Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 23. 2021 | 10:00
„Geggjuð tilfinning“ – Gunnhildur Hekla fór holu í höggi

Gunnhildur Hekla Gunnarsdóttir, GKG, fór holu í höggi á 1. keppnisdegi á nýafstöðnu Íslandsmóti unglinga í höggleik, þ.e. þann 19. ágúst sl. Ásinn kom á par-3 7. holu Hlíðavallar í Mosfellsbæ. Brautin er 109 m af gulum teigum (keppnisteigum kvenna). Gunnhildur notaði pitching wedginn sinn við höggið góða. Í viðtali við fréttamann GSÍ eftir hringinn sagði Gunnhildur að þetta hefði verið 1. ásinn hennar og tilfinningin að fá hann „hafi verið geggjuð“ Golf 1 óskar Gunnhildi innilega til hamingju með ásinn og inngönguna í Einherjaklúbbinn!!! Aðalmyndagluggi: Gunnhildur Hekla. Mynd: GSÍ
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 23:59
Unglingamótaröð GSÍ 2021 (5): Daníel Ísak Íslandsmeistari í fl. 19-21 árs pilta

Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021. Daníel Ísak Steinarsson, GK, sigraði í flokki 19-21 árs á 3 höggum undir pari samtals en hann lék hringina þrjá á 213 höggum (67-74-72). Tómas Eiríksson Hjaltested, GR, varð annar aðeins einu höggi á eftir, 214 höggum eða -2 samtals (73-68-73). Aron Emil Gunnarsson, GOS, varð þriðji á +1 samtals eða 217 höggum (75-72-70). Þátttakendur í flokki 19-21 árs voru 25 og sjá má öll úrslit með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 18:27
Unglingamótaröð GSÍ 2021 (5): Böðvar Bragi Íslandsmeistari í piltaflokki 17-18 ára

Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021. Böðvar Bragi Pálsson, GR, sigraði í flokki 17-18 ára en hann lék samtals á 2 höggum undir pari vallar, 214 höggum (73-68-73). Breki Gunnarsson Arndal, GKG, varð annar á +10 samtals 226 höggum (74-76-76). Jafnir í 3. sæti á 231 höggi eða +15 voru þeir Bjarni Þór Lúðvíksson, GR (78-75-78) og Mikael Máni Sigurðsson, GA, (78-73-80). Sjá má lokastöðuna í piltaflokki 17-18 ára SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 18:00
Íslandsmót golfklúbba 2021: GK Íslandsmeistari karla +50 ára í 1. deild

Íslandsmót golfklúbba 1. deild karla +50 ára flokki fór fram á Hamarsvelli hjá Golfklúbbi Borgarness dagana 19.-21. ágúst. Golfklúbburinn Keilir og Golfklúbbur Reykjavíkur léku til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn. Þar hafði GK betur 3-2. Golfklúbbur Öndverðarness endaði í þriðja sæti eftir 3-2 sigur gegn Golfklúbbi Suðurnesja. Golfklúbburinn Oddur féll í 2. deild. Alls tóku 8 klúbbar þátt og þar sem að keppt var um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild 2021 í +50 ára. Íslandsmeistarasveit GK karla 50+ var svo skipuð: Björgvin Sigurbergsson, Ásgeir Guðbjartsson, Hörður Hinrik Arnarson, Björn Knútsson, Hálfdán Þórðarson, Gunnar Þór Halldórsson, Magnús Pálsson og Jón Erling Ragnarsson. Liðsstjóri: Hörður Hinrik Arnarson. Sjá má úrslit í einstökum viðureignum með því Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 17:55
Unglingamótaröð GSÍ 2021 (5): Ásdís Íslandsmeistari í stúlknaflokki 19-21 árs

Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021. Ásdís Valtýsdóttir, GR, sigraði í flokki 19-21 árs en hún lék á 252 höggum, 36 höggum yfir pari (84-83-85). Hún er því nýkrýndur Íslandsmeistari í stúlknaflokki 19-21 árs. María Björk Pálsdóttir, GKG, varð önnur á 253 höggum, 37 höggum yfir pari (85-89-79). Í aðalmyndaglugga: María Björk t.v. og Íslandsmeistarinn Ásdís t.h. Mynd: GSÍ
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 17:30
Unglingamótaröð GSÍ 2021 (5): María Eir Íslandsmeistari í fl. 17-18 ára stúlkna

Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021. María Eir Guðjónsdóttir, GM, sigraði í flokki 17-18 ára en. hún lék samtals á 15 höggum yfir pari vallar, 231 höggi (74-78-79). Katrín Sól Davíðsdóttir, GM, varð önnur á 241 höggi, +25 (77-84-80). Nína Margrét Valtýsdóttir, GR, varð þriðja á 250 höggum, +34 (77-91-82).
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 17:16
Women’s Open 2021: Anna Nordqvist vann 3. risatitil sinn!!!

Nú rétt í þessu var hin sænska Anna Nordqvist að sigra á AIG Women´s Open, sem er síðasta risamót ársins hjá konunum. Sigurskor Önnu var 12 undir pari, 276 högg (71 71 65 69) og kom sigurinn á síðustu holu, þeirri 18. á Carnoustie, sem hún paraði, en allt var í stáli milli hennar og Madsen á 17. holu. Anna Nordqvist er fædd 10. júní 1987 og því nýorðin 34 ára. Þetta er 3. risatitill Önnu, en hún hefir áður sigrað á Women´s PGA Championship (2009) og Evían Championship (2017) og því hokin af reynslu í að sigra á risamótum. Öðru sætinu deildu þær Lizette Salas, Georgia Hall og Madelene Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 17:15
Unglingamótaröð GSÍ 2021 (5): Gunnlaugur Árni Íslandsmeistari í drengjaflokki 15-16 ára

Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021. Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, sigraði í flokki 15-16 ára en hann lék á frábæru skori eða 4 höggum undir pari samtals – 212 höggum (71-69-72). Oliver Thor Hreiðarsson, GM, varð annar á 230 höggum +14 samtals (73-76-81). Jafnir í 3. sæti á 232 höggum (+16) voru þeir Elías Ágúst Andrésson, GR og Veigar Heiðarsson, GA. Þátttakendur í drengjaflokki voru 27. Sjá má lokastöðuna í drengjaflokki á Íslandsmóti unglinga í höggleik með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 16:30
Unglingamótaröð GSÍ 2021 (5): Fjóla Margrét Íslandsmeistari í stelpuflokki

Íslandsmót unglinga í höggleik 2021 fór fram á Hlíðavelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar á Hlíðavelli dagana 20.-22. ágúst 2021. Fjóla Margrét Viðarsdóttir, Golfklúbbi Suðurnesja, sigraði í flokki 14 ára og yngri í stúlknaflokki á 228 höggum (76-76-76) eða 12 höggum yfir pari. Eva Kristinsdóttir, Golfklúbbi Mosfellsbæjar, varð önnur á 16 höggum yfir pari vallar 232 högg (74-80-78). Pamela Ósk Hjaltadóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur, varð þriðja á 28 höggum yfir pari, 244 höggum (82-82-80). Sjá má lokastöðuna í stelpuflokki á Íslandsmóti unglinga í höggleik með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 16:15
Íslandsmót golfklúbba 2021 – GR sigraði í 1. deild kvenna + 50 ára

Íslandsmót golfklúbba 1. deild kvenna +50 ára flokki fór fram á Kirkjubólsvelli hjá hjá Golfklúbbi Sandgerðis dagana 19.-21. ágúst. Alls tóku 8 klúbbar þátt og þar sem að keppt var um Íslandsmeistaratitilinn í 1. deild 2021 í +50 ára. Golfklúbbur Reykjavíkur og Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar léku til úrslita þar sem að GR hafði betur 4-1. Golfklúbburinn Keilir endaði í þriðja sæti eftir 4 1/2 – 1/2 sigur gegn Golfklúbbnum Oddi. Golfklúbbur Akureyrar féll í 2. deild. Íslandsmeistarasveit GR skipuðu eftirfarandi kylfingar: Ragnhildur Sigurðardóttir; Ásgerður Sverrisdóttir; Steinunn Sæmundsdóttir, Signý Marta Böðvarsdóttir, Auður Elísabet Jóhannsdóttir, Guðný María Guðmundsdóttir, Þuríður Valdimarsdóttir, Guðrún Garðars og Ásta Óskarsdóttir Liðsstjóri: Ásta Óskarsdóttir Sjá má úrslit í öllum viðureignum með því að Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

