Nýju stúlkurnar á LPGA 2014: Caroline Westrup, Brianna Do, Maude-Aimee Leblanc (15-17/48)
Það voru 48 stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA 8. desember 2013; 20 hlutu fullan keppnisrétt og aðrar 28 takmarkaðan, í gegnum Q-school Stage III, þ.e. lokaúrtökumótið á LPGA International, á Daytona Beach í Flórída. Hér verða allar stúlkurnar 48 kynntar en sá háttur hafður á að 2-3 stúlkur, sem urðu í 21.-48. sæti verða kynntar saman en síðan verður sérkynning á hverri þeirra 20 stúlkna, sem hlaut fullan spilarétt. Niðurskurður var að þessu sinni miðaður við slétt par, þ.e. allar sem voru á pari eða betur hlutu einhvern keppnisrétt á LPGA. Í dag verða kynntar seinni 3 af 6 sem voru T-32 þ.e. voru í 32.-37. sæti, en Lesa meira
Hver er kylfingurinn: Martin Kaymer? (7/7)
Hér fer lokagreinin í 7 greina röð um þýska kylfinginn Martin Kaymer, sem sigraði svo glæsilega á „5. risamótinu“ The Players fyrr í þessum máimánuði á þessu ári og síðan á Opna bandaríska í þessum mánuði. Hér í lokin verður á handahlaupum, rakið það helsta sem drifið hefir á daga hans s.l. 2 ár þ.e. 2012-2014: 2012: Kaymer í Ryder bikars kraftaverkaliði Evrópou í Medinah Þann 30. september 2012, sigraði Kaymer í tvímenningsleik sínum í Rydernum gegn Steve Stricker með minnsta mun 1&0. Pútt hans á 18. flöt tryggði að Ryder bikarinn varð um kjurt í Evrópu. Liðsmaður Kaymer, Francesco Molinari, gulltrygði síðan sigur Evrópu með 1/2 stigi sínu en með því Lesa meira
17 íslenskir unglingar taka þátt á móti í Finnlandi
17 íslenskir unglingar taka þátt í Finnish International Junior Championship. Fylgjast má með gengi unglinganna 17 á Finnish International Junior Championship með því að SMELLA HÉR: Unglingarnir 17 eru eftirfarandi: Strákar: Ingi Rúnar Birgisson, GKG Ingvar Andri Magnússon, GR Kristófer Karl Karlsson, GKj Magnús Friðrik Helgason, GKG Sigurður Arnar Garðarsson, GKG Telpur: Eva Karen Björnsdóttir, GR Gerður Hrönn Ragnarsdóttir, GR Ólöf María Einarsdóttir, GHD Saga Traustadóttir, GR Drengir: Arnór Snær Guðmundsson, GHD Bragi Aðalsteinsson, GKG Fannar Ingi Steingrímsson, GHG Helgi Snær Björgvinsson, GK Henning Darri Þórðarson, GK Hlynur Bergsson, GKG Jóel Gauti Bjarkason, GKG Kristján Benedikt Sveinsson, GHD
Caroline Wozniacki: „Ég er ekkert að deita gegnum internetið“
Nr. 7 á heimslistnaum RoryMcIlroy sleit trúlofun sinni og dönsku tennisdrotningarinnar Caroline Wozniacki í síðata mánuði og var Wozniacki eyðilögð. Hin 23 ára Caroline ætlar sko ekkert að fara að deita á næstunni …. og alls ekki gegnum internetið. Hún hló þegar einn blaðamaður spurði hana að þessu og sagði: „Ég er nú ekki alveg svo örvæntingarfull! Sjáum bara hvað setur.“ „Ég er fullkomlega ánægð með að vera einhleyp í augnablikinu.“ „Það er ansi erfitt fyrir nokkurn að fá mig til að missa fótfestu og ég dett ekkert af stólnum fyrir hvern sem er. Þetta verður að vera einhver alveg sérstakur.“ „Í augnablikinu er ég bara að einbeita mér að Lesa meira
GR: Gísli Þór á besta skorinu í Flugfélags Íslands mótinu – Ragnhildur með nýtt vallarmet í Korpunni
Opna Flugfélag Íslands mótið fór fram á Korpúlfsstaðavelli sunnudaginn 22. júní 2014. Þátttakendur voru 122, þar af 26 kvenkylfingar. Sá hluti Korpunnar sem spilaður var, var Áin og Landið. Leikfyrirkomulag var flokkaskipt punktakeppni (fgj. 0-8,4 og fgr. 8.5-36) og veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin í hvorum flokki. Jafnframt voru veitt 1 verðlaun fyrir besta skor. Jafnframt voru veitt nándarverðlaun á öllum par-3 holum vallarins. Á besta skorinu var Gísli Þór Þórðarson GR en hann lék Korpuna á glæsilegum 3 undir pari, 69 höggum – fékk 6 fugla og 3 skolla á hringum. Hann var einnig með flesta punkta í punktakeppnishlutanum eða 41. Það sem var ekki síður glæsilegt Lesa meira
Tiger var í veislu Obama í Hvíta húsinu
Tiger Woods var meðal gesta sem sóttu Obama Bandaríkjaforseta heim í Hvíta húsið í gær. Mikið var búið að spekúlera í fjölmiðlum vestra hvort Tiger myndi mæta en gestalistinn var ekki gefinn upp af Hvíta húsinu. 3 mestu kylfingar í Hvíta húsinu: Obama, varaforsetinn Joe Biden og þingmaðurinn John Boehner (speaker of the House) tóku á móti Forsetabikarsliðinu. Í ræðu sinni til þess að bjóða gestina (Forsetabikarsliðið velkomið) vísaði Obama m.a. til þessara tveggja framangreindu sem uppáhaldsgolffélaga sinna, sem báðir yrðu þó að gefa sér högg vegna forgjafar (þ.e. Obama með hærri forgjöf en þeir báðir). Obama þakkaði sérstaklega Phil Mickelson fyrir að gefa sér ráð um hvernig ætti að Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Ólöf María Jónsdóttir – 24. júní 2014
Afmæliskylfingur dagsins er Ólöf María Jónsdóttir. Ólöf María er fædd 24. júní 1976 og er því 38 ára í dag. Hún er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Ólöf er fyrst íslenskra kvenna og sú eina til dagsins í dag, til þess að fá fullan keppnisrétt á Evrópumótaröð kvenna (LET: Ladies European Tour). Ólöf María er gift og á 2 börn. Komast má á facebook síðu Ólafar Maríu til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan: Olof Maria Jonsdottir Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Billy Casper, 24. júní 1931 (83 árs); Juli Inkster, 24. júní 1960 (54 ára); Kaname Yokoo, 24. júlí 1972 (42 árs); Louise Lesa meira
Eimskipsmótaröðin (4): Íslandsmótið í holukeppni hefst næstu helgi – Rástímar og riðlar
Um helgina fer fram Securitasmótið Íslandsmótið í holukeppni á Hvaleyrarvelli í Hafnafirði. Það er Golfklúbburinn Keilir sem hefur veg og vanda að framkvæmd mótsins að þessu sinni. Búið er að raða niður í riðla og rástíma en þá er að finna með því að SMELLA HÉR: Mótið hefst á föstudagsmorgun með riðlakeppni, átta 4 manna riðlar eru í karla og kvennaflokkum. Riðlakeppninni lýkur um hádegi á laugardag, efsti kylfingurinn í hverjum riðli kemst áfram í 8 manna úrslit sem leikin verða eftir hádegi á laugardaginn. Á sunnudagsmorgun verða undanúrslitaleikirnir leiknir og úrslitaleikirnir verða svo leiknir eftir hádegi. Hægt verður að fylgjast með gangi mála á Twitter Golfsambandsins og á forsíðu Lesa meira
LET: Camilla Lennarth sigraði Opna slóvakíska
Sænski kylfingurinn Camilla Lennarth vann nú um helgina sinn fyrsta sigur á Evrópumótaröð kvenna (LET) þ.e. á móti LET í síðustu viku, Allianz Ladies Slovak Open presented by RESPECT. Mótið fór fram í Grey Bear golfklúbbnum í Talé, Slóvakíu. Sigur Lennarth var sannfærandi en hún var á samtals 11 undir pari, 277 höggum (70 72 69 66). Hin enska Melissa Reid var í 2. sæti heilum 4 höggum á eftir þ.e. á 7 undir pari, 281 höggi (75 68 71 67). Þriðja sætinu deildu skoski kylfingurinn Sally Watson og hin enska Hannah Ralph á samtals 3 undir pari, hvor, þannig að sést hversu miklir yfirburðir Lennarth voru. Til þess að sjá Lesa meira
Tiger í Hvíta húsinu í dag?
Í dag heldur Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sigurvegurum í bandaríska Foretabikarsliðinu 2013 veislu í Hvíta húsinu. Mikil spenna er hvort Tiger Woods muni mæta, en hann var lykilmaður bandaríska liðsins. Enginn boðslisti hefir verið gerður opinber þannig að óljóst er hvort Wooes mæti. Tiger og margir af forsetabikarskylfingunum eru þó í Washington í dag vegna þess að þessa viku fer fram Quicken Loans National mótið, en tekjur af mótinu renna í til góðgerðarstofnunar Tiger. Tiger sjálfur tekur þátt í mótinu og þá kemur í ljós hversu vel hann er búinn að ná sér í bakinu. Obama og Tiger eru vinir og spiluðu m.a. hring í Flórída í febrúar á síðasta ári. Boðið Lesa meira










