Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Baldvin Jóhannsson – 24. mars 2014

Það er Baldvin Jóhannsson, GK, sem er afmæliskylfingur dagins. Baldvin er fæddur 24. mars 1938 og því 77 ára í dag. Sjá má skemmtilegt viðtal við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR: Elsku Balli – innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Aðrir frægir sem eiga afmæli í dag eru: Pat Bradley,(frænka Keegan) 24. mars 1951 (64 ára); Andrés Jón Davíðsson, golfkennari, 24. mars 1968 (47 ára); Jason Dufner, 24. mars 1977 (38 ára); Elliot Saltman, 24. mars 1982 (einn skosku golfbræðranna – 33 ára); Maria Hernandez, 24. mars 1986 (29 ára) …. og ….. Golfklúbbur Kópavogs Og Garðabæjar (21 ára) Golf 1 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2015 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2015: Emily Kristine Pedersen (31/34)

Þann 17.-21. desember 2014 fór fram lokaúrtökumót fyrir Evrópumótaröð kvenna í Samanah Al Maaden golfklúbbnum í Marokkó. Nánar tiltekið 2015 Lalla Aicha Tour School Final Qualifying eins og mótið heitir á ensku. Meðal þátttakenda á lokaúrtökumótinu í ár voru tveir íslenskir kvenkylfingar Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, en þær komust því miður ekki í hóp þeirra sem hlutu keppnisrétt á LET 2015. Golf 1 mun, eins og undanfarin ár kynna allar stúlkur sem hlutu keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (ens. Ladies European Tour skammst. LET) í gegnum lokaúrtökumótið, en í þetta sinn voru þær 34. Nú hafa allar stúlkur verið kynntar sem urðu í 5.-34. sætinu. Næst Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2015 | 12:00

Hvernig Swing Shirt hjálpaði Harrington

Í nýlegri grein Golf Digest má lesa um það hvernig golfhjálpartæki nokkuð, The Swing Shirt hefir hjálpað írska kylfingnum Pádraig Harrington á vellinum, en hann sigraði s.s. allir vita s.l. helgi á The Honda Classic. Þetta er besti árangur Harrington allt keppnistímabilið og nokkuð langt milli þessa árangurs og þess næstbesta sem var 56. sætið. Sjá má grein Golf Digest með því að SMELLA HÉR:  Sjá má glæsilegan árangur Pádraig Harrington á 2. holu bráðabanans við PGA Tour nýliðann Daníel Berger á Honda Classic s.l. helgi með því að SMELLA HÉR:  Hér má sjá heimasíðu The Swing Shirt SMELLIÐ HÉR:   og eins eldri umfjöllun Golf 1 um Swing Shirt með Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2015 | 10:00

Golfboltar og kínverskir prjónar – Myndskeið

Hér meðfylgjandi er myndskeið sem sett var saman í tilefni af því að Kínverjar fagna nýju ári skv. tímatali sínu. Hér er um áskorun að ræða, þar sem viðfangsefnið er hversu marga golfbolta hægt sé að taka upp með kínverskum prjónum. Myndskeiðið er frá Asíutúrnum. Sjá má myndskeiðið með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2015 | 08:00

Golfútbúnaður: Titleist 915 (1/2)

Þeir haukfránu meðal okkar hafa e.t.v. tekið eftir því að margt atvinnukylfinga, sem er á samningi hjá Titleist, hafa verið með nýjar kylfur í pokunum nú á undanförnum vikum á þeim stórmótum sem þá hafa farið fram. Meðal þeirra eru t.a.m ástralski kylfingurinn Geoff Ogilvy , sem nældi sé í fyrsta sigur sinn síðan 2010 á the Barracuda Championship, en á því móti notaði hann 915 D2 dræver. Eftir sigurinn sagði Ogilvy m.a.: „Ég losaði mig bara við 913 skaftið mitt og setti í 915 skaftið og eftir tvö högg, var ég fullviss um að þetta væri kylfan fyrir mig.“ Næstum 100 kylfingar á atvinnumótaröðum um allan heim hafa þegar svissað yfir í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 4. 2015 | 07:00

Hlynur Geir nýr formaður PGA

Selfyssingurinn Hlynur Geir Hjartarson er nýr formaður PGA á Íslandi. Hann tekur við formennsku í samtökunum af Sigurpáli Geir Sveinssyni sem hefur gengt embættinu frá árinu 2009. Frá þessu er greint á heimasíðu PGA á Íslandi. Hlynur Geir kveðst taka við góðu búi af forvera sínum: „Samtökin hafa eflst jafnt og þétt í formannstíð Sigurpáls og standa vel. Það leiðir af sér að núna er tækifæri til sóknar. Þau atriði sem ég hef áhuga á að einbeita mér að er annars vegar að efla félagið innan í frá, að fá samtakamátt meðal félagsmanna sem nú eru um 70. Út á við hef ég metnað fyrir því að ná þéttu samstarfi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2015 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Shimul Barua Barua – 3. mars 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Shimul Barua Barua.  Shimul er fæddur 3. mars 1975 og á því 40 ára merkisafmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið: Shimul Barua Barua F. 3. mars 1975 (40 ára stórafmæli – Innilega til hamingju!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Julius Boros, 3. mars 1920 – d. 28. maí 1994 (hefði orðið 94 í dag); Sirrí Bragadóttir, 3. mars 1943 (hefði orðið 72 ára í dag); Keith Carlton Fergus 3. mars 1954 (61 árs ); Noelle Daghe, 3. mars 1966 (49 ára – fyrrum LPGA kylfingur); Iain Pyman, 3. mars 1973 (42 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2015 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2015: Stephanie Meadow (23/45)

Það voru 7 stúlkur sem deildu 18.-24. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, sem fram fór 3.-7. desember 2014. Lokaúrtökumótið fór fram á Hill og Jones golfvöllunum á  LPGA International, á Daytona Beach, í Flórída. Aðeins 20 stúlkur fengu fullan spilarétt á LPGA 2015 og því varð að fara fram bráðabani milli þessa 7 stúlkna og komust 3 áfram og fengu fullan spilarétt þ.e.: Laetitia Beck, Garrett Phillips og Karlin Beck en hinar 4 fengu aðeins takmarkaðan spilarétt þ.e.: Julie Yang, Jacqui Concolino, Stephanie Meadow og Casey Grice. Byrjað verður að kynna þær 4 óheppnu sem töpuðu í bráðabananum um fullan keppnisrétt á LPGA og eru því líkt og hinar 21 sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2015 | 11:00

PGA: Högg vikunnar á Honda Classic – Myndskeið

Hér að neðan má sjá myndskeið með höggum vikunnar frá Honda Classic mótinu. Meðal þeirra sem þar koma við sögu eru Phil Mickelson, Pádraig Harrington, Ian Poulter og Daníel Berger. Til þess að sjá högg vikunnar á Honda Classic SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2015 | 10:00

Flottur árangur Harrington á Honda Classic – fer úr 297. í 82. sæti heimslistans

Segja má að árangur írska kylfingsins Pádraig Harrington komi eins og þruma úr heiðskýru lofti. A.m.k. er árangur hans mjög óvæntur þegar litið er á árangur hans í mótum að undanförnu, þ.e. það sem af er leiktímabilsins 2ö14-  2015: Dags.           Mót                                                             Sæti 19.10 2014 Shriners Hospitals for Children Open T75   70 69 72 — — 211 26.10 2014 The McGladrey Classic CUT  71 73 — — — 144 09.11. 2014 Sanderson Farms Championship T73  70 Lesa meira