Bandaríska háskólagolfið: Ari og Theodór Emil hófu leik á svæðismóti GAC í Arkansas í gær
Ari Magnússon, GKG og Theodór Emil Karlsson, GM hófu leik í gær á Great American Conference (GAC) Championship Tournament, þ.e. svæðismóti, sem fram fer í Hot Springs CC í Hot Springs, Arkansas. Þeir Ari og Theodór Emil eru búnir að standa sig vel í háskólamótum á undanförnum 2 vikum; en þann 6.-7. apríl s.l. tóku þeir t.a.m. þátt í Bear State Bank Invitational, sem fram fór í Big Creek CC, en mótið nefndist líka HSU First Federal Invitational. Þar varð Ari T-20; lék samtals á 153 höggum (76 77) en Theodór Emil T-23; lék á 154 höggum (77 77), en alls voru þátttakendur 50 frá 9 háskólum. Lið Arkansas Monticello Lesa meira
GA: Jaðar kemur mjög vel undan vetri
Nú er vorið svo sannarlega farið að láta sjá sig og einmuna blíða verið hér á Akureyri undanfarna daga. Það er óhætt að segja að Jaðar kemur mjög vel undan vetri. Þær aðgerðir sem farið var í í vetur hafa greinilega skilað mjög góðum árangri og líta flatir vallarins virkilega vel út. Það er einungis á flötum sjö og átján sem sér aðeins á en GA-menn hafa mikla trú á því að þær komi fljótt og vel til. Búið er að bera á flatir vallarins og eru þær farnar að taka við sér. Þeir hjá GA munu að sjálfsögðu gera allt sem hægt er til að opna völlinn sem fyrst Lesa meira
Hvað var í sigurpoka Furyk?
Eftirfarandi „verkfæri“ notaði Jim Furyk á RBC Heritage mótinu, sem hann sigraði í, í gær: Dræver: Callaway Big Bertha (Oban Isawa Red skaft), 9° 3-tré: Callaway RAZR Fit Xtreme (Fujikura Speeder VC 8.1X skaft), 15° Blendingur: Callaway X2 Hot Pro (UST Mamiya Proforce VTS 100HX skaft), 20° Járn: Callaway RAZR X Forged (4-PW; KBS Tour 110 sköft) Fleygjárn: Callaway Mack Daddy 2 Tour Grind (52-10T°; True Temper Dynamic Gold S400 skaft), Titleist Vokey Design SM4 (56-14 °; True Temper Dynamic Gold Tour Issue S400 khaft), Callaway Mack Daddy 2 (64-08C °; True Temper Dynamic Gold Tour Issue S400 skaft) Pútter: Odyssey Versa #1W (White-Black-White) Bolti: Callaway SR3
PGA: Jim Furyk sigraði á RBC Heritage e. bráðabana við Kisner
Það var nr. 10 á heimslistanum Jim Furyk sem sigraði nú í kvöld á RBC Heritage mótinu í Harbour Town GL á Hilton Head í Suður-Karólínu. Sigurinn kom eftir bráðabana við Kevin Kisner, en báðir voru þeir jafnir eftir 72 holur, léku báðir á samtals 18 undir pari, 266 höggum; Furyk (71 64 68 63) og Kisner (68 67 67 64). Hinn 21 árs Troy Merritt sem búinn var að leiða allt mótið varð í 3. sæti eftir enn einn hring upp á 69, sem dugði ekki á móti lágum lokahringjum Furyk upp á 63 og Kisner upp á 64. Hann gerði ekkert rangt; Furyk og Kisner voru einfaldlega á Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Matteo Manassero – 19. apríl 2015
Það er ítalski kylfingurinn Matteo Manassero sem er afmæliskylfingur dagins. Manasero er fæddur 19. apríl 1993 og á því 22 ára stórafmæli í dag!!! Golf 1 hefir kynnt afmæliskylfing dagsins í 4 greinum, sem rifja má upp með því að smella á eftirfarandi: MANASSERO 1; MANASSERO 2; MANASSERO 3; MANASSERO 4; Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Elías Magnússon, GK F. 19. apríl 1939, (76 ára) Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun F. 19. apríl 1994 (19 ára) Páll Sævar Guðjónsson F. 19. apríl 1970 (45 ára) Valtýr Auðbergsson F. 19. apríl 1976 (39 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju Lesa meira
Bubba Watson með brelluhögg í Kína
Bubba Watson tók þátt í Shenzhen International, móti vikunnar á Evróputúrnum, sem fram fór í Kína. Bubba sem var efstur á heimslistanum af þeim sem þátt tóku í mótinu gekk ekkert sérlega vel, þar til kom að lokahringnum – og hann hafnaði í 28. sæti Það breytir því þó ekki að hann virðist alltaf vera í góðu skapi og tvítaði m.a. mynd af einu brelluhöggi frá Kína. Sjá má tvít Bubba með því að SMELLA HÉR: Skrolla verður niður á síðunni til þess að sjá tvítið.
Sjö þingfulltrúar frá GSÍ á Íþróttaþingi ÍSÍ – Lárus endurkjörinn forseti
72. íþróttaþing Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands fór fram um helgina í Gullhömrum í Grafarholti. Golfsambands Íslands var með sjö þingfulltrúa á þinginu eins og sjá má á myndinni hér til hliðar. Þau eru frá vinstri: Gunnar K. Gunnarsson, Jón Júlíus Karlsson Kristín Guðmundsdóttir, Haukur Örn Birgisson, Hörður Þorsteinsson, Rósa Jónsdóttir og Gylfi Kristinsson. Til þingsins voru mættir vel á annað hundrað þingfulltrúa af öllu landinu. Lárus L. Blöndal var einróma endurkjörinn forseti ÍSÍ til næstu tveggja ára með dynjandi lófaklappi en ekkert mótframboð kom fram. Í framkvæmdastjórn voru eftirtaldir kjörnir: Garðar Svansson, Guðmundur Ágúst Ingvarsson, Gunnar Bragason, Gunnlaugur A. Júlíusson, Hafsteinn Pálsson, Helga Steinunn Guðmundsdóttir, Ingi Þór Ágústsson, Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir, Lesa meira
GM: Hákon Örn og Skúli Baldurs sigruðu á Vormóti 1
Fyrsta vormót ársins hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar fór fram í gær, laugardaginn 18. apríl, á Hlíðavelli. Það voru 153 þátttakendur sem mættu til leiks og 139 sem luku keppni, þar af 13 kvenkylfingar og þar af stóð sig best heimakonan Margrét Óskarsdóttir, GM, sem lék á 90 höggum en Halldóra Guðfríður Gunnarsdóttir, GOS var með flesta punkta kvenkylfiga eða 32. Margrét var með næstflesta 30 og Arna Rún Kristjánsdóttir, GM, með 28. Úrslit voru sem hér segir: Besta skor án forgjafar Hákon Örn Magnússon, GR 79 högg Punktakeppni m/forgj. 1. Skúli Baldursson, GM 36 punkta 2. Vignir Þór Birgisson, GM 35 punktar 3. Guðjón Þórðarson, GR, 34 punktar Nándarverðlaun 1. hola Lesa meira
Ólöf María lauk keppni í 25. sæti á Írlandi
Ólöf María Einarsdóttir, GHD, tók þátt í Irish Girls Open Strokeplay Championship, sem stóð dagana 18.-19. apríl 2015 og lauk í dag. Þátttakendur voru 71. Ólöf María (4 í forgjöf) lék á samtals 20 yfir pari, 154 höggum (79 75 79) og lauk keppni í 25. sæti, sem er ágætis árangur! Sigurvegari mótsins varð heimakonan Olivia Mehaffey, sem hafði betur í bráðabana við Samönthu Fuller frá Englandi, en báðar léku þær 72 holurnar hefðbundnu á 5 yfir pari. Til þess að sjá lokastöðuna á Irish Girls Open Strokeplay Championship SMELLIÐ HÉR:
LPGA: Sei Young Kim sigurvegari LOTTE Championship – Hápunktar lokahringsins
Það var Sei Young Kim frá S-Kóreu, sem stóð uppi sem sigurvegari á LOTTE Championship, móti vikunnar á sterkustu kvenmótaröð heims Kim og landa hennar, fyrrum nr. 1 á heimslistanum, Inbee Park voru efstar og jafnar eftir hefðbundnar 72 holur og varð því að koma til bráðabana milli þeirra þar sem Kim hafði betur! …. með ás á 1. holu bráðabanans!!! Glæsilegra verður það ekki!!! Báðar léku þær Kim og Park á 11 undir pari. Í 3. sæti varð síðan IK Kim á samtals 9 undir pari og þær Chella Choi og Hyo Joo Kim deildu síðan 5. sætinu. Já allt stúlkur frá Suður-Kóreu sem röðuðu sér í 5 efstu Lesa meira










