Ragnheiður Jónsdóttir | september. 30. 2018 | 08:00

Guðrún Brá lauk keppni T-4 á Nøtterøy Open

Atvinnukylfingurinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, tók þátt í móti á sænsku mótaröðinni, Nøtterøy Open, sem fram fór dagana 27.-29. september 2018 í Noregi og lauk í gær.

Guðrún Brá lék á samtals 1 undir pari, 215 höggum (72 70 73) og deildi 4. sætinu með 3 öðrum keppendum, My Leander frá Svíþjóð og þeim Celine Borge og Mariell Bruun frá Noregi (Sjá eldri kynningu Golf1.is á Borge með því að SMELLA HÉR

Sigurvegari í mótinu varð sænska stúlkan Sarah Nilsson, sem lék á samtals 6 undir pari, 210 höggum (69 69 72)

(Sjá eldri kynningu Golf1.is á Söruh Nilsson með því að SMELLA HÉR: ).

Til þess að sjá lokastöðuna á Nøtterøy Open SMELLIÐ HÉR: