Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2022 | 09:00

Bandaríska háskólagolfið: Sigurður Blumenstein á 2. besta skori James Madison á Southern Intercollegiate

Sigurður Bjarki Blumenstein, GR og félagar í James Madison tóku þátt í Southern Intercollegiate háskólamótinu, þar sem liðið landaði 3. sætinu!!! Glæsilegt!!! Mótið fór fram í The Falls Club, á Palm Beach í Lake Worth, Flórída, dagana 14.-15. mars 2022. Þátttakendur voru 60 frá 11 háskólum. Sigurður var á 2. besta skori James Madison; varð T-11 í mótinu í einstaklingskeppninni, með skor upp á 1 yfir pari, 217 högg (72 71 74) sem er besti árangur hans til þessa, með háskólaliði sínu. Sjá má umfjöllun um mótið á vefsíðu James Madison með því að SMELLA HÉR:  Sjá má lokastöðuna í Southern Intercollegiate með því að SMELLA HÉR:  Næsta mót Sigurðar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2022 | 08:00

Bandaríska háskólagolfið: Daníel Ísak & félagar í 3. sæti á GCU Inv.

Daníel Ísak Steinarsson, GK og félagar í Texas Arlington náðu þeim glæsilega árangri að landa 3. sætinu á stóru háskólamóti GCU Inv. Mótið fór fram á GCU Championship golfvellinum í Phoenix, Arizona. Þátttakendur voru 120 frá 23 háskólum. Daníel Ísak varð T-46, lék á samtals 216 höggum (72 70 74) og var á 4. besta skori í liði sínu. Sjá má umfjöllun um mótið á vefsíðu Arlington með því að SMELLA HÉR:  Sjá má lokastöðuna á GCU Inv. með því að SMELLA HÉR: Næsta mót Daníels Ísaks og félaga í Arlington verður 21.-22. mars n.k. í Kerrville, Texas.  


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2022 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Kristín Sól & félagar í 1. sæti á Hillcat Classic

Kristín Sól Guðmundsdóttir, GM og félagar í Roger State University tóku þátt í Hillcat Classic háskólamótinu. Mótið fór fram í Bailey Ranch GC, í Owasso, Oklahoma, dagana 14.-15. mars 2022. Þátttakendur voru 59 frá 13 háskólum. Kristín Sól varð T-13 í einstaklingskeppninni með skor upp á 19 yfir pari, 163 högg (82 81) og var á 4.-5. besta skori liðs síns. Kristin Sól og félagar sigruðu síðan liðakeppnina!!!! Stórglæsilegt!!! Sjá má lokastöðuna í Hillcat Classic háskólamótinu með því að SMELLA HÉR:  Næsta mót Kristínar Sól og RSU er 28.-29. mars n.k. í Missouri.


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 15. 2022 | 23:23

Henrik Olof Stenson næsti fyrirliði Ryder bikarsliðs Evrópu

Sænski kylfingurinn Henrik Stenson hefir verið útnefndur næsti fyrirliði Ryder bikars liðs Evrópu. Hann sjálfur hefir 5 sinnum verið í Ryder bikars liðum Evrópu, þar af 3 sinnum í sigurliðum. Stenson var valinn Ryder bikarsfyrirliði Evrópu árið 2023 af fimm manna valnefnd sem samanstóð af þremur síðustu Ryder Cup fyrirliðunum – Pádraig Harrington, Thomas Bjørn og Darren Clarke – auk framkvæmdastjóra Evrópumótaraðarinnar, Keith Pelley, og David Howell, formanni DP World Tour Tournament Committee. Þegar ljóst var orðið að Stenson yrði næsti fyrirliði Ryder liðs Evrópu sagði hann m.a.: „Ég er mjög ánægður og ánægður með að vera fyrirliði Ryder bikarsliðs Evrópu – það er mikill heiður og ég var auðmjúkur Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 15. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Helgi Jóhannes Jónsson – 15. mars 2022

Það er Helgi Jóhannes Jónsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Helgi Jóhannes er fæddur 15. mars 1972 og á því 50 ára stórafmæli í dag! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Helgi Jóhannes Jónsson – Innilega til hamingju með 50 ára stórafmælið!!!! Aðrir frægir, sem eiga afmæli í dag eru: Þorvaldur Ásgeirsson, golfkennari 15. mars 1917-10. október 1988 (hefði orðið 105 ára í dag); Hrafn Arnarson, 15. mars 1953 (69 ára); Gerður Guðrúnar, 15. mars 1955 (67 ára); Tsuyoshi Yoneyama, 15. mars 1965 (57 ára); Arna Schram, f. 15. mars 1968 – d. 11.1.2022 (hefði orðið 54 ára) Helen Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 15. 2022 | 09:00

GV: Vestmannaeyjavöllur allur annar eftir öflugt hreinsunarstarf sjálfboðaliða

Um síðustu helgi kom saman kraftmikill hópur félagsmanna úr Golfklúbbi Vestmannaeyja saman til þess að hreinsa til á ákveðnum svæðum á Vestmanneyjavelli. Náttúruöflin hafa verið í stóru hlutverki í vetur í Vestmannaeyjum – og töluvert magn af grjóti og lausamöl hafði safnast fyrir á 16. braut og víðar. Sjá m.a. frétt Golf 1 um það með því að SMELLA HÉR:  Fjöldi félagsmanna mætti á vinnudag GV og fengu þeir aðstoð frá þremur vallarstarfsmönnum frá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Vallarstarfsmenn GM mættu með tæki til þess að blása helsta grjótmulninginn af brautunum sem liggja næst sjávarkambinum. Mikið tjón varð á 17. teig Vestmannaeyjavallar í febrúar – en teigurinn hvarf nánast í heilu lagi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 15. 2022 | 08:00

Hvað var í sigurpoka Cam Smith?

Eftirfarandi verkfæri voru í sigurpoka Cameron Smith, þegar hann sigraði á Players meistaramótinu: DRÆVER: Titleist TSi3 með 10° lofti og með Fujikura Ventus Blue 6 X skafti. 3 TRÉ: Titleist TSi2 með 15° lofti og með Fujikura Ventus Blue 8 X skafti. 7 TRÉ: Titleist TS2 með 18° lofti og með UST Elements Red 8F5 skafti. JÁRN: Mizuno Pro Fli-Hi (3-járn) og Titleist T100 Black (5- 9 járn), með KBS Tour 130 X Custom Matte Black sköftum. FLEYGJÁRN: Titleist Vokey Design SM9 (46°-10° F, 52°-08° F, 56°-08° M & 60°-10° S), með KBS Tour 130 X sköftum. PÚTTER: Scotty Cameron 009M Prototype. BOLTI: Titleist Pro V1x.


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 15. 2022 | 00:40

PGA: DJ jafnaði vallarmetið á Sawgrass

Á lokahring sínum á Players meistaramótinu jafnaði Dustin Johnson (DJ) vallarmetið á TPC Sawgrass, lék á 63 glæsihöggum (fékk 1 örn, 8 fugla og 1 skolla). Sjá má glæsiörn DJ á par-5 9. braut Sawgrass með því að SMELLA HÉR:  Það dugði þó ekki til þess að ná upp ömurlegum 3. hring, þar sem DJ lék á 76 höggum. Ja, þarna er 13 högga sveifla hjá fyrrum nr. 1 á heimslistanum, sem nú er dottinn niður í 9. sætið á heimslistanum. DJ varð  T-9 á Players; lék á samtals 7 undir, 281 höggi (69 73 76 63 ). Hann varð jafn þeim Victor Hovland, Sepp Straka og Adam Hadwin.


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 15. 2022 | 00:36

PGA: Ás Hovland valinn högg dagsins

Norski frændi vor, Victor Hovland átti högg dagsins á 3. hring Players. Þar náði hann draumahögginu á par3 8. holu TPC Sawgrass. Brautin er 219 yarda (uþb 200 m) af teig. Sjá má glæsiás Hovland með því að SMELLA HÉR:  Hovland lauk keppni á Players T-9 með heildarskor upp á 7 undir pari, 281 högg (71 73 68 69).


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 14. 2022 | 22:05

PGA: Cameron Smith sigraði á Players!!!

Það var ástralski kylfingurinn Cameron Smith, sem stóð uppi sem sigurvegari á Players mótinu. Mótið fór venju skv. fram á TPC Sawgrass, á  Ponte Vedra Beach, í Flórída, en Smith býr bar rétt hjá í Jacksonville og æfir oft á Sawgrass, þekkir sem sagt völlinn út og inn. Miklar frestanir settu svip sinn á þetta mót og tókst ekki að ljúka 4. hring fyrr en í kvöld, mánudagskvöldið 14. mars, þó mótið hafi átt að standa frá 8.-13. mars. Sigurskor Smith var 13 undir pari, 275 högg (69 71 69 66). Smith er fæddur 18. ágúst 1993 og því 28 ára. Hann á í beltinu alls 9 atvinnumannssigra: 5 á Lesa meira