Afmæliskylfingur dagsins: Steinunn Jónsdóttir – 27. mars 2015
Afmæliskylfingur dagsins er Steinunn Jónsdóttir. Steinunn er fædd 27. mars 1951 og er í Golfklúbbi Sandgerðis. Hún hefir tekið þátt í mörgum opnum mótum, með góðum árangri. Komast má á facebook síðu Steinunnar til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan: Steinunn Jónsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!) F. 27. mars 1951 Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: June Beebe Atwood, f. 27. mars 1913 – d. 10. nóvember 2003; Ignacio Garrido, 27. mars 1972 (43 ára); David Dixon, 27. mars 1977 (38 ára); rússneski kylfingurinn María Verchenova, 27. mars 1986 (29 ára) …… og …… Dansinn Lengi Lifi F. 27. mars 1947 Lesa meira
PGA: Mickelson braut kylfuhöfuð af 8-járni
Phil Mickelson varð fyrir því óláni á opnunarhring The Valero Texas Open í gær að brjóta kylfuhöfuð af 8-járni sínu. Óhappið átti sér stað í aðhöggi Phil á par-4 12. braut JW Marriott TPC San Antonio golfvallarins. Þar var Phil í flatarglompu. Hann lauk spili á 12. braut með því að fá skolla á holuna. Sjá má myndskeið þegar kylfuhöfuðið fór af 8-járni Phil með því að SMELLA HÉR:
Bandaríska háskólagolfið: Rúnar T-36 e. 1. dag The Goodwin
Rúnar Arnórsson, GK og golflið Minnesota taka þátt í The Goodwin, bandarísku háskólamóti, sem fram fer á Stanford golfvellinum í Kaliforníu. Mótið stendur dagana 26.-28. mars og hófst því í gær. Þetta er stórt mót; keppendur eru 132 frá 24 háskólum. Eftir 1. dag er Rúnar T-36 þ.e. deilir 36. sætinu ásamt 14 öðrum keppendum, en hann lék 1. hring á sléttu pari, 70 höggum. Sjá má stöðuna á The Goodwin eftir 1. dag með því að SMELLA HÉR:
LPGA: Mirim Lee efst á Kia Classic e. 1. dag
Það er Mirim Lee sem er efst eftir 1. dag Kia Classic mótsins, sem er mót vikunnar á LPGA-mótaröðinni. Mótið fer fram í Carlsbad, Kaliforníu. Mirim lék á glæsilegum 7 undir pari, 65 höggum. Í 2. sæti er fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Yani Tseng, aðeins 1 höggi á eftir Mirim og 3. sætinu deila 4 glæsikylfingar, núverandi nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Lydia Ko, Cristie Kerr, ástralska golfdrottningin Karrie Webb og kínverska nýstirnið Xiyu Lin. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag Kia Classic SMELLIÐ HÉR:
PGA: Charley Hoffman leiðir e. 1. dag Valero Texas Open – Hápunktar 1. dags
Charley Hoffman leiðir eftir 1. dag Valero Texas Open, sem hófst á JW Marriott TPC San Antonio. í Texas í gær. Hoffman lék á 5 undir pari, 67 höggum. Í 2. sæti er Aaron Baddley á 4 undir pari, 68 höggum ogí 3. sæti er Max Homa á 3 undir pari, 69 höggum. Þessir 3 eru þeir einu sem léku undir 70, en mjög hvasst var í San Antonio þar sem mótið fór fram. Til þess að sjá stöðuna á Valero Texas Open SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 1. dags á Valero Texas Open SMELLIÐ HÉR:
PGA: Fylgist með á Valero Texas Open hér!
Valero Texas Open er mót vikunnar á PGA Tour, en mótið fer fram JW Marriott TPC San Antonio í Texas. Fylgjast má með Valero Texas Open á skortöflu með því að SMELLA HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Arnar Birgisson – 26. mars 2015
Það er Arnar Birgisson sem er afmæliskylfingur dagsins. Arnar er fæddur 26. mars 1965 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Komast má á facebooksíðu Arnars til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan Arnar Birgisson (Innilega til hamingju með merkisafmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru Edith Cummings 26. mars 1899-nóvember 1984, David Delong, 26. mars 1959 (56 ára); Debbie Hall, 26. mars 1960 (55 ára); Lee Porter, 26. mars 1966 (49ára), Ian Guy Hutchings, 26. mars 1968 (47 ára); Rachel Raastad, (norsk – spilar á LET Access), 26. mars 1989 (26 ára) …. og ….. Brynja Haraldsdóttir, GP (47 ára) Lesa meira
GR: Jón Haukur púttmeistari 2015
Gamla kempan, Jón Haukur Guðlaugsson, sigraði nokkuð örugglega einstaklingskeppnina í Ecco-púttmótaröð karla í GR 2015 og Jónas Gunnarsson varð annar, fjórum höggum á eftir Jóni. Björn Þór Hilmarsson vann Sigurjón Árna í bráðabana um þriðja sætið. Lið 13 vann örugglega liðakeppnina. Lið 13 skipa þeir Jón Þór Einarsson og Sindri sonur og feðgarnir Kristmundur Eggertsson og Eggert Kristmundsson. Þrjú lið, 15, 26 og 38, voru jöfn í öðru til fjórða sæti og þurfti bráðabana til að fá fram úrslit. Lið 26 varð í öðru sæti síðan lið 38 og lið 15 í því fjórða. Lokastaða Ecco-mótaraðarinnar fylgir með þessum pistli. Það var mikið fjör á lokakvöldinu og mættu um 120 Lesa meira
Bandaríska háskólagolfið: Berglind og UNCG í 19. sæti á Mountain View Collegiate
Berglind Björnsdóttir, GR og golflið UNCG tóku þátt í Mountain View Collegiate, sem fram fór dagana 20.-21. mars s.l. Berglind lék á samtals 17 yfir pari, 233 höggum (79 78 76). Hún varð T-95 í einstaklingskeppninni og á 4. besta heildarskori UNCG. UNCG varð í 19. sæti í liðakeppninni. Sjá má lokastöðuna á Mountain View Collegiate með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Berglindar og UNCG verður Bryan mótið í Norður-Karólínu sem fram fer 3.-5. apríl n.k.
Jordan Spieth keypti sér hús fyrir $2,3 milljónir
Margir sem eru 21 árs búa enn hjá foreldrum sínum, eru í háskólanum, á námslánum og í partýum hverja helgi. En svo er ekki um alla – sumir eru kannski búnir að skrapa saman nóg fyrir fyrstu íbúð sinni. Það eru ekki allir eins og Jordan Spieth sem er 21 árs og er búinn að vinna sér inn $ 10 milljónir, m.a. vegna tveggja sigra hans á PGA Tour og ábatasams samnings til 10 ára við Under Armour sem hann var að skrifa undir. Og í hvað fara peningar Spieth? Hann er nýbúinn að kaupa sér $ 2,3 milljóna (u.þ.b. 300 milljóna íslenskra króna) glæsihýsi í Texas, en Mark Cuban (eigandi Lesa meira










