Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2014 | 14:00
Harrington segir Rory hugrakkan að slíta trúlofuninni

Nú hefir Írinn Padráig Harrington, sem ekki komst í gegnum úrtökumót og keppir því ekki í Opna bandaríska í næsta mánuði, stígið á stokk og kemur fram í fjölmiðlum og tjáir sig þar um sambandsslit Rory og Caroline. Vakið hefir nokkra athygli að hann virðist dást að Rory og segir ákvörðun hans að slíta trúlofuninni við tennisstjörnuna Caroline Wozniacki „vogaða“ og Rory því hugrakkan. Meðal þess sem Harrington lét fara frá sér var að ef Rory hefði verið í einhverjum vafa, hefði til langs tíma litið verið rétt að slíta trúlofuninni. „Allir voru undrandi,“ sagði Harrington, sem stendur í stórræðum, þó ekki taki hann þátt í Opna bandaríska, en hann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2014 | 12:00
PGA: Paul Casey með lægsta hring sinn á PGA frá 2011

Paul Casey, sem ásamt Chris Kirk og Bubba Watson er í 2. sæti, 3 höggum á eftir Rory McIlroy eftir 1. dag Memorial mótsins í Dublin, Ohio, átti sinn lægsta hring í PGA móti frá árinu 2011, 6 undir pari, 66 högg. Hann hefir ekki átt svona hring frá því á Wyndham Championship árið 2011, sama móti og Ólafur Björn „okkar“ Loftsson tók þátt í. Casey fékk m.a. glæsilegan örn á par-5 7. holunni, eftir að setja niður 11 metra arnarpútt. Um misgóðan árangur undanfarinna ára sagði Casey: „Gripið mitt var orðið of veikt og ég var farinn að vera of framarlega í stöðunni.“ Casey er nú með sveifluþjálfarann Peter Kostis, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2014 | 11:00
Evróputúrinn: Dantorp og Pepperell leiða e. 1. dag á Nordea Masters

Nordea Masters mótið er mót vikunnar á Evrópumótaröðinni, en það fer fram á PGA Sweden National golfvellinum í Malmö, Svíþjóð. Eftir 1. dag leiða Englendingurinn Eddie Pepperell og heimamaðurinn Jens Dantorp, en báðir spiluðu 1. hring Nordea Masters á 6 undir pari, 66 höggum. Aðeins 1 höggi á eftir er hópur 5 kylfinga sem allir hafa spilað á 67 höggum, en þ.á.m. er Skotinn Stephen Gallacher. Hér má fylgjast með skortöflu á Nordea Masters SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 1. dags á Nordea Masters SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2014 | 09:00
Eimskipsmótaröðin 2014 (2): Egils Gull mótið hefst á Hellu í dag

Annað mót Eimskipsmótaraðarinnar, Egils Gull mótið hefst á Hellu í dag. Keppendur sem hafa skráð sig til leiks eru 108 þar af 85 karl- og 23 kvenkylfingar. Af kvenkylfingunum hafa 5 verið í/eru í bandaríska háskólagolfinu en af karlkylfingunum eru það 14, sem annaðhvort hafa verið, eru eða eru á leiðinni þangað. Það verður sérlega spennandi að sjá hvernig krökkunum okkar sem hafa verið við nám og keppni í Bandaríkjunum gengur; en af oafngreindum kylfingum mætti nefna að Sunna Víðisdóttir, GR, sem er við nám í Elon sigraði síðustu helgi á Nettó-mótinu í Keflavík og Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, sem er í Fresno State í Kaliforníu varð í 2. sæti. Sunna Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2014 | 08:00
eGolf: Ólafur Björn úr leik

Það munaði aðeins 1 höggi að Ólafur Björn Loftsson, NK kæmist í gegnum niðurskurð á Sedgewick Classic mótinu, sem er hluti af eGolf Tour og fer fram í Greensboro, Norður-Karólínu dagana 28.-30. maí 2014. Ólafur Björn lék samtals á 2 yfir pari, 142 höggum (70 72) og komst ekki í gegnum niðurskurð, sem miðaður var við 1 yfir pari. Þetta hljóta að vera gríðarleg vonbrigði fyrir Ólaf Björn, en þetta er svo sannarlega ekki í fyrsta sinn sem aðeins munar 1 höggi hjá honum á móti í Norður-Karólínu. Skemmst er að minnast þess að árið 2011 munaði aðeins 1 höggi að Ólafur Björn næði að spila um helgina á PGA Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2014 | 07:00
LET Access: Valdís Þóra hóf keppni á Spáni

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, tekur þátt í OCA Augas Santas International Ladies Open, sem fram fer á Augas Santas Balneario & Golf golfstaðnum í Lugo á Spáni. Mótið hóst í gær og stendur dagana 29.-31. maí 2014. Valdís Þóra lék fyrsta hring á 7 yfir pari, 77 höggum og deilir 50. sæti eftir 1. dag. Sjá má stöðuna á OCA Augas Santas International Ladies Open með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2014 | 06:00
LEK: 158 tóku þátt í Opna Ping mótinu

Það var stanslaust stuð í gær á Hvaleyrinni. 158 LEK kylfingar skráðu sig til leiks, þar af 31 kvenkylfingur. Eins og oft áður þá blésu vindar aðeins, bara til að láta minna á sig. Fyrir þá sem ekki vita þá stendur LEK fyrir Landssamtök Eldri Kylfinga. Samtökin voru stofnuð í Borgarnesi að frumkvæði Sveins Snorrasonar lögfræðings og fyrrum forseta GSÍ að afloknu landsmóti eldri kylfinga sumarið 1985. Starfsemi LEK hefur farið vaxandi með árunum og sömuleiðis þátttaka í mótum á vegum þess. Það hefur verið ævintýraleg fjölgun á eldri kylfingum frá stofnun LEK árið 1985. Stofnárið munu hafa verið um 200 eldri kylfingar í öllum golfklúbbum landsins og er þá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2014 | 05:00
GR: Anna María, Halla Björg, Óttar Helgi og Rúnar Óli sigruðu á Opna TaylorMade/Adidas

Fyrsta opna mót sumarsins, Opna TaylorMade/Adidas mótið í samvinnu við Örninn Golf, fór fram í gær, fimmtudaginn 29. maí í blíðskaparveðri á Korpúlfsstaðavelli. Alls tóku 171 kylfingur þátt í mótinu. Leikin var punktakeppni sem og höggleikur í þremur flokkum: Almennur flokkur karla, almennur flokkur kvenna og höggleikur karla með forgjöf 4,4 og lægri. Samhliða voru veitt verðlaun fyrir besta skor kvenna og nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallarins. Helstu úrslit voru eftirfarandi: Punktakeppni Almennur flokkur karla 1. sæti: Óttar Helgi Einarsson GKG – 41 punktur 2. sæti: Ragnar Baldursson GR – 40 punktar (19 punktar á seinni 9) 3. sæti: Jón Ásgeir Ríkarðsson GK – 40 punktar (18 punktar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2014 | 03:00
PGA: Rory efstur á Memorial – Hápunktar 1. dags

Rory McIlroy er efstur eftir 1. dag á Memorial mótinu, sem fram fer í Muirfield Village í Dublin, Ohio. Rory lék keppnisvöll Muirfield á 9 undir pari, 63 glæsihöggum; fékk 2 erni, 7 fugla og 1 skramba – skrautlegt skorkort það! Öðru sætinu deila þeir Bubba Watson, Paul Casey og Chris Kirk, 3 höggum á eftir Rory, þ.e. á 6 undir pari, 66 höggum. Fimmta sætinu deila 3 aðrir kylfingar enn höggi á eftir þ.e. allir á 5 undir pari, þ.e.: Keegan Bradley, Michael Thompson og JB Holmes. Til þess að sjá stöðuna eftir 1. dag á Memorial mótinu SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 1. dags á Memorial Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2014 | 22:30
Strákarnir stóðu sig vel í Skotlandi!

Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, stóð sig stórvel á European Championship US Kids móti sem fram hefir farið í Gullane í Edinborg, Skotlandi. Mótið fór fram daganna 26.-29. maí 2014 og lauk í dag. Þátttakendur í flokki 12 ára voru 72. Sigurður Arnar lék á samtals 5 yfir pari, 221 höggi (70 74 77) og varð í 6. sæti!!! Kjartan Óskar Guðmundsson, NK keppti einnig í flokki 12 ára stráka líkt og Sigurður Arnar, og átti hringi upp á 84 87 81 og lauk keppni í 48. sæti. Sigurður Gauti Hilmarsson, NK tók þátt í flokki 10 ára og átti flotta hringi upp á 109 105 106. Tveir íslenskir kylfingar tóku Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

