Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2015 | 08:00

GKG: Bergsveinn alþjóðlegur dómari

Stjórn GSÍ samþykkti á dögunum tillögu dómaranefndar að Bergsveinn Þórarinsson fengi alþjóðleg réttindi. Dómarar með alþjóðleg réttindi (R&A referee eða alþjóðadómarar) eru allir þeir landsdómarar sem lokið hafa dómaraprófi frá R&A í samræmi við kröfur þeirra. Dómaranefnd skal gera tillögu til stjórnar GSÍ um þá landsdómara sem teljast hafa nægjanlega kunnáttu og reynslu til að þreyta próf á vegum R&A og ákveður stjórn GSÍ hvort þá skuli senda utan til þess að þreyta prófið. Alþjóðadómari hefur réttindi til að dæma í öllum innlendum mótum á vegum golfklúbba og GSÍ auk alþjóðlegra móta sem kunna að vera haldin hér á landi. Bergsveinn er nú einn af þremur alþjóðlegum dómurum hjá GKG en Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2015 | 06:30

Bandaríska háskólagolfið: Sunna í 11. sæti e. 2. dag Kiawah Island Spring Classic – Berglind á samtals +14

Sunna Víðisdóttir, GR og Berglind Björnsdóttir, GR taka þátt í Edwin Watts/Kiawah Island Spring Classic, en mótið stendur 1.-3. mars 2015. Leikið er á golfvöllum tveggja golfklúbba Oak Point golfklúbbnum og Osprey golfklúbbnum á Kiawah Island, í Suður-Karólínu. Sunna hefir spilað á samtals 3 yfir pari, (71 76) . Hún er T-11 i í einstaklingskeppninni, sem stendur þ.e. deilir 11. sætinu ásamt 3 öðrum.  Þetta er glæsilegur árangur hjá Sunnu, en 150 þátttakendur taka þátt í þessu stóra og sterka háskólamóti. Lið Sunnu, Elon er í 5. sæti af 40 háskólaliðum, sem þátt taka. Berglind hefir ekki fundið sig í mótinu er sem stendur T-67 á samtals 14 yfir pari (78 80) Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2015 | 06:00

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur Franklín í 4. sæti e. 1. dag Louisiana Classics

Haraldur Franklín Magnús og The Ragin Cajuns, lið Louisiana Lafayette taka þátt í 30th Annual Louisiana Classics. Mótið stendur 2.-3. mars 2015 í Oakburne CC í Louisiana. Þátttakendur í mótinu eru 81 frá 14 háskólum. Eftir 1. dag og tvo leikna hringi er Haraldur Franklín T-4, þ.e. deilir 4. sæti ásamt 3 öðrum, sem er stórglæsilegur árangur á þessu sterka móti. Haraldur Franklín er búinn að spila á samtals 140 höggum (69 71). Til þess að fylgjast með gengi Haraldar Franklín og The Ragin Cajuns á Louisiana Classic SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2015 | 05:00

Olsen biður Tiger afsökunar

Fyrrum PGA Tour leikmaðurinn  Dan Olsen hefir dregið tilbaka staðhæfingar sem hann hafði uppi  s.l. föstudag í útvarpsþætti í Michigan, þar sem hann sagði að fjarvera Tiger frá golfinu væri vegna þess að PGA Tour hefði sett Tiger í bann fyrir að falla á lyfjaprófi. „Ég dreg til baka allt viðtalið,“ sagði Olsen í yfirlýsingu sinni til  WVFN AM 730, þar sem viðtalið fór upphaflega í loftið. „Athugasemdir mínar voru sagðar að illa athuguðu máli. Ég ætla að biðja Nike, PGA Tour, Phil Mickelson, Tiger Woods og Tim Finchem afsökunar.“ Viðbrögðin við ummælum Olsen voru mikil, þar sem víða var fjallað um þau í gær. Varaforseti PGA Tour, Ty Votaw, hafði m.a. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2015 | 22:00

PGA: Pádraig Harrington sigurvegari Honda Classic!

Írski kylfingurinn Pádraig Harrington sigraði í dag á Honda Classic. Hann lék 4. og síðasta hringinn á 70 höggum og samtals á 6 undir pari, 274 höggum (67 66 71 70). Harrington varð jafn heimamanninum og  nýliðanum Daníel Berger og varð því að fara fram bráðabani. Á fyrstu holu bráðabanans (par-5 18. holunni) var allt jafnt – báðir voru á pari. Á næstu holu bráðabanans, par-3 17. holunni sigraði Harrington, með pari en Berger fékk skramba. Þriðja sætinu deildu Ian Poulter, Paul Casey og Russell Knox; allir aðeins 1 höggi á eftir forystumönnunum, þ.e. á 5 undir pari. Til þess að sjá lokastöðuna á Honda Classic SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2015 | 18:00

Afmæliskylfingur dagsins: Þorsteinn J. Vilhjálmsson – 2. mars 2015

Það er sjónvarpsmaðurinn og stórkylfingurinn Þorsteinn J. Vilhjálmsson sem er afmæliskylfingur dagsins. Þorsteinn er fæddur 2. mars 1964 og á því 51 árs afmæli í dag!!! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Thorsteinn J. Vilhjalmsson (50 ára stórafmæli!!! Innilega til hamingju!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Pamela Barnett, 2. mars 1944 (71 árs – lék á LPGA); Jorge Soto 2. mars 1945 (70 ára stórafmæli!!!), Ólafur Örn Ólafsson, GKB, 2. mars 1956 (59 ára); Ian Harold Woosnam, 2. mars 1958 (57 ára); Phil Jonas (kanadískur kylfingur á Senior Tour – evrópsku öldungamótaröðinni), 2. mars Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2015 | 12:00

Ólafur Björn lauk leik í 18. sæti á Spáni

Ólafur Björn Loftsson, NK, lauk keppni í  18. sæti á öðru móti Nordic Golf League í ár. Mótið fór fram dagana 26.-28. febrúar í Lumine golfklúbbnum í Tarragona, á Spáni. Ólafur lék samtals á 2 yfir pari, 217 höggum (72 73 72) og varð T-18, þ.e. deildi 18. sætinu með þeim Christian Aronsen, frá Noregi og Sebastian Hansson frá Svíþjóð. Á facebook síðu sína skrifar Ólafur Björn eftirfarandi:  „Ég endaði jafn í 18. sæti á öðru móti tímabilsins á Nordic League á Spáni. Ég lék hringina þrjá á 72 (E), 73 (+2) og 72 (E) höggum. Vindurinn hefur blásið stíft undanfarna daga og þurfti til að mynda að fresta leik Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2015 | 10:30

Ástralska PGA: Kráka flýgur burt með bolta kylfings

Aumingja Sam Eaves var í rólegheitum að keppa á Australian PGA Championahip, á Royal Pines Resort, þegar kráka ein blandaði sér í leik hans. Hún greip bolta hans þar sem hann lenti eftir teighöggið og flaug í burtu með boltann, settist upp í tre og missti boltann þar úr goggi sér vel utan vallar. Skv. golfreglunum hlaut Eaves frídropp. Eaves lauk 2. hringnum á 73 höggum og komst ekki í gegnum niðurskurð. Til að sjá myndskeið af krákunni fljúga burt með bolta Eaves SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2015 | 10:00

GKG: Myndskeið Magga ræsis um gamla klúbbhúsið, fyrstu skóflustunguna og nýju íþróttamiðstöðina

Maggi ræsir hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar bjó til flott myndskeið um gamla klúbbhús GKG, sem flutt var fyrir helgi  til Hafnarfjarðar nánar tiltekið til Akstursíþróttafélags Hafnarfjarðar, þar sem húsið mun framvegis verða. Þann 28. febrúar þ.e. á laugardaginn s.l. var tekin skóflustunga að nýrri íþróttamiðstöð GKG og var það formaður GKG Guðmundur Oddsson, sem hana tók ásamt Gunnlaugi Sigurðssyni fv. formanni. Sjá má ræðu sem Guðmundur Oddsson hélt við það tilefni með því að SMELLA HÉR:  Áætlað er að nýja íþróttamiðstöðin muni kosta 660 milljónir ísl. kr. en þar af greiða GKG og sveitarfélögin sem að klúbbunum standa sitt hvern þriðjung upphæðarinnar. Myndskeið Magga ræsis er þrískipt þ.e. fyrst Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2015 | 09:14

GF: Árni Tómasson nýr formaður

Aðalfundur GF fór fram föstudagskvöldið 27. febrúar sl. í golfskála klúbbsins. Á fundinum var m.a. afgreiddur nýr samningur milli GF og vallareigenda. Ragnar Pálsson sem verið hefur formaður GF undanfarin 4 ár, gaf ekki kost á sér áfram, en mun áfram koma að starfi GF á öðrum sviðum. Kristján Geir Guðmundsson, meðstjórnandi og Margrét Birna Skúladóttir í varastjórn gáfu ekki kost á sér áfram. Árni Tómasson var kosinn nýr formaður. Einnig voru þau Herdís Sveinsdóttir og Árni Þór Hilmarsson boðin velkomin til starfa hjá GF, en Herdís kom inn sem meðstjórnandi og Árni Þór í varastjórn. Á fundinn mættu um 50 félagsmenn, sem telst góð mæting í ljósi þess tíðarfars Lesa meira