Golf 1 níu ára í dag!
Golf 1 er níu ára í dag, þ.e. 9 ár eru frá því að fyrsta fréttin birtist á Golf 1 golffréttavefnum. Það var frétt í greinaflokknum „Frægir kylfingar“ og um John F. Kennedy 35. forseta Bandaríkjanna, sem enn í dag þykir, að öðrum ólöstuðum, fremstur í golfi af þeim sem setið hafa í forsetastóli í Bandaríkjunum.. Sjá fyrstu grein Golf 1 með því að SMELLA HÉR:
Frá því fyrir níu árum síðan hafa tæpar 23.000 greinar birtst á Golf1, á íslensku, ensku og þýsku en Golf 1 er því eini golffréttavefurinn í heiminum sem skrifar golffréttir á íslensku, ensku og þýsku.
Reyndar er svo komið nú fyrir Golf 1 að fréttir hafa ekki verið skrifaðar í rúman 1 mánuð og eru ástæður þessa fjöl- þættar. En það þarf ekki að örvænta …. Golf 1 heldur áfram og vel við hæfi að hefja skriftir að nýju á níu ára afmæli Golf 1 golffréttavefsins.
Golf 1 mun áfram flytja fréttir af 2. vinsælustu íþróttagrein á Íslandi ásamt því efni sem vefurinn er orðinn þekktur fyrir: úrslitafréttir af öllum helstu mótaröðum heims, afmælisgreinar, kynningar á og viðtöl við kylfinga, kynningar á golfvöllum, kynningar á golfbókum, sögur af golfi, golfútbúnaðargreinar, krakkana okkar á unglingamótaröðunum, fremstu kylfingunum okkar á „Mótaröð þeirra bestu“, frægum og ekki svo frægum kylfingum, krökkunum okkar í bandaríska háskólagolfinu (þegar Covid-19 ástandinu linnir); fréttir af meistaramótum klúbba, sveitakeppnum, almennum mótum, hefðbundnum sem óhefðbundnum, kvenkylfingum sem karlkylfingum, ungum sem öldnum, íslenskum sem útlenskum.
Eins og lagt var upp með í upphafi er ekkert viðkomandi golfi Golf 1 óviðkomandi!
Bestu þakkir fyrir góðar viðtökur fyrstu 9 starfsárin. Golf 1 heldur áfram og vonar svo sannarlega að lesendur haldi áfram að fylgjast með vefnum!
Ragnheiður Jónsdóttir, ritstjóri Golf 1.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024
