Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2019 | 10:00
Bandaríska háskólagolfið: Hlynur & félagar luku keppni í 8. sæti á Royal Oaks

Hlynur eða Lenny Bergsson eins og hann kallar sig í bandaríska háskólagolfinu og félagar í North Texas luku keppni í 8. sæti á Royal Oaks Intercollegiate. Mótið fór fram 21.-22. október sl. í Royal Oaks Country Club í Dallas, Texas. Hlynur lék á samtals 1 yfir pari, 214 höggum (71 71 72). Sjá má lokastöðuna á Royal Oaks Intercollegiate með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Hlyns og North Texas er 1. nóvember n.k. á Hawaii.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2019 | 09:00
Bandríska háskólagolfið: Vikar & félagar luku keppni í 12. sæti á Little Rock Classic

Vikar Jónasson, GK og félagar í Southern Illinois háskóla tóku þátt í Little Rock Classic háskólamótinu. Mótið fór fram dagana 20.-22. október sl. og voru þátttakendur 87 frá 15 háskólum. Vikar lauk keppni á samtals 12 yfir pari, 226 höggum (76 76 76) og varð T-54 í einstaklingskeppninni. Hann var á 3. besta skorinu af liðsfélögum sínum. Lið Southern Illinois varð í 12. sæti í liðakeppninni. Sjá má lokastöðuna á Little Rock Classic með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Vikars og félaga er 1. nóvember n.k. á Hawaii.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2019 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Ricardo Gonzáles – 24. október 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Ricardo Gonzales. Hann fæddist 24. október 1969 í Corrientes, Argentínu og á því 50 ára stórafmæli í dag. Gonzales gerðist atvinnumaður í golfi 1986 og á að baki 24 sigra, þ.á.m. 2 á Áskorendamótaröð Evrópu og 4 sigra á Evróputúrnum. Gonzales er sá elsti í sögu Evróputúrsins til þess að komast í gegnum úrtökumót en það var 2016, en þá var Gonzales 47 ára. Besti árangur Gonzales í risamótum er T-10 árangur á PGA Championship árið 2002. Í dag býr Gonzales í Rosario í Argentínu. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Margaret Ann „Margie” Masters, 24. október 1934 (85 ára); Ian Michael Baker Finch, 24. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 24. 2019 | 12:00
Aron Emil varð í 3. sæti á Tulip Challenge!!!

Sex íslenskir kylfingar, þeir Aron Emil Gunnarsson,GOS; Tómas Eiríksson Hjaltested, GR; Ingi Þór Ólafsson, GM; Jón Gunnarsson, GKG; Björn Viktor Viktorsson, GL og Logi Sigurðsson, GS tóku þátt í Tulip Challenge. Mótið fór fram í Drentsche Golf & Country Club, í Zeijerveen, Hollandi dagana 17.-20. október sl. Aron Emil lék á samtals 1 yfir pari, 217 höggum (75 71 71) og tók bronsið í mótinu, þ.e. landaði 3. sætinu!!! Stórglæsilegt!!! Árangur hinna íslensku þátttakendanna var eftirfarandi: Tómas Eiríksson Hjaltested, 4 yfir pari, 220 högg (74 76 70). Ingi Þór Ólafson, 13 yfir pari, 229 högg (79 75 75). Jón Gunnarsson, 18 yfir pari, 234 högg (82 75 77). Björn Viktor Viktorsson, 21 yfir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2019 | 18:00
Bandaríska háskólagolfið: Jóhannes & félagar urðu í 9. sæti

Jóhannes Guðmundsson, GR og félagar í Stephen F. Austin State University tóku þátt í Little Rock Invitational. Mótið fór fram dagana 21.-22. október og lauk því í gær. Þátttakendur voru 87 frá 15 háskólum. Jóhannes lék á 11 yfir pari, 227 höggum (73 76 78) og lauk keppni T-50 í einstaklingskeppninni. Stephen F. Austin varð í 9. sæti í liðakeppninni. Sjá má lokastöðuna á Little Rock Invitational með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Jóhannesar og félaga er ekki fyrr en á vorönn þ.e. 17. febrúar 2020.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2019 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Hlynur Bergsson – 23. október 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Hlynur Bergsson, GKG. Hlynur er fæddur 23. október 1998 og er því 21 árs afmæli í dag. Hlynur er Íslandsmeistari pilta í höggleik 2015. Hann tók m.a. þátt í Duke of York mótinu 2015 og landaði 25. sætinu, sem er góður árangur. Árið 2016, varði Hlynur Íslandsmeistaratitil sinn í höggleik í piltaflokki og eins varð hann stigameistari í piltaflokki á Íslandsbankamótaröðinni. Hlynur spilar nú í bandaríska háskólagolfinu með liði North Texas Komast má á facebook síðu Hlyns hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið Hlynur Bergsson – 23. október 1998 (21 árs – Innilega til hamingju með afmælið!) Aðrir frægir kylfingar sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 23. 2019 | 14:00
Nýju strákarnir á PGA 2020: Kramer Hickok (47/50)

Eins og á undanförnum árum mun Golf 1 kynna „Nýju strákana“ á PGA Tour. Nú verða kynntir „nýju strákarnir“ keppnistímabilið 2019-2020 til sögunnar, en það eru sem fyrr efstu 25 á peningalista Korn Ferry Tour eftir 2018-2019 keppnistímabilið og síðan þeir 25 sem stóðu sig best í síðustu 3 mótunum á mótaröðinni þ.e. í Korn Ferry Tour Finals. Nú hafa verið kynntir þeir 25, sem urðu efstir á stigalista Korn Ferry Tour eftir reglulega tímabilið og hlutu þannig kortin sín á mótaröð þeirra bestu, PGA Tour. Nú er aðeins eftir að kynna þá 25, sem urðu efstir á Korn Ferry Tour Finals og fengu kortin sín þannig. Í dag verður Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2019 | 20:00
Bandaríska háskólagolfið: Helga Kristín T-11 á Lady Blu Hen Inv.

Helga Kristín Einarsdóttir, GK og félagar í University of Albany tóku þátt í Lady Blue Hen Invitational mótinu, sem fór fram 19.-20. október sl. í Rehoboth Beach Country Club, á Rehoboth Beach í Delaware. Þáttakendur voru 69 frá 11 háskólum. Helga Kristín lék á samtals 9 yfir pari, 225 höggum (75 73 77). Hún var á besta skorinu af liðsfélögum sínum í liði Albany og lauk keppni T-11, sem er glæsilegt hjá henni!!! Lið Helgu Kristínar, Albany lauk keppni í 10. sæti í liðakeppninni. Sjá má lokastöðuna á Lady Blue Hen Inv. með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Helgu Kristínar og Albany er á vorönn 2020.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2019 | 18:00
Bandaríska háskólagolfið: Ragnhildur á besta skori EKU!!!

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR og félagar í Eastern Kentucky University (EKU) tóku þátt í Cardinal Cup, sem fram fór 18.-20. október. Mótsstaður var golfvöllur University of Louisville í Simpsonville, Kentucky. Þátttakendur voru 95 frá 17 háskólum. Ragnhildur lék á samtals 13 yfir pari, 229 höggum (81 78 70) og varð T-45 í einstaklingskeppninni. Ragnhildur átti frábæran lokahring á 2 undir pari og var á besta skori EKU í mótinu. Lið EKU varð í 14. sæti í liðakeppninni. Sjá má lokastöðuna á Cardinal Cup með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Ragnhildar og EKU er 28. október n.k.
Ragnheiður Jónsdóttir | október. 22. 2019 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Kristinn Reyr Sigurðsson – 22. október 2019

Afmæliskylfingar dagsins, 22. október 2019 er Kristinn Reyr Sigurðsson. Kristinn Reyr er fæddur 22. október 1996 og á því 23 ára afmæli í dag. Kristinn Reyr er í Golfklúbbi Reykjavíkur (GR). Kristinn Reyr varð m.a. í 4. sæti á stigalista GSÍ 2013 í piltaflokki. Hann hefir m.a. spilað á Mótaröð þeirra bestu (áður: Eimskipsmótaröðin). Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Kristinn Reyr Sigurðsson, GR. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Olof Loa Jonsd., 22. október 1948 (71 árs); Sonja B. Jónsdóttir, 22. október 1952 (67 ára); Júlíus Þór Tryggvason, 22. október 1966 (53 ára); Adam Gee, Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

