Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2014 | 13:00

LPGA: Stacy Lewis leiðir á Reignwood Classic í hálfleik

Í Peking, Kína fer nú fram Reignwood LPGA Classic mótið, sem er hluti af LPGA mótaröðinni og er mótið nú hálfnað. Efst eftir 2 leikna hringi er fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, bandaríska stúlkan Stacy Lewis. Lewis hefir leikið hringina 2 á samtals 12 undir pari, 134 höggum (66 68). Í 2. sæti, 2 höggum á eftir Lewis er landa hennar Brittany Lang á samtals 10 undir pari og 4 kylfingar deila 3. sætinu á samtals 8 undir pari, hver þ..e þær: Caroline Masson frá Þýskalandi, Mirim Lee frá Suður-Kóreu, Belen Mozo frá Spáni og Íslandsvinurinn Caroline Hedwall, frá Svíþjóð. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2014 | 11:30

Leiðrétt frétt: Bandaríska háskólagolfið: Skor Gunnhildar taldi í 1. móti hennar!

Ranglega var greint frá því  í frétt Golf 1 frá 1. október 2014 s.l. að skor Gunnhildar Kristjánsdóttur, GKG, sem var að leika sinn fyrsta leik með golfliði Elon, í bandaríska háskólagolfinu, hefði ekki talið. Í þessu fyrsta móti Gunnhildar í bandaríska háskólagolfinu, UNCG Forest Oaks Fall Classic, sem fram fór í Greensboro, Norður-Karólínu varð lið hennar Elon í 1. sæti. Í hinni röngu frétt Golf 1 sagði eftirarandi: „Gunnhildur hafnaði í 54. sæti í einstaklingskeppninni var á samtals 21 yfir pari og var í 5. og síðasta sæti af liðsfélögum sínum og taldi skor hennar ekki að þessu sinni.“ Hið rétta er að skor Gunnhildar taldi á 2. hring Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2014 | 10:00

GSG: Styrktarmót Elísabetar Helgu á morgun – Fjölmennið!!!

Elísabet Helga er 13 ára og á að fermast í vor. Hún er  dóttir Ásu Guðmundsdóttur og Jónatans Sigurjónssonar  formanns GSG og barnabarn Guðmundar Einarssonar  framkvæmdastjóra GSG .Elísabet hefur verið skráður félagi í GSG undanfarin ár. Hún fékk fyrst greiningu fyrir tæplega 3 árum er greind með flogaveiki . Gekk vel fyrstu 2 árin í lyfjameðferð en seinasta hálfa árið hefur ekkert gengið að ná stjórn á flogunum og hún afskaplega lasin og þarf sólahringsgæslu og ummönnun. Elísabet hefur verið inn og út af heilbrigðisstofnunum síðustu mánuði. GSG ætlar að láta þátttökugjald í Stigamóti 12 renna til þeirra til að hjálpa þeim að standa undir verulegum kostnaðarauka og vinnutapi sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2014 | 09:45

Rory kom sér hjá að svara nokkrum spurningum á #ASKRORY – Myndskeið

Evrópumótaröðin byrjaði með nýtt efni á vefsíðu sinni sem heitir  #askrory í gær þar sem lofað var að nr. 1 á heimslistanum, Rory McIlroy,  myndi svara bestu spurningum sem spurt væri um á myndskeiði. Hér má sjá myndskeiðið SMELLIÐ HÉR:  Í myndskeiðinu var Rory spurður allskyns spurninga allt frá tónlistarsmekk sínum (þ.e. hvað hann sé með á iPod-inum sínum) til þess hvað hann kysi heldur að vera með á beikon-samloku tómatsósu eða brúna sósu? Síðan voru nokkrar spurningar sem Rory neitaði að svara.  Hér eru nokkur dæmi: 1. Ef þú ættir að búa til hljóðfæri úr grænmeti hvers kyns hljóðfæri myndi það vera? 2. Hvað, fyrir utan að henda kærustunni í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 3. 2014 | 09:30

Ryder Cup 2014: Bandaríska liðið sendir Rory í fýluferð

Á blaðamannafundi sínum eftir 1. hring Dunhill Links Championship, sem er mót vikunnar á Evrópumótaröðinni talaði Rory McIlroy m.a. um skemmtunina eftir sigurinn í Ryder bikarnum. Líkt og Golf 1 greindi frá var Rory í engu öðru en skotapilsi og með hárkollu á einum tímapunkti. Sjá skotapilsfrétt Golf 1 um Rory með því að SMELLA HÉR:   Aðspurður um það í gær sagði brosandi Rory á  blaðamannafundinum vegna Dunhill Links Championship í gær:  „Ég man ekkert eftir þessu. Þetta rann allt saman einhvern tímann um miðnætti.“  En þetta er ekki allt sem skeði. Skv. Rory var hann í partý ásamt liðfélögum sínum þegar hann fékk SMS frá Keegan Bradley.  Keegan bauð honum í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2014 | 18:15

Birgir Leifur í 1. sæti í Portúgal!!!

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG tekur þátt í úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina en mótið fer fram í Ribagolfe, í Portugal. Birgir Leifur er búinn að spila á samtals 8 undir pari, 208 höggum (69 70 69) og deilir 1. sæti eftir 3 leikna hringi, með  Alfredo Garcia Heredia. Sjá kynningu Golf 1 á Garcia Heredia með því að SMELLA HÉR: Stórglæsilegt hjá Birgi Leif og löngu ljóst að hann flýgur inn á 2. stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag í Ribagolfe SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2014 | 18:00

Bandaríska háskólagolfið: Ari, Theodór og golflið Monticello luku leik í 3. sæti í Tennessee

Ari Magnússon, GKG Theodór Emil Karlsson GKJ og golflið University of Arkansas at Monticello luku leik á Union University Fall Invite í Jackson, Tennessee. Mótið fór fram 29.-30. september 2014 og þátttakendur voru 42 í 8 háskólaliðum. Ari lék á samtals 11 yfir pari, 227 höggum (75 77 75) og deildi 10. sæti í einstaklingskeppninni. Theodór Emil lék á samtals 13 yfir pari, 229 höggum (79 73 77) og deildi 14. sæti í einstaklingskeppninni. Ari var á 2. besta skori Monticello og Theodór Emil á 3. besta skorinu og töldu bæði skorin í 3. sætis árangur Monticello í liðakeppninni. Næsta mót þeirra Monticello-manna er The Buccaneer Classic í Southaven, Mississippi, 5. október Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Phill Hunter ——— 2. október 2014

Það er Phill Hunter, golfkennari í MP Golf Academy hjá Golfklúbbnum Oddi (GO) sem er afmæliskylfingur dagsins.  Phill er breskur,  fæddist 2. október 1964 og á því 50 ára stórafmæli í dag.  Hann er kvæntur og á 1 strák. Phill hefir yfir 30 ára reynslu af golfkennslu. Á árunum 1983-1986 vann hann við Wath Golf Club og á árunum 1986-1988 við Grange Park Golf Club í Englandi. Hér á landi var Phill golfkennari hjá GR 1988-1991 og hjá GS 1992-1996, auk þess sem hann þjálfaði unglingalandsliðið á þessum árum. Phill og fjölskylda bjuggu síðan um 11 ára skeið í Þýskalandi þar sem hann var yfirgolfkennari við Golfclub Haus Kambach í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2014 | 15:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2015: Park Sung-joon (6/50)

Park Sung-joon er suður-kóreanskur kylfingur, sem er fæddur 9. júní 1986 og því 28 ára. Park spilaði á Japan Golf Tour og vann fyrsta sigur sinn á  Vana H Cup KBC Augusta í ágúst 2013. Hann varð í 5. sæti á peningalista japanska PGA þetta keppnistímabilið. Árið 2014 spilaði Park á Web.com Tour og varð í 44. sæti á Web.com Tour finals og vann kortið sitt í fyrsta inn á PGA Tour. Park spilaði m.a. í World Cup árið 2011 fyrir Suður-Kóreu.  


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 2. 2014 | 09:00

Evróputúrinn: Alfred Dunhill mót vikunnar

Alfred Dunhill mótið er mót vikunnar á Evrópumótaröðinni og hófst fyrr í vikunni með Pro-Am móti. Aðalkeppnin hefst hins vegar í dag og er m.a. nr. á heimslistanum, Rory McIlroy meðal þátttakenda. Venju skv. er spilað á frægu linksurunum Old Course í St. Andrews, Kingsbarns og Carnoustie. Fylgjast má með gangi mála á Alfred Dunhill með því að SMELLA HÉR: