Ragnheiður Jónsdóttir | september. 3. 2018 | 07:00

LPGA: Marina Alex sigraði á Cambia Portland Classic

Það var bandaríski kylfingurinn  Marina Alex, sem sigraði á Cambia Portland Classic.

Sigurskor Alex var 19 undir pari, 269 högg (62 71 71 65).

Alex er e.t.v. ekki þekktasti kylfingur LPGA og má sjá kynningu Golf 1 á henni með því að SMELLA HÉR: 

Alex er fædd 2. ágúst 1990 og er því nýorðin 28 ára. Þetta er fyrsti sigur hennar á LPGA. Með sigrinu færist Marina Alex m.a. úr 23. sæti stigalistans í 10. sætið!

Í 2. sæti heilum 4 höggum á eftir Alex á samtals 15 undir pari varð enski kylfingurinn Georgia Hall.  Í 3. sæti varð síðan japanski kylfingurinn Ayako Uehara á samtals 13 undir pari.

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir tók þátt í mótinu (72 72) en komst ekki í gegnum niðurskurð.

Til þess að sjá lokastöðuna á Cambia Portland Classic SMELLIÐ HÉR: