Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2014 | 16:00
Deilur milli RMac og GMac?

Paul McGinley fyrriliði liðs Evrópu í Ryder bikarnum nú í ár segir að „Mac“-arnir tveir í liðinu (oft nefndir RMac og GMac) þ.e. Rory McIlroy og Graeme McDowell geti ýtt til hliðar hvaða ágreiningi sem vera kann milli þeirra og spilað saman í september þegar Evrópa hefur titilvörn sína gegn sterku liði Bandaríkjanna í Gleneagles í Skotlandi. Fyrirliðinn bar tilbaka að vaxandi deilur hefðu komið upp milli þessara leikmanna sinna vegna deilna umboðsskrifstofa þeirra. Rory er upp yfir höfuð í málaferlum við fyrrum umboðsskrifstofu sína, Horizon, sem enn er umboðsskrifstofa vinar hans, McDowell. „Ég talaði við Rory þegar þeir áttu sáttasamtal í Shanghai á síðasta ári,“ sagði McGinley í viðtali við the Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2014 | 15:00
Afmæliskylfingur dagsins: Óli Kristján Benediktsson – 15. júlí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Óli Kristján Benediktsson. Óli Kristján er fæddur 15. júlí 1991 og því 23 ára í dag. Hann er í Golfklúbbi Hafnar í Hornafirði (GHH) og er núverandi klúbbmeistari klúbbsins 2014 og jafnframt klúbbmeistari 2012, en varð í 3. sæti á meistaramótinu í fyrra, 2013. Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Óli Kristján Benediktsson Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Stephen Dodd, 15. júlí 1966 (48 ára); Marcel Siem, 15. júlí 1980 (34 ára); Carmen Alonso, 15. júlí 1984 (30 ára stórafmæli); Jackie Stoelting, 15. júlí 1986 (28 ára) ….. og …… Þorvaldur Freyr Friðriksson GR (35 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2014 | 13:00
GKS: Hulda og Þorsteinn klúbbmeistarar 2014 – Úrslit

Lokadagur meistaramóts GKS fór fram í sunnudaginn 13. júlí í fínu veðri. Þátttakendur voru 12 og hélt spennan áfram í karlaflokkunum en í kvennaflokkunum var ekki eins mikil spenna og staðan fyrir lokadaginn benti til. Í öðrum flokki kvenna jók Ragnheiður muninn á milli hennar og Bryndísar um 21 högg í 74 högg. Er þetta í fyrsta skipti sem leikið er í öðrum flokki kvenna og byrjuðu báðir þáttakendurnir að leika golf síðasta sumar. Ragnheiður er því fyrsti klúbbmeistari kvenna í 2. flokki. Í öðrum flokki karla hélst 6 högga munur á Kári og Þresti í baráttunni um þriðja sætið og hélt Þröstur því sæti. Fyrir lokadaginn var Óli Þór Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2014 | 12:30
Sjö þátta röð um íslenska golfsumarið hefst í kvöld á RÚV kl. 21:30

Íslenska golfsumarið verður umfjöllunarefni sjö hálftíma langra þátta á RÚV í sumar, sem Hlynur Sigurðsson dagskrárgerðarmaður mun hafa umsjón með. Viðtalið sem er hér fyrir neðan er úr 2. tbl af Golf á Íslandi. „Við leggjum upp með að fjalla um málefni sem kylfingar láta sig varða, sama hvort þeir eru byrjendur eða lengra komnir,“ segir Hlynur, sem sjálfur hefur stundað golfíþróttina síðan um aldamót, og er núna með 13,7 í forgjöf. „Við vonum auðvitað að einhverjir sem horfa á þættina smitist af golfbakteríunni og byrji að stunda íþróttina, en fyrst og fremst verður þetta þáttur fyrir kylfinga.“ Fyrsti þátturinn verður á dagskrá um miðjan júlí, eftir að Heimsmeistaramótinu í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2014 | 12:00
Nick Faldo segir að Tiger eigi ekki sjéns á Opna breska

Nick Faldo telur ekki miklar líkur á að Tiger Woods sigri 4. Opna breska risamótstitil sinn í þessari viku. Tiger sneri aftur til keppni fyrir aðeins 3 vikum eftir að hafa verið 4 mánuði frá keppni eftir bakuppskurð. Tiger hefir sigrað í 14 risamótum en Faldo „aðeins“ 6. Faldo heldur því hins vegar fram að frá því að Tiger sneri aftur til keppni hafi hann spilað meira keppnisgolf en hann. „Tiger hefir spilað 2 hringi og telur að hann sé tilbúinn,“ sagði Faldo. „Ég hef spilað 4 hringi og ég er aðeins í hlutastarfi kylfings í dag. En Tiger fór frá Congressional í síðasta mánuði og sagði að hann vissi Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2014 | 11:00
GL: Elín Dröfn og Stefán Orri klúbbmeistarar 2014 – Úrslit

Meistaramót GL 2014 var haldið dagana 7. júlí til 12. júlí 2014 á Garðavelli og litla æfingavellinum. Þátttakendur í ár voru u.þ.b. 100 talsins. Klúbbmeistarar GL 2014 eru Elín Dröfn Valsdóttir og Stefán Orri Ólafsson. Hér má sjá helstu úrslit í öllum flokkum: Börn og unglingar spiluðu 7. og 8. júlí og urðu úrslit eftirfarandi: Rauðir teigar – 2 x 9 holur Garðavöllur 1.Ægir Sölvi Egilsson 2.Jón Karl Kristján Traustason 3.Þorgeir Örn Bjarkason Grænir teigar – 2 x 9 holur Garðavöllur 1.Kári Kristvinsson 2.Ellert Lár Hannesson 3.Óskar Gísli Búason Stelpur – Grænir teigar – 2 x 9 holur Garðavöllur 1.Bára Valdís Ármannsdóttir 2.Anna Þóra Hannesdóttir 3.Hekla María Arnardóttir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2014 | 10:00
GVG: Jófríður og Margeir Ingi klúbbmeistarar 2014 – Úrslit

Meistaramót Golfklúbbsins Vestarrs í Grundarfirði (GVG) fór fram dagana 9.-12. júlí 2014. Þátttakendur í ár voru 20. Það er skemmtilegt að sjá hversu sterkir kvenkylfingar eru á Grundarfirði, en fjölmennasti flokkurinn í meistararmótinu í ár er 2. flokkur kvenna í GVG! Frábært!!! Klúbbmeistarar GVG 2014 eru Jófríður Friðgeirsdóttir og Margeir Ingi Rúnarsson. Sjá má fleiri myndir frá meistaramóti GVG með því að SMELLA HÉR: Helstu úrslit í meistaramóti GVG 2014 eru eftirfarandi: 1. flokkur karla (5): 1 Margeir Ingi Rúnarsson GVG 2 F 42 41 83 11 78 78 79 83 318 30 2 Ásgeir Ragnarsson GVG 7 F 41 45 86 14 83 85 90 86 344 56 3 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2014 | 09:00
GÓ: Björg og Sigurbjörn klúbbmeistarar 2014

Dagana 7.-9. júlí 2014 fór fram Meistaramót Golfklúbbs Ólafsfjarðar (GÓ) á Skggjabrekkuvelli á Ólafsfirði. Þátttakendur í ár voru 18 og það sem vekur e.t.v. nokkra athygli er að fjölmennasti flokkurinn sem keppt var í var 1. flokkur kvenna, en það er fágætt hér á landi!!! Klúbbmeistarar GÓ 2014 eru Björg Traustadóttir og Sigurbjörn Þorgeirsson. Helstu úrslit í meistaramóti GÓ 2014 eru eftirfarandi: Meistaraflokkur karla (4): 1 Sigurbjörn Þorgeirsson GÓ 1 F 33 33 66 0 77 77 66 220 22 2 Bergur Rúnar Björnsson GÓ 4 F 35 39 74 8 73 78 74 225 27 3 Fylkir Þór Guðmundsson GÓ 2 F 35 37 72 6 77 82 72 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2014 | 08:00
Fjölmennið á styrktarmót Ólafs Björns á Nesvelli á morgun!

Á morgun fer fram styrktarmót Ólafs Björns Loftssonar á Nesvelli í Reykjavík. Skilaboðin frá nýkrýndum klúbbmeistara Nesklúbbsins (Ólafi Birni) eru eftirfarandi: „Á miðvikudaginn næstkomandi (16. júlí) mun ég halda styrktarmót á Nesvellinum. Ég stefni að því að taka þátt í úrtökumótum fyrir evrópsku og bandarísku mótaraðirnar í golfi í haust. Markmiðið er að vera í mínu allra besta formi þegar úrtökumótin hefjast og öðlast þátttökurétt meðal bestu kylfinga heims. Mótið mun hefjast klukkan 08:00 og verður ræst út til klukkan 19:30. Ekki eru bókaðir rástímar heldur er boltarennan í gildi á fyrsta teig. Leiknar verða 9 holur og verða veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni og 3 efstu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 15. 2014 | 07:00
NK: Helga Kristín og Ólafur Björn klúbbmeistarar 2. árið í röð! Úrslit

Meistaramót Nesklúbbsins fór fram dagana 6-12. júlí 2014. Þátttakendur að þessu sinni voru um 190 talsins. Ólafur Björn Loftsson og Helga Kristin Einarsdóttir eru klúbbmeistarar NK 2014. Þetta er 2. árið í röð sem bæði verða klúbbmeistarar, 2 skiptið sem Helga Kristín verður klúbbmeistari kvenna í NK, en 10. skiptið sem Ólafur Björn verður klúbbmeistari NK. Ólafur Björn varð klúbbmeistari NK 2004-2009 að báðum árum meðtöldum og síðan 2011-2014. Helstu úrslit meistaramóts NK 2014 eru eftirfarandi: Meistaraflokkur karla (15): 1 Ólafur Björn Loftsson NK -5 F 35 32 67 -5 74 68 70 67 279 -9 2 Guðmundur Örn Árnason NK 2 F 37 33 70 -2 75 75 73 Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

