu atriðin sem þarf að vita um Gene Sarazen – Myndskeið
Gene Sarazen er einn af aðeins 5 kylfingum í golfsögunni til þess að ná Grand Slam-i, þ.e. tókst að sigra í öllum 4 risamótunum, eins og við þekkjum þau í dag: The Masters, Opna bandaríska, Opna breska og PGA Championship. Í sumum vann hann oftar en 1 sinni og alls 7 sinnum. Sarazen var sá fyrsti sem tókst að ná Grand-Slam-inu. Öðrum sem þetta hefir tekist eru : Tiger, Gary Player, Jack Nicklaus og Ben Hogan. En afrek Sarazen á golfsviðinu eru auðvitað miklu fleiri en Grand-Slam-ið, þó það sé án nokkurs efa stærsta afrek hans. T.a.m. sigraði Sarazen 39 sinnum á PGA Tour. PGA Tour hefir einmitt tekið saman Lesa meira
The Masters 2015: Brautirnar 18 á Augusta National
Hér fer upprifun á brautunum 18 á Augusta National, en þær bera flestallar nöfn á blómum eða trjám. 1. braut (Tea Olive), 445 yardar, (407 metrar), par-4: Djúp sandglompa er til hægri, en lögun flatarinnar gerir þetta að erfiðri upphafsholu og sérstaklega var hún erfið 2005 þegar teigurinn var færður aftur 20 yarda (18 metra). Það eru grenitré til vinstri handar og brautin fer í örlítinn „dogleg“ til hægri. 2. braut (Pink Dogwood), 575 yardar,(526 metrar) par-5: Trén til vinstri eru dauðagildra – þau kostuðu Pádraig Harringt0n skor upp á 9, árið 2009. Það ætti að vera hægt að vera inni í 2 höggum, en sandglompurnar beggja vegna flatarinnar eru Lesa meira
The Masters 2015: Staðan í hálfleik
Jordan Spieth er með afgerandi forystu í hálfleik á The Masters risamótinu 2015 er á samtals 14 undir pari, 130 höggum (64 66), sem er nýtt hálfleikjamet á Masters, eins og fyrr hefir komið fram á Golf1, en fyrra 36 holu met átti Raymond Floyd, upp á 131 högg, sem hann náði 1976. Þannig að tæpra 40 ára met féll í gær!!! Charley Hoffman er í 2. sæti 5 höggum á eftir Spieth, á samtals 9 undir pari, 135 höggum (67 68) sem reyndar er ekki mikill munur í golfinu í dag – Reyndar hafa mót aldrei (a.m.k. sjaldnast) unnist eftir 2 hringi og svo er svo sannarlega um stöðuna Lesa meira
The Masters 2015: Grand Slam draumar Rory úr sögunni
Grand Slam klúbburinn þarf ekki að hafa áhyggjur að rýma til fyrir nýjum félaga … a.m.k. um þessa helgi. Rory McIlroy kom á Augusta National og vonaðist til þess að verða aðeins 6. kylfingurinn í sögu golfsins til þess að sigra í öllum 4 risamótunum. Hann var þegar kominn í vandræði eftir 1. dag – lék á 1 undir pari, 71 högg – var 7 höggum á eftir forystunni Jordan Spieth. Þegar Rory tíaði upp á 1. teig Augusta var hann þegar kominn tveggja stafa tölu á eftir Jordan Spieth. Hann spilaði í eins og sá sem veit að hann á engan sjéns, fékk 3 skolla og 1 skramba og Lesa meira










