Nýju strákarnir á PGA Tour 2019: Fabián Gómez (27/50)
Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Web.com Tour eftir 2017-2018 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 4 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Web.com Finals.
Nú hafa verið kynntir þeir 25, sem urðu efstir á peningalista Web.com Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour, síðast var kynntur sá sem varð í 1. sæti peningalistans, Sungjae Im frá Suður-Kóreu. Nú er aðeins eftir að kynna þá 25, sem urðu efstir á Web.com Finals og hlutu þannig þáttökurétt á mótum PGA Tour. Fyrst var kynntur sá sem rétt slapp í hóp þeirra 25 efstu en það var Jim Knous. Í dag verður sá næstheppnasti kynntur en það er Fabián Gómez.
Fabián Gómez fæddist í Chaco, Argentínu 27. október 1978 og er því 40 ára.
Fabian hefir sigrað þrívegis á Tour de las Americas, og eins 3 sinnum á argentínsku TPG Tour. Hann varð í 2. sæti á Chaco Open árið 2006, á TLA Players Championship árið 2006 og Venezuela Open árið 2007. Hann varð í efsta sæti á stigalista TPG Tour árið 2009.
Gómez vann fyrsta og eina Nationwide Tour sigur sinn árið 2010 en það var Chitimacha Louisiana Open. Hann varð í 12. sæti það ár á peningalistanum og hlaut kortið sitt í fyrsta sinn á PGA Tour árið 2011. Það ár var besti árangur hans 7. sætið á Puerto Rico Open, 15. sætið á St. Jude Classic og 18. sætið á Viking Classic.
Hann vann sér ekki inn nægilega mikið verðlaunafé og árið 2012 var hann aftur kominn á Nationwide Tour. Hann varð í 2. sæti á Chitimacha Louisiana Open, 7. á the South Georgia Classic og í 10. sæti á Winn-Dixie Jacksonville Open. Hann varð í 55. sæti á Nationawide Tour peningalistanum. Seinna varð hann síðan í 10. sæti í PGA Q School og vann sér inn kortið sitt á PGA Tour fyrir keppnistímabilið 2013.
Árið 2013 varð Gómez í 2. sæti á Puerto Rico Open, 16. sæti á RBC Canadian Open og í 21. sæti á AT&T National. Hann varð í 133. sæti á peningalista PGA tour og missti síðan aftur kortið sitt á PGA Tour.
Hann var því aftur kominn á Web.com Tour keppnistímabilið 2014 og þar varð hann í 2. sæti á Stonebrae Classic, í 4. sæti á United Leasing Championship og í 10. sæti á the Albertsons Boise Open. Hann varð í 23. sæti á peningalista Web.com Tour og vann þannig aftur kortið sitt keppnistímabilið 2014-2015 á PGA Tour.
Þann 14. júní 2015 sigraði Gomez á fyrsta PGA Tour móti sínu, þ.e. St. Jude Classic – Sjá frétt Golf 1 um það með því að SMELLA HÉR:
Keppnistímabilið 2016 keppti Gomez á PGA Tour og með sigri 17. janúar 2016, á Sony Open tryggði hann sér keppnisrétt á PGA Tour næstu 2 árin, en það var hann líka búinn að gera í 2015 en framlengdi með sigri á Sony Open keppnisrétt sinn til loka árs 2017
Á keppnistímabilinu 2018 keppti Gomez á Web.com Tour.
Gomez vann sér inn $ 43,657 með því að verða tvívegis meðal efstu 20 á Web.com Finals 2018 og varð því í 24. sæti yfir tekjuhæstu kylfinga hvað snerti verðlaunafé úr þessum 4 lokamótum í Web.com Finals og er þar með búinn að framlengja veru sína á PGA Tour keppnistímabilið 2018-2019 …. en aðeins rétt svo!
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
