Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2014 | 13:30

GS: Karen og Guðmundur Rúnar vörðu titla sína! – Úrslit

Meistaramóti GS 2014 er nú lokið og ljóst er að Guðmundur Rúnar Hallgrímsson og Karen Guðnadóttir vörðu bæði titla sína, en þau eru klúbbmeistarar Golfklúbbs Suðurnesja afmælisárið 2014! Í meistaraflokki kvenna var titillinn reyndar aldrei í hættu því Karen var ein í baráttunni þar. Í meistaraflokki karla vann Guðmundur Rúnar með fjórum höggum, en næstur var Sigurður Jónsson á +11 yfir og því næst Bjarni Sigþór Sigurðsson á +12. Þátttakendur í meistararmóti GS í ár voru tæp 100 talsins. Helstu úrslit í öllum flokkum má sjá hér að neðan: 1. flokkur kvenna (2) 1 Helga Sveinsdóttir GS 16 F 48 47 95 23 107 97 95 95 394 106 2 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2014 | 13:00

GA: Ævarr Freyr og Stefanía Kristín Akureyrarmeistarar 2014!

Akureyrarmóti, meistaramóti Golfklúbbs Akureyrar lauk í gær 12. júlí 2014. Þátttakendur í ár voru um 160 manns. Akureyrarmeistarar 2014 eru Ævarr Freyr Birgisson og Stefanía Kristín Valgeirsdóttir. Ævarr Freyr lék Jaðarinn á samtals 304 höggum (74 76 76 78) en Stefanía Kristín á 331 höggi (83 83 82 83). Helstu úrslit úr Akureyrarmóti 2014 eru eftirfarandi:  Næstur holu á 4. braut á föstudeginum Andri Geir Viðarsson Næstur holu á 18. braut á föstudeginum Ófeigur Arnar Marinósson Næstur holu á 4. braut í gær (laugardaginn 12. júlí) Ævarr Freyr Birgisson Næstur holu á 18. braut í gær (laugardaginn 12. júlí) Valur Sæmundsson Hnátur 12 ára og yngri: 1 Tinna Klemenzdóttir GA Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2014 | 12:00

GKG: Hólmfríður og Emil Þór meistaramæðgin! – Úrslit

Í gær lauk meistaramóti Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar. Þátttakendur í ár voru næstum 370 manns.  Klúbbmeistarar GKG 2014 eru Emil Þór Ragnarsson og Ingunn Einarsdóttir. Sigurskor Emils Þórs voru 287 högg (75 72 69 71) og sigurskor Ingunnar 329 högg (83 83 81 82). Þess mætti geta að klúbbmeistari kvenna í GKG er „andlit Eimskipsmótaraðarinnar 2014″ sbr. með því að SMELLA HÉR:  Nokkuð sérstakt er að meistarar í meistaraflokki karla, Emil Þór og í 1. flokki kvenna, Hólmfríður Einarsdóttir, eru mæðgin. Þau eru sannkölluð meistaramæðgin því á s.l. ári, 2013, urðu þau Hólmfríður og Emil Þór klúbbmeistarar Golfklúbbsins Úthlíðar. Helstu úrslit í öllum flokkum í meistaramóti GKG 2014 eru eftirfarandi: Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2014 | 10:00

GR: Ragnhildur og Stefán Þór klúbbmeistarar 2014 – Úrslit

Meistaramóti Golfklúbbs Reykjavíkur 2014 lauk í gær, 12. júlí 2014. Alls tóku 526 félagsmenn þátt í mótinu þetta árið. Mótið hófst sunnudaginn 6. júlí. Hjá þeim flokkum sem spiluðu þrjá daga var veðrið með besta móti. Sjá úrslitafrétt Golf1.is  úr 3. daga Meistaramóti GR með því að SMELLA HÉR:  Aftur á móti verður ekki sama sagt um um þá flokka sem hófu leik miðvikudaginn 9. júlí. Rok og mikil úrkoma var þá daga og frekar erfiðar aðstæður hjá þeim flokkum. Mikil barátta var í öllum flokkum og mikil spenna á lokadeginum. Klúbbmeistarar GR 2014 eru þau Stefán Þór Bogason og Ragnhildur Sigurðardóttir. Stefán Þór er að vinna sinn fyrsta titil Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 13. 2014 | 02:00

GK: Axel og Tinna klúbbmeistarar 2014 – Úrslit

Meistaramóti Keilis 2014 lauk í gærkvöldi með verðlaunaafhendingu. 340 Keilisfélagar tóku þátt í Meistaramótinu og var byrjað sunnudaginn 06. júlí og lauk því nú 12. júli 2014. Veðrið var mjög misjafnt þessa vikuna. Þeir sem spiluðu fyrri part vikunnar fengu ágætis veður á meðan þeir sem spiluðu seinni part vikunnar fengu heldur risjótt veður. Hvaleyrarvöllur er farin að líta mjög vel út og sérstaklega eru seinni níu holurnar í frábæru standi. Axel Bóasson sigraði í meistaraflokki karla á 285 höggum (76-68-73-68) og í meistaraflokki kvenna sigraði Tinna Jóhannsdóttir á 311 höggum (80-82-71-78). Þau eru klúbbmeistarar Keilis 2014. Helstu úrslit í öðrum flokkum var eftirfarandi: Meistaraflokkur karla (11):   1 Axel Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2014 | 18:00

Íslenska piltalandsliðið í 11. sæti á EM

Íslenska piltalandsliðið hafnaði í 11. sæti á EM piltalandsliða. Það var Henning Darri Þórðarson, GK, sem hélt þessu spennandi í dag í leiknum gegn Belgum, sem Íslendingar unnu 3-2. Það var þó tæpt því sigur vannst ekki hjá Henning Darra fyrr en á 19. holu með fugli! Glæsilegur árangur hjá Henning Darra og piltunum! Sjá má úrslit einstakra leikja með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2014 | 17:30

Íslenska kvennalandsliðið tapaði 3,5-1.5 g. Austurríki – Sunna með eina vinning Íslands

Íslenska kvennalandsliðið tapaði fyrir liði Austurríkis á EM kvenna 3,5-1,5 í dag. Sunna Víðisdóttir, GR var með eina sigur Íslands í viðureign sinni gegn Nadine Dreher sem Sunna vann 2&1. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR skyldi jöfn í sinni viðureign við Michaelu Gaspi-Mayr, en Ólafía er búin að spila best allra í íslenska kvennalandsliðinu. Aðrir leikir töpuðust. Sjá má úrslit einstakra leikja með því að SMELLA HÉR:   


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2014 | 17:00

Íslenska karlalandsliðið á EM tapaði stórt fyrir Finnum – 5-0

Íslenska karlalandsliðið tapaði öllum leikjum sínum í dag fyrir liði heimamanna, Finna á EM. Keppt er á Linna golfvellinum í Finnlandi,  sem er staðsettur um 100 km frá Helsinki rétt utan við bæinn, Hämeenlinna. Hægt er að nálgast ítarlegar upplýsingar um mótið og sker keppenda má finna með því að  SMELLA HÉR: Leikirnir fóru á eftirfarandi máta: Albert Eckhardt og Erik Myllymäki unnu Ragnar Má Garðarsson og Andra Þór Björnsson í fjórmenningnum 3&1 Linus Väisänen vann Gísla Sveinbergsson 4&3 Lauri Ruuska  vann Bjarka Pétursson 6&5 Miki Kuronen vann Guðmund Ágúst Kristjánsson 2&1 Kristian Kulokorpi vann Harald Franklín Magnús 6&4.


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Inbee Park ——— 12. júlí 2014 – efst á Opna breska f. lokahringinn

Afmæliskylfingur dagsins er Inbee Park  (kóreanska: 박인비, Hanja:  朴仁妃) Hún er fædd 12. júlí 1988 og á því 26 ára afmæli í dag. Park hélt upp á afmælisdag sinn með því að ná 1. sætinu á Ricoh Opna breska kvenrisamótinu fyrir lokadag mótsins. Hún er samtals búin að spila á 4 undir pari, 212 höggum og er með þær Shanshan Feng og Suzann Pettersen á hælunum, sem báðar eru á samtals 3 undir pari. Sjá má stöðuna á mótinu með því að SMELLA HÉR:  Inbee sigraði á 3  af 5 risamótum ársins 2013 og átti möguleika á „Grand Slam“ í kvennagolfinu og var fyrir ári fylgst með henni af spennu, en þá fór allt Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 12. 2014 | 15:00

Evróputúrinn: Rory nær sér á strik á 3. hring Opna skoska

Rory McIlroy náði sér aðeins á strik í dag á Opna skoska eftir hræðilegan hring í gær upp á 78 högg sem kom honum úr 1. sætinu sem hann var í eftir 1. dag (eftir að hafa verið með frábært skor upp á 64) í 34. sætið. Eftir daginn í dag fer Rory aftur upp skortöfluna eftir hring upp á 68, en gríðarleg sveifla milli hringja hjá honum (í dag: 10 högga). Samtals er Rory búinn að spila á 3 undir pari, 210 höggum (64 78 68) og enn ekki öll nótt úti enn. Rásfélagar Rory í dag voru Robert Karlsson (sem var með hring upp á 67) og Pablo Larrazabal Lesa meira