Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2016 | 14:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2016: Lucas Lee (4/50)

Í fyrrahaust voru 50 „strákar“ sem komust á PGA Tour þ.e. þeir 25 sem voru efstir í 2. deildinni Web.com og svo 25 aðrir sem keppa á sérstöku 4 móta úrtökumótaröð Web.com Finals alls 50. Sá sem varð í 47. sætinu og rétt slapp ínn á PGA Tour er Lucas Lee. Lucas Lee fæddist í Sao Paulo, Brasilíu 1. ágúst 1987 og er því 28 ára. Lee á því sama afmælisdag og Nökkvi Gunnarsson í NK og fleiri flottir kylfingar. Lee er sagnfræðingur, útskrifaðist frá UCLA í Kaliforníu með gráðu í sagnfræði 2008 og gerðist atvinnumaður í golfi sama ár. Hann lék með skólaliði UCLA í bandaríska háskólagolfinu  og var All-American Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2016 | 12:00

Snedeker hlýtur sneypulega móttöku í klúbbhúsi TPC Scottsdale

Brandt Snedeker sem sigraði svo glæsilega á Farmers Insurance Open mótinu sl. helgi á PGA Tour hlaut heldur sneypulega mótttöku í klúbbhúsi TPC Scottsdale. Þar hangir nefnilega uppi mynd sem sýnir bakhluta Snedeker, þar sem hann er að horfa inn í kaktusaþykkni, þar sem bolti hans er í vonlausri legu undir kaktusnum. (Sjá meðfylgjandi mynd). Snedeker tvítaði eftirfarandi í gær (3/2) um mótttökurnar í klúbbhúsinu: „Not the most welcoming picture when I walk into the clubhouse this week.“ (Lausleg þýðing: „Þetta eru ekki sú mynd sem býður mann mest velkominn þegar ég geng inn í klúbbhúsið í þessari viku.“) En svona er það. Sumum finnst ekkert skemmtilegra en að sjá Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2016 | 10:45

Lexi púttar með augun lokuð

Lexi Thompson var mjög heit á fyrsta hring Coates Golf Championship í gær, miðvikudaginn 3. febrúar 2016. – hún púttaði með augun lokuð.  Grínlaust. Lexi púttaði með augun lokuð og lauk 1. hring sínum í mótinu á 3 undir pari 69 höggum. Af hverju? „Mér líður eins og ég sé að brenna gat á golfboltanum með augunum stundum,“ sagði Lexi. Lexi sagðist jafnframt ekki hafa haft mikla tilfinningu fyrir pútternum sínum síðasta keppnistímabil þannig að hún fór að pútta með augun lokuð á æfingaflötinni á síðasta móti síðasta keppnistímabils, þ.e. CME Group Tour Championship. „Það hjálpaði púttstrokunni minni,“ sagði Lexi ánægð þannig að hún hélt bara áfram að pútta með augun lokuð. Lexi Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2016 | 08:00

Golfútbúnaður: Bentley hefur framleiðslu á golfkylfum

Ef það olli hvassviðri að Parsons Xtreme Golf fór fram á $5,000 fyrir sett af golfkylfum, þá ætti að golfsamfélagið að búa sig undir tsunami. Eina risaflóðbylgju sem á uppruna sinn utan hefðbundins golfiðnaðar. Það eru Bentley Motors, sem betur eru þekkt fyrir glæsilega og rándýra bíla sína, sem eru að færa sig inn á golfmarkaðinn. Könnun Bentley leiddi í ljós að 80% viðskiptavina þeirra elska golf og spila. En í stað þess að halda sig við það sem fyrirtækið þekkir best (það ætti e.t.v. að byrja á að framleiða golfbíla!) þá ætla þeir hjá Bentley að skella sér út í framleiðslu á golfkylfum. Og líkt og bílar þeirra, þá Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2016 | 07:30

Endurmenntunarnámskeið golfdómara

Nýjar golfreglur tóku gildi nú um áramótin og í tilefni af því stendur dómaranefnd GSÍ fyrir tveimur endurmenntunarnámskeiðum fyrir golfdómara: Mánudaginn 8. febrúar kl. 19:30 Laugardaginn 13. febrúar kl. 9:00 Námskeiðin verða haldin í fundarsölum ÍSÍ í Laugardal. Sama efni verður á báðum námskeiðunum og nægir að mæta á annað þeirra. Bein útsending verður á YouTube fyrir þá golfdómara sem ekki geta mætt í Laugardalinn, nánari upplýsingar um útsendinguna má nálgast hjá domaranefnd@golf.is Athugið að til að viðhalda dómararéttindum sínum þurfa golfdómarar að mæta á endurmenntunarnámskeið þegar golfreglur breytast. Texti: GSÍ

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2016 | 07:15

Af hverju ekki að ganga í landsbyggðarklúbb?

Golfklúbbur Hellu, GHR, býður nýja félaga velkomna á árinu 2016. GHR hefur fjórum sinnum haldið Íslandsmótið í golfi á Strandarvelli sem er í rúmlega klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík. Af vellinum er góð fjallsýn og ber þar helst að nefna eldfjöllin Heklu, Tindfjallajökul, Eyjafjallajökul og Mýrdalsjökul. Komast má á heimasíðu GHR með því að SMELLA HÉR:  GHR er með ýmsa valkosti hvað félagsaðildina varðar og 15 ára yngri greiða engin gjöld í klúbbinn. Á heimasíðu GHR er bent á að engir biðlistar séu til staðar og allir sem óski eftir því komist að. Árgjöld GHR fyrir árið 2016 eru eftirfarandi: 0 -15 ára (fæð.ár. 2001-2016) Frítt 16-19 ára (fæð.ár. 1997-2000) 32,000 kr. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 4. 2016 | 07:00

GR: Inga Jóna efst e. 3. púttmót GR-kvenna – Steinunn Sæmunds á besta skori í 3. mótinu

Á heimasíðu Golfklúbbs Reykjavíkur má lesa eftirfarandi frétt: „Það var hópur GR kvenna sem mættu kátar til leiks á þriðja púttkvöldi vetrarins á Korpunni í gær, miðvikudaginn 3. febrúar 2016. Langar brautir og aðrar styttri með ótreiknanlegum brotum gerðu mörgum okkar skráveifu á meðan aðrar rúlluðu upp góðu skori. Steinunn Sæmunds fór völlinn á fæstum höggum eða 27 og raðaði sér með því á meðal þeirra efstu en breyting varð á toppsætum eftir kvöldið í kvöld. Á toppnum eftir þrjá hringi er Inga Jóna Stefánsdóttir með samanlagt 87 högg og á eftir henni koma þær Auðbjörg Erlingsdóttir og Steinunn Sæmunds. Mjög mjótt er á munum þeirra sem á eftir koma Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2016 | 22:30

SNAG: Golfæfingin þyrla – Myndskeið

Ingibjög Guðmundsdóttir eigandi SNAG á Íslandi skrifaði eftirfarandi á facebook síðu sína: „Á meðan sumir bíða eftir að fá SNAG kennslubókina til sín þá er hér myndband sem ég laumaðist til að taka um daginn. Þessi fyrsta æfing í Smell-æfingum heitir Þyrla og stuðlar að því að slakað sé á í höndum og úlnliðum.“ Á myndskeiðinu sést Magnús Birgisson, golfkennari, sýna golfæfinguna þyrlu. Golfæfinguna má sjá með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2016 | 20:45

Golfvellir í Þýskalandi: Gut Kaden – Alveslohe (5/18)

Nú er komið að því að kynna 5. golfvöllinn í Þýskalandi hér á Golf 1. Í dag er það Gut Kaden – Alveslohe, nálægt Hamborg og við höldum okkur enn í Norðvestur-Þýskalandi og það besta: stuttnefnið á Gut Kaden er GK! Líkt og heima á Íslandi er GK (þ.e. Gut Kaden) með einn albesta golfvöll í Þýskalandi. Það er einkum 9-C holan á þessu glæsilega golfsvæði, sem verður eftirminnileg, einkum vegna fallegrar eyjaflatar. Gut Kaden býður upp á 27 holu völl og eru hlutarnir þrír 9 holu og merktir A, B og C og í raun hægt að velja um 3 mismunandi 18 holu velli að spila á. Sjá með Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 3. 2016 | 19:50

Afmæliskylfingur dagsins: Retief Goosen —— 3. febrúar 2016

Afmæliskylfingur dagsins er suður-afríski kylfingurinn Retief Goosen. Goosen er fæddur 3. febrúar 1969 í Pietersburg (nú Polokwane) í Suður-Afríku og er því 47 ára í dag!!! Hann var á topp 10 á heimslistanum í alls 250 vikur á árunum 2001-2007. Helstu afrek hans eru tveir sigrar á Opna bandaríska (2001 og 2004) og eins var hann á toppi peningalista Evrópumótaraðarinnar 2001 og 2002. Pabbi Retief, Theo Goosen, kenndi honum golf á unga aldri, en annars hlaut Retief fremur strangt uppeldi, þar sem pabbi hans lagði mikla pressu á hann. Á afmælisdegi þessa uppáhaldskylfings margra er ekki ætlunin að gera grein fyrir öllum afrekum Retief á golfsviðinu, heldur einungis að rifja Lesa meira