Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2014 | 21:00

PGA: Kaymer leiðir þegar 8 holur eru eftir óspilaðar á The Players – Myndskeið af fuglum Kaymer á fyrri 9

Þýski kylfingurinn Martin Kaymer er í forystu þegar aðeins á eftir að spila 8 holur á The Players. Kaymer er búinn að spila á samtals 14 undir pari og leikur af miklu öryggi. Hann á 3 högg á næstu keppendur þ.e. Sergio Garcia, Jim Furyk og Jordan Spieth. Kaymer fékk 2 fugla á fyrri 9 á lokahringnum; þ.e.þann fyrri  á 2. holu og má sjá myndskeið af því með því að SMELLA HÉR:  Seinni fuglinn kom á 9. holu, eftir að Kaymer sló glæsihögg upp úr flatarglompu, en sjá má myndskeið af því með því að SMELLA HÉR:  Til þess að fylgjast með stöðunni á The Players SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2014 | 19:00

LET: Derrey sigraði í Tyrklandi

Það var franska stúlkan Valentine Derrey, sem vann sinn fyrsta titil á LET á Turkish Airlines Ladies Open, nú fyrr í dag, en mótið fór fram í National golfklúbbnum í Belek, Tyrklandi. Sjá má kynningu Golf 1 á Derrey með því að SMELLA HÉR: Derrey lék á samtals 7 undir pari, 212 höggum (73 69 70) og átti 2 högg á þá sem næst kom dönsku stúlkuna Malene Jörgensen.  Í 3. sæti varð Solheim Cup stjarnan Charley Hull, á samtals 4 undir pari. Tékkneski kylfingurinn Klara Spilkova, sem var í forystu fyrir lokahringinn átti slæman dag, kom í hús á 78 höggum og hafnaði í 6. sæti sem hún deildi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2014 | 18:00

Evróputúrinn: Daníel Brooks sigraði á Madeira Islands Open

Það var Englendingurinn Daníel Brooks sem sigraði á Madeira Islands Open, móti vikunnar á Evrópumótaröðinni. Til þess að sjá kynningu Golf1.is á Brooks SMELLIÐ HÉR:  Mótið var aðeins 2 hringja vegna þéttrar þoku sem hindraði leik fyrstu 2 mótsdagana. Brooks var jafn Skotanum Scott Henry eftir 36 holur og því kom til bráðabana milli þeirra. Báðir léku þeir á samtals 9 undir pari, 135 höggum; Brooks (68 67) en Henry (67 68). Brooks vann síðan Henry á 1. holu bráðabanans, par-4 18. holunni með pari, meðan Henry fékk skolla. Til að sjá lokastöðuna á Madeira Islands Open SMELLIÐ HÉR:   


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir – 11. maí 2014

Það er Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hólmfríður Lillý er fædd 11. maí 1962. Hólmfríður Lillý er móðir Ómars Sigurvins, Péturs Freys, sem stundaði nám og spilaði golf með golfliði Nicholls State í Louisiana og Rún, sem varð m.a. Íslandsmeistari í höggleik í flokki telpna 15-16 ára árið 2011. Fjölskyldan er öll í Golfklúbbi Reykjavíkur. Komast á Facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska Hólmfríði Lillý til hamingju daginn hér að neðan: Hólmfríður Lillý Ómarsdóttir (52 ára – Innilega til hamingju með afmælið!) Aðrir frægir kylfingar eru:   Blair Piercy, (kanadískur kylfingur) 11. maí 1963 (51 árs);  Andrew Bonhomme  (ástralskur kylfingur), 11. maí 1972 (42 árs);  Michael Jancey „Briny“ Baird, 11. maí 1972  (42 árs); Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2014 | 14:00

Beverly Hanson minning

Hér fer í íslenskri þýðingu minningargrein, sem Neil Reid ritaði um Beverly Hanson, en Hanson var ein af brautryðjendum kvennagolfsins og í raun skelfilegt til þess að hugsa hversu hljótt var í golffréttamiðlum þegar einn af alfremstu kvenkylfingum heims um skeið lést nú fyrir skemmstu. Nú hafa nokkrir miðlar skammast til að bæta þar úr,  þ.á.m. AP, en lesa má góða grein fréttastofunnar með því að SMELLA HÉR:  En minningu Hanson verður haldið á lofti því orðspor hennar var gott og lifir og afrek hennar á golfsviðinu hafin yfir allan vafa. Henni þætti eflaust skrítið að skrifað væri um hana á íslenska golfsíðu, en þannig er nú einu sinni orðspor Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2014 | 13:00

Brúðkaup Adam Scott var svo leynilegt að jafnvel gestirnir vissu ekki að þeir væru boðnir í brúðkaup!

Golf 1 greindi fyrir nokkrum dögum frá því að Adam Scott hefði kvænst. Sjá með því að SMELLA HÉR:  Nú hefir komið í ljós að Bahama-brúðkaup Adam Scott var svo leynilegt að jafnvel gestirnir vissu ekki að þeir væru boðnir í brúðkaup! Adam Scott upplýsti nokkur smáatriði um það hvernig honum og sænska arkítektinum, Marie, sem nú er eiginkona hans, tókst að laumupúkast með þennan stóra atburð í lífi þeirra í 3 mánuði. Foreldrar beggja vissu af því hvað til stóð …. en enginn annar. Scott bauð besta vini sínum, sigurvegara Opna bandaríska 2013, Justin Rose til veislunnar … en hann kom ekki, hann vissi ekki að um brúðkaup vinar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2014 | 12:00

GL: Halldór Hallgríms sigraði á Húsmótinu

Húsmótið var haldið í gær, laugardaginn 10. mai á Garðavelli.  Mótið var haldið í einstakri veðurblíðu með þátttöku 63 kylfinga úr röðum GL og gesta en um var að ræða innanfélagsmót. Úrslit voru eftirfarandi: Punktakeppni með forgjöf: 1. sæti: Halldór Hallgrímsson 38 punktar (19 punktar á seinni 9) 2. sæti: Hörður Kári Jóhannesson 38 punktar (17 punktar á seinni 9) 3. sæti: Rafnkell K. Guttormsson 38 punktar (16 punktar á seinni 9) Besta skor án forgjafar: Arnór Snær Guðmundsson 72 högg (keppti sem gestur – en hann var á besta skorinu) Af heimamönnum stóð sig best: Alexander Högnason 75 högg Nándarverðlaun: 3. braut: Kristinn J. Hjartarson 1,34m 18. braut: Búi Vífilsson 3,22 m Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2014 | 11:00

GKJ: Haukur Sörli fór holu í höggi!!!

Haukur Sörli Sigurvinsson úr golfklúbbnum Kili, GKJ,  gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi í gær, 10. maí 2014 á fyrstu holu Hlíðavallar í Mosfellsbæ sem er  par 3. Margir hafa farið holuna á einu höggi en Haukur var að gera það í annað skiptið á aðeins tveimur árum. Haukur er greinilega á heimavelli þarna og þekkir völlinn út og inn. Golf 1 óskar Hauki til hamingju með draumahöggið!!!


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2014 | 10:00

GG: Illa liðið sigraði í Veiðafæraþjónustu Scramble-num!

Blíðan var í aðalhlutverki í gær á Húsatóftavelli í Grindavík, þar sem Opna Veiðafæraþjónustu Texas Scramble fór fram. Úrslitin urðu eftirfarandi: Illa liðið sigrar með 61 höggi nettó, Gilli og gullfiskarnir náðu öðru sæti með því að vera einu höggi betri á síðustu 3 holum vallarins en bæði Halli, sem varð í 3. sæti  og Gilli skiluðu inn nettó skori upp á 63 högg. Illa liðið 32 30 62 1 61 Gilli og gullfiskarnir 32 33 65 2 63 halli 29 33 62 -1 63 Næstur holu á 5.braut var Helgi Þóris GKG 2.09 m. en El Coyoteros vinnur þá nánd. Næstur holu á 18.braut var Magnús Kári Jónsson GKG 0.77 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 11. 2014 | 09:00

Evróputúrinn: Scott Henry efstur á Madeira – mótið stytt í 36 holu mót

Í dag fer fram lokahringur Madeira Islands Open, móts vikunnar á Evrópumótaröðinni, þar sem þétt þoka hefir sett allt úr skorðum. Nánast ekkert var hægt að spila fyrstu 2 mótsdaganna og nú hefir verið tekin sú ákvörðun að stytta mótið í 36 holu mót og fer síðari hringurinn fram í dag. Eftir 1 spilaðan hring á Madeira Islands Open er Skotinn Scott Henry  efstur á, en hann lék á 5 undir pari, 67 höggum. Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir eru Englendingarnir Lloyd Kennedy og Daníel Brooks.  8 kylfingar deila síðan 4. sætinu á 3 undir pari, 69 höggum þ.á.m. austurríski kylfingrinn Martin Wiegele. Til þess að sjá Lesa meira